Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019 Matarauður 31
narfeyrarstofa.is
Í hjarta
S�y�ishólms
Matarhandverk Jóla Pop-UpMarkaður
V�gan
Matur úr
héraði
Jóladögurður
Veitingahúsið Narfeyrarstofa er elsta starfandi
veitingahúsið í Stykkishólmi. Matseðillinn hefur að
geyma frumlega rétti, lystilega borna fram í fallegu
eldhúsi Narfeyrarstofu en matreiðslumennirnir vinna
kveikt hefur verið undir margsinnis nú í haust. Samhliða
bragðlaukarnir eru kitlaðir svo um munar í mat og
drykk.
JÓLAMARKAÐUR &
JÓLADÖGURÐUR
30. NÓVEMBER &
7. DESEMBER 2019
AÐALGATA 3, STYKKISHÓLMUR
533 1119 / 841 2000 / 841 2300
INFO@NARFEYRARSTOFA.IS
32 GESTIR NEÐRI HÆÐ
42 GESTIR EFRI HÆÐ
SÓLPALLUR OG UPPHITAÐ TJALD
AÐGENGI FYRIR HREYFIHAMLAÐA
Kl. 12 - 16
nú er unnið að stóru ferðaleiða-
verkefni í samstarfi Vestfjarðastofu
og Vesturlandsstofu sem hafa gert
samstarfssamning um að þróa eftir-
sóknarverða ferðaleið sem er hring-
leið um Vestfirði og Dali. Með víð-
tækri samvinnu, vöruþróun, kynn-
ingu og markaðssetningu er því ver-
ið að skapa nýtt aðdráttarafl og eft-
irsónarverða ferðaleið um Vestfirði
og Dali. Lögð er áhersla á að tengja
saman köld ferðasvæði og sterka
segla fyrir ferðamenn og byggja á
áhugaverðri náttúru, fjölbreyttri
dægradvöl, menningu og matarupp-
lifun.
Matur og matarupplifun verður
sífellt mikilvægari þáttur í upplifun
ferðamanna á Íslandi. Því er lögð
áhersla á vöruþróun sem byggir á
þessum vaxandi áhuga ferðafólks á
matarupplifun og vilja fólks til að
vita meira um uppruna matvæla og
að kynnast staðbundnum mat og
matarvenjum.
Dalirnir eru mikið matvælasvæði,
þar sem bæði er stundaður hefð-
bundinn landbúnaður, sjósókn og
hefð er fyrir matvinnslu í héraði.
Þar er einnig nokkur hlunnindabú-
skapur og óhefðbundin matvælanýt-
ing sem áhugavert er að vinna með.
Markmiðið er að nýta matarauð
Dalabyggðar sem sóknarfæri í þessu
verkefni, draga fram sérkenni og sér-
stöðu og efla matarupplifun í Döl-
unum, vinna með hefðir og byggja
upp þekkingu og sterka gæðaímynd
fyrir mat úr Dalabyggð.
Vinnan miðar að því að efla þá
starfsemi sem er til staðar, auka
þekkingu og hvetja til vöruþróunar,
hanna ferðaleiðina með því að tengja
saman eftirsóknarverða náttúru, að-
ila í ferðaþjónustu, matvælafram-
leiðslu og verslanir á svæðinu með
það að markmiði að skapa heild-
stæða upplifun fyrir ferðamenn þar
sem saman fléttast náttúruupplifun,
matur, menning og dægradvöl.
Í þessu verkefni er horft til þeirr-
ar vinnu sem Markaðsstofa norður-
lands vann í tengslum við norður-
strandarleið eða Arctic Coast Way
(sjá: https://www.arcticcoastway.
is/) sem opnuð var á norðurlandi
í júní 2019 og hefur þegar vakið
mikla athygli og ánægju. Markaðs-
stofa norðurlands vann þá ferðaleið
með áfangastaðahönnuðum og sér-
fræðingunum frá breska ráðgjafafyr-
irtækinu Blue Sail, sem hafa einnig
verið ráðnir sem ráðgjafar að þessu
verkefni.
Í þessu verkefni verður lögð sér-
stök áherla á vöruþróun matvæla og
matarupplifun í Dölum, en einn-
ig er markmiðið að kortleggja um-
fang og tegund matvælaframleiðslu
og gera matardagatal fyrir svæðið.
Þá er vilji til að skoða tengingingu
matar við sögu og menningu í Döl-
um, til að draga fram sérstöðu og
efla vöruþróun og fullvinnslu mat-
væla í Dalabyggð. Stefnt er að því að
stofna samstarfsvettvang eða klasa
til að efla samstarf og styðja við
framleiðendur. Áætlað er að halda
námskeið, vinnustofur og kynning-
ar með aðkeyptri ráðgjöf og stuðn-
ingi sérfræðinga í samstarfi við Sí-
menntun og Sóknaráætlun Vestur-
lands og Matarauð Íslands. Það er
von aðstandenda þessa verkefnis að
Dalamenn muni mæta öflugir til
þátttöku í þessu verkefni, því hrá-
efnið og tækifærin til vöruþróunar
eru nærtæk í Dölum.
Margrét Björk Björnsdóttir
Ferðaleið með áherslu á matarauð í Dölum
Hressir Dalakrakkar. Ljósm. Steina Matt.