Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 28
Matarauður MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 201928
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir er
einn af fjölmörgum nemendum
Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún
stundar nám í lífrænni ræktun við
garðyrkjudeild LbhÍ að Reykjum í
Ölfusi. námið er tvö ár í dagskóla,
en hún tekur það á fjórum árum í
fjarnámi samhliða vinnu. „Garð-
yrkjuskólinn er magnaður staður.
Þar er mikill mannauður og haf-
sjór fróðleiks fyrir ræktendur að
sækja í. Ég mæli með fyrir alla þá
sem ætla að stunda garðyrkju að
fara í nám við skólann. Ekki síst í
lífrænni ræktun þar sem oft getur
verið erfitt að nálgast upplýsing-
ar um hvað virkar í lífrænni rækt-
un á Íslandi. Stétt lífrænna fram-
leiðenda á Íslandi er því miður fá-
menn og lítið til af upplýsingum
og niðurstöðum rannsókna á vefn-
um. Oft er því ekki í boði að setj-
ast við tölvuna og leita á vefnum
að þeim upplýsingum sem mann
vantar, heldur nauðsynlegt að for-
vitnast um reynslu annarra,“ segir
Elínborg Erla.
Hefur alltaf haft áhuga
á allri ræktun
„Líklega kviknaði áhugi minn á
lífrænni ræktun þó fyrst og fremst
þegar ég vann við gulrótaupptöku
hjá Akurseli ehf. í Öxarfirði fyr-
ir nokkrum árum. Þá sannfærðist
ég allavega um að lífræn ræktun
væri möguleg á Íslandi í útirækt-
un á grænmeti. Þegar ég svo hélt
áfram að kynna mér hlutina, lesa
mér til og afla mér vitneskju um
hugmyndir lífrænnar framleiðslu,
heillaðist ég og hef í dag þá skoð-
un að það sé besta leiðin til þess að
framleiða matvæli. Mikil áhersla er
lögð á frjósemi jarðvegs, að ganga
ekki á landsins gæði, nota ekki eit-
urefni og almennt að vinna allt í
sátt við náttúruna,“ segir hún.
Fleiri sérgreinar
í garðyrkjunni
Auk lífrænnar ræktunar mat-
jurta er hægt að sérhæfa sig í yk-
rækt eða plöntuuppeldi við Garð-
yrkjuskólann. námið hefst á garð-
yrkjuframleiðslubraut og nem-
endur geta svo valið á milli þess-
ara þriggja áherslna. nemendur
útskrifast sem garðyrkjufræðingar
og hafa þá hlotið verklega og bók-
lega þekkingu ásamt 60 vikna verk-
námi undir handleiðslu garðyrkju-
fræðings. Aðrar garðyrkjutengdar
brautir sem kenndar eru við skól-
ann eru blómaskreytingar, skrúð-
garðyrkja og skógtækni. Kennsla á
öllum garðyrkjubrautir fer fram á
Reykjum í hjarta garðyrkjunnar.
Heimavinnsla
búfjárafurða
Við Landbúnaðarháskóla Íslands er
einnig kennt starfsmenntanám í bú-
fræði, en það fer fram á Hvanneyri.
nemendur þar læra almennt bú-
fjárhald, fóðrun, hirðingu og með-
ferð dýra, þeir öðlast þekkingu á
þörfum landbúnaðarins og á rækt-
un og nýtingu plantna til fóður-
öflunar og beitar ásamt ræktun og
kynbótum búfjár. Áhersla er ávallt
á að nýta auðlindir landsins á skyn-
samlegan hátt með sjálfbærni og af-
urðir að leiðarljósi. námið tekur
tvö ár og er kennt á Hvanneyri auk
þess sem nemendur fara í tólf vikna
námsdvöl á búi hér heima eða er-
lendis.
Eitt af námskeiðunum er heima-
vinnslu afurða. Þar kynnast nem-
endur hvernig hægt er að fullnýta
þær afurðir sem falla til á býlum
með því að vinna þær heima við.
Farið er í sláturferli á búfé ásamt
nýtingu allra sláturafurða, mat-
vinnslu og matargerð. Þau spreyta
sig með vinnslu mjólkur og fram-
leiddu t.d skyr, fetaost, ís og jógúrt.
nemendurnir fá verklega kennslu í
úrbeiningu og spreyttu sig á verkun
kjöts og í haust þurrkuðu þeir með-
al annars hrossakjöt og komu með
í tíma til að smakka og báru saman
mismunandi aðferðir.
Ásamt verklegri vinnu er far-
ið í lög og reglugerðir sem tengj-
ast heimavinnslu afurða og far-
ið í heimsóknir á býli sem stunda
heimavinnslu eða eru aðilar að
verkefninu beint frá býli. nem-
endurnir sem eru á fyrsta ári í bú-
fræði sóttu t.d. heim geitfjársetrið
á Háafelli í Borgarfirði nú í haust
og fengu að fylgjast með og kynnast
framleiðslunni þar.
rb
Fjölbreyttir möguleikar í námi í landbúnaði
Nemendur í áfanga um heimavinnslu afurða spreyta sig við vinnslu mjólkur og
framleiða t.d. skyr, osta, ís og jógúrt. Ljósm. Bryndís Geirsdóttir.
Nemendur í búfræði við LbhÍ læra handtökin við úrbeiningu. Ljósm. LbhÍ
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir stundar
nám í lífrænni ræktun en hún er að
koma sér upp aðstöðu til framleiðslu og
ræktunar í Breiðagerði. Ljósm. eeá.
Í stefnu stjórnvalda er lögð áhersla
á landbúnað og eflingu hans, þar
sem m.a. segir: „Landbúnaður er
ein af mikilvægustu atvinnugrein-
um á Íslandi en hann gegnir mik-
ilvægu hlutverki í fæðu- og mat-
vælaöryggi þjóðarinnar.“ Land-
búnaður á Íslandi er fjölbreyttur
og má nefna garðyrkju, geitfjár-
rækt, nautgriparækt, sauðfjárrækt
og jarðrækt sem dæmi.
,,Landbúnaðarháskóli Íslands
gegnir mikilvægu hlutverki þegar
kemur að námi í þessum greinum.
Í stefnu skólans til 2024 er áhersla
lögð á að stórauka rannsóknir, ný-
sköpun og alþjóðlegt samstarf í því
skyni að efla kennslu og innviði
skólans. Meginstarfsstöðvar skól-
ans eru á Hvanneyri, Reykjum í
Ölfusi og Keldnaholti í Reykjavík
og mynda þær eina heild þannig
að nemendur skólans hafa mögu-
leika á að nýta sér aukna breidd í
námsframboði og innviðir skól-
ans til rannsókna, nýsköpunar og
kennslu nýtast sem best til verð-
mætasköpunar og aukinnar sam-
keppnishæfni“, segir Ragnheiður
I. Þórarinsdóttir, rektor skólans.
Ásamt því að leggja áherslu á
sjálfbærni í námi er stefnan einn-
ig með áherslu á samráð og sam-
vinnu við atvinnulíf, sveitarfélög,
opinberar stofnanir og stjórnvöld
um sameginleg málefni. Skólinn
hefur þá sérstöðu að bjóða bæði
starfsmenntanám og háskólanám
og er stefnan að styrkja námið enn
frekar og nýta samlegðaráhrif milli
ólíkra greina sem og milli skóla-
stiga.
„Á öllum stigum námsins er
lögð áhersla á umhverfismál, nátt-
úruvernd, vistheimt og sjálfbærni,
enda stendur það efni jafnt nem-
endum sem garðyrkjufaginu öllu
nærri. Í skólastarfinu eru gildi
heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð-
anna um sjálfbæra þróun höfð í
heiðri“, segir Ingólfur Guðnason,
fagbrautarstjóri garðyrkjufram-
leiðslu LbhÍ.
Möguleikar í land-
búnaðartengdu
starfsmenntanámi
Guðríður Helgadóttir, forstöðu-
maður starfs- og endurmenntun-
ardeildar LbhÍ hefur haft um-
sjón með námi í garðyrkjufögum
og búfræði en löng hefð er fyrir
námi á því sviði á Reykjum í Ölf-
usi og á Hvanneyri. „Grunnur-
inn að góðri fagþekkingu er að
sjálfsögðu menntun og þjálfun
til viðkomandi starfa. Við höfum
í gegnum tíðina átt í mjög góðu
samstarfi við atvinnulífið og hafa
námskrár allra brauta verið unn-
ar í samstarfi við viðkomandi at-
vinnugrein“, segir Guðríður.
Við skólann er hægt að læra allt
sem viðkemur ræktun. Á starfs-
stöðinni á Reykjum er hægt að
stunda nám í garðyrkjufram-
leiðslu sem skiptist í áherslu á
plöntuuppeldi á garð- og skógar-
plöntubraut, lífræna ræktun mat-
jurta og ylrækt. Einnig er boðið
upp á nám í blómaskreytingum,
skógtækni á skóg- og náttúru-
braut og skrúðgarðyrkju á Reykj-
um. Á starfsstöðinni á Hvann-
eyri er boðið upp á nám í búfræði
og er þar aðstaða til jarð-, naut-
gripa-, hrossa- og sauðfjárræktar
til dæmis.
Miklir atvinnumöguleikar eru
eftir brautskráningu úr starfs-
menntanámi en fólk með góða
verklega reynslu og fagþekkingu
er mikils metið og á greiða leið út
á atvinnumarkað eða að hefja eig-
in rekstur.
Sérstaða skólans að
bjóða bæði háskólanám
og starfsmenntanám
Sérstaða skólans liggur ekki síst í
því að bjóða bæði upp á háskóla-
nám og starfsmenntanám. Marg-
ir nemendur af starfsmennta-
brautum halda áfram í háskóla-
nám innan skólans og einnig eru
mörg dæmi þess að nemendur
fari í starfsmenntanám skólans
að loknu háskólanámi.
Landbúnaðarháskólinn er lít-
ill háskóli en hefur mikla breidd
í námsframboði og innviðum og
það mikilvæga hlutverk að skapa
og miðla þekkingu á sviði sjálf-
bærrar nýtingar auðlinda, um-
hverfis, skipulags og matvæla-
framleiðslu á norðurslóðum. Að
undanförnu hafa nýir sérfræð-
ingar verið ráðnir til starfa og
doktorsnemendum hefur jafn-
framt fjölgað. Stórum alþjóðleg-
um verkefnum fer fjölgandi og
finnum við fyrir miklum áhuga á
samstarfi við skólann.
rb
Nám á sviði matvælaframleiðslu
Hér er verið að meta gæði gulrófna til fræfram-
leiðslu.
Ragnhildur I. Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ. Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs- og endur-
menntunardeildar LbhÍ.