Skessuhorn - 13.11.2019, Síða 34
Matarauður MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 201934
Í versluninni Ljómalind í Borgar-
nesi verður opið hús næstkomandi
föstudag og verða flestir matvæla-
framleiðendur í versluninni með
kynningu á sínum matvælum milli
klukkan 16 og 18. Boðið verður upp
á að smakka ýmis fjölbreytt matvæli
auk þess sem hægt verður að spjalla
við framleiðendurnar og fá frekari
upplýsingar um matinn. „Það kom-
ast ekki alveg allir framleiðendurn-
ir okkar þennan dag, en það verða
flestir. Hægt verður að smakka ær-
kjöt, súkkulaði og margt fleira, svo
kemur nýjasti framleiðandinn okk-
ar sem er að gera sinnep,“ segir Sig-
urbjörg Kristmundsdtóttir, versl-
unarstjóri í Ljómalind, í samtali við
Skessuhorn. „Svava sem framleiðir
Sælkerasinnep er reyndar ekki héð-
an af Vesturlandi, en ég hef mark-
visst verið að reyna að auka vöru-
úrvalið hjá okkur og ákvað að taka
hana inn því hún er eini smáfram-
leiðandinn að gera sinnep,“ útskýrir
Sigurbjörg.
Vilja auka matvæla-
flóruna í Ljómalind
Sigurbjörg hefur undanfarið ver-
ið að leita að smáframleiðendum
sem eru að framleiða matvöru til að
bæta við flóruna í Ljómalind. „Við
höfum fyrst og fremst verið með
vörur sem eru framleiddar á Vestur-
landi en ég er til í að horfa aðeins út
fyrir landshlutann ef viðkomandi er
að framleiða eitthvað sérstakt. Það
er samt lykilatriði að það sé smá-
framleiðsla, jafnvel eitthvað frum-
kvöðlastarf. Það getur verið erfitt
fyrir slíka framleiðendur að koma
sinni vöru á framfæri og við viljum
sérstaklega hjálpa þeim,“ segir Sig-
urbjörg og bætir því við að ýmsar
nýjar vörur séu væntanlegar í versl-
unina fram að jólum. Alla föstudaga
til jóla verða teknar inn nýjar vörur,
ýmist frá framleiðendum sem þegar
eru með, eða hafa verið með vörur
í Ljómalind eða frá nýjum fram-
leiðendum. „Af þessu tilefni verð-
um við með verslunina opna til sex
á föstudögum til jóla og munu fram-
leiðendurnir koma og kynna sína
vörur,“ segir Sigurbjörg.
Jólagjafir í pokum
frá Öldunni
nú þegar líður að jólum eru marg-
ir farnir að huga að jólagjöfum
og í Ljómalind verður boðið upp
á jólagjafapoka fyrir fyrirtæki. Í
pokunum verða ýmsar vörur sem
hafa verið framleiddar í héraði og
er áhersla lögð á matvæli en hægt
er að koma með sérstakar óskir um
hvað fari í pokana. „Gjafirnar verða
afhentar í pokum sem eru saumaðir
í Öldunni og fyrir það borgar fólk
smá pening, 500 krónur sem fara
beint til Öldunnar, fyrir utan skatt-
inn. Við tökum engan ágóða af sölu
pokanna úr Öldunni því við viljum
þannig gefa aðeins til samfélagsins.
Það er að okkar mati samfélagsleg
ábyrgð að styrkja starfsemi eins og
í Öldunni og þetta er okkar fram-
lag,“ segir Sigurbjörg. Hún segir
enn nægan tíma vera til að leggja
inn pöntun fyrir jólagjafapokum
úr Ljómalind. „Við höfum feng-
ið slatta af pöntunum en getum
vel bætt við fleirum,“ segir hún og
bendir á að með því að kaupa gjaf-
ir í Ljómalind sé verið að styrkja
bæði verslun í heimabyggð og þá
framleiðendur sem þar eiga vörur.
„Það styrkir íbúana og samfélagið
að versla í heimabyggð.“
Uppruni vörunnar
þekktur
Sigurbjörg segir þakklæti ofar-
lega í huga þegar hún hugsar til
þeirra sem leggja leið sína í Ljóma-
lind til að versla. „Ljómalind er orð-
in rúmlega sex ára og það gengur
mjög vel. Vissulega myndi ég allt-
af vilja sjá fleiri koma hingað inn en
þetta myndi aldrei ganga upp nema
vegna þeirra sem versla hjá okkur.
Við erum þakklát þeim sem koma
til okkar og leggjum okkur fram við
að vera alltaf að bæta og auka þjón-
ustuna. Það erum við til dæmis að
gera með því að reyna að ná inn fjöl-
breyttari vörum. Í fyrra bættum við
fiski við hjá okkur og það hefur vak-
ið mikla lukku,“ segir Sigurbjörg og
bætir því við að í Ljómalind eru vör-
urnar ekki fjöldaframleiddar og fólk
veit alltaf hvaðan varan kemur.
Liprar að opna fyrir
áhugasama kaupendur
Fyrir um tveimur árum opnaði
Ljómalindin, í samvinnu við SSV,
Matarlind í Borgarnesi, vottað
eldhús til framleiðslu á matvöru til
að selja. Ef fólk vill nýta sér Mat-
arlindina er hægt að hafa samband
við Sigurbjörgu og bóka tíma í eld-
húsinu. „Þeir sem framleiða vörur
í Matarlindinni geta sjálfkrafa
komið þeim í sölu í Ljómalind ef
þeir vilja. Þetta er tilvalið fyrir þá
sem eru að koma sér af stað því ég
get verið þeim innan handar með
allt nema eldamennskuna. Ég get
hjálpað við að sækja um öll leyfi
og slíkt. En það er enn tækifæri til
að komast að í eldhúsinu og koma
vöru í sölu fyrir jólin,“ segir hún.
Þá vill Sigurbjörg benda á að þó
opnunartími Ljómalindarinnar sé
frá klukkan 12-17 yfir vetrartím-
ann sé það ekki heilagt. Sé fólk á
ferðinni utan opnunartíma og vilji
versla eitthvað er hægt að hafa sam-
band. „Við opnum líka fyrir hópa,
til dæmis ef það eru rútur á ferð-
inni eða eitthvað svoleiðis er sjálf-
sagt að opna. Við erum líka mjög
liprar að opna ef það er einhver sem
vill kaupa eitthvað en kemst ekki á
opnunartíma. Ljómalind er sérstök
verslun með vörur sem fást kannski
ekki hvar sem er og við leggjum okk-
ur fram um að fólk sem vill versla
við okkur geti gert það,“ segir hún
að endingu.
arg
Vörukynning og matarsmakk í
Ljómalind á föstudaginn
Tilvalin jólagjöf fyrir yngstu afkomendurna. Í Ljómalind er að finna fallegt handverk. Sælkera sinnep Svövu er ný vara í Ljómalind.
Sigurbjörg Kristmundsdóttir verslunarstjóri í Ljómalind.
Þessa fallegu lunda er hægt að kaupa í Ljómalind. Flottir sveinkar fyrir jólin. Fallega skreyttir gafflar og skeiðar.
Sultur frá Hundastapa saman í pakka. Íslenskt fæðubótarefni. Fallegt hálsmen úr bláskel.