Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019 Matarauður 33
Ólafsbraut 19 | 355 Ólafsvík
Tel, +354 436-6625
Follow us on facebook
Eat, live, enjoy!
Langaholt er eitt af þessum stóru
nöfnum í ferðaþjónustunni á Vest-
urlandi. Langaholt er veitinga-
staður og hótel á bænum Görð-
um í Staðarsveit og þar bjuggu þau
Svava Guðmundsdóttir og Símon
Sigurmonsson með kýr og kindur
framan af. Árið 1978 söðluðu þau
um og færðu sig yfir í ferðaþjón-
ustu og voru þau hjónin eigend-
ur hlutabréfs nr. 2 í Ferðaþjónustu
bænda. Sannkallaðir frumkvöðl-
ar í ferðaþjónustu. Þorkell sonur
þeirra, oft kallaður Keli vert, tók
við af þeim árið 2006 og í dag rekur
hann staðinn ásamt konunni sinni
henni Rúnu.
Keli segir að sveitamennskan sé
þeirra styrkleiki. „Við erum bara í
raun að gera það sama og mamma
gerði hér áður og þótti eðlilegt.
nota hráefni úr héraði og vinna
sjálf allt það sem við getum. Það
er eiginlega ófrávíkjanleg stefna að
afþakka allt tilbúið þegar við kaup-
um inn. Við höfum aðgang að besta
hráefni í heimi, við reynum svo
bara að skemma það ekki,“ segir
hann og brosir. „Við viljum helst
að ekkert hráefni komi úr pakka eða
dollu. Við reynum að gera þetta allt
sjálf.“ Og þar situr Rúna ekki auð-
um höndum. Morgunverðarhlað-
borðið í Langaholti svignar undan
kræsingum á borð við grafinn kola,
mareneraða lúðu, lummur, rúllu-
pylsu, rúgbrauð, sýróp, pestó, sult-
ur, heitreyktar fiskikæfur og fleira
heimagert góðgæti.
„Við höfum það fram yfir stór-
ar keðjur í ferðaþjónustu að skapa
okkar eigin karakter. Hér gerum
við það sem okkur langar og óvart
erum við að bjóða upp á einstaka
upplifun í leiðinni. Það sem okkur
þykir vera hversdagslegt þarf alls
ekki að vera það í augum gesta,“
segir Keli. En fyrir stuttu heimsóttu
þau erlend hjón sem báðu um að fá
að eiga matseðilinn. Þau höfðu þá
komið fyrir nokkrum árum, dval-
ið í Langaholti og orðið svo hrif-
in að þau fengu að eiga matseðil-
inn. Hann var síðan hengdur upp
á eldhúsvegg í heimalandinu og nú
vildu þau bæta við nýjum. Það segir
meira en mörg orð.
Keli og Rúna eru dugleg að halda
viðburði yfir vetrarmánuðina. Þau
standa fyrir tónlistarhátíðinni Durgi
um páska, villibráðarkvöldi og
bjúgnaveislu að hausti og eru nú að
endurvekja vinsælu fiskihlaðborð-
in. „Villibráðakvöldið er saman-
safn af öllum þeim kvikindum sem
mitt fólk nær að drepa í hvert skipti.
Svartfugl, gæs, bleikja og fleira.
Hreindýr ef einhver úr vinahópnum
fer á slíkar veiðar, annars ekki,“ seg-
ir Keli. „Fiskihlaðborðið er síðan frá
mömmu komið. Þá var kvöldmatur-
inn bara afgreiddur svona. Við mikl-
ar vinsældir. núna langar okkur að
prófa þetta einu sinni í viku, á laug-
ardögum. Tæknin vinnur líka með
okkur. nú getum við beðið fólk um
að bóka á netinu áður. Það breytir
forsendum og auðveldar allt utan-
umhald,“ segir Keli að lokum. hs
Matreiðum helst
ekkert úr pökkum
eða dósum
Sveitamennskan er styrkleiki
Langaholts í Staðarsveit
Keli vert reiðir fram fiskrétt á diski og útskýrir innihaldið fyrir gestum.
Ferskur fiskur, hráefni í úrvals rétti í Langaholti.