Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 42
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 201942
Umhverfisviðurkenningar Akra-
neskaupstaðar voru veittar nýver-
ið og í flokki fallegra einkalóða
var Brekkubraut 25 á Akranesi
veitt viðurkenning. Þar búa hjónin
Þóra Þórðardóttir og Helgi Helga-
son og hafa gert undanfarin fjög-
ur ár. „Þegar við fluttum inn var
hér gamall og fallegur garður. Hér
voru pallar og stétt, greinilega frá
sitt hvorum tímanum, gamalt timb-
urgróðurhús, rosalega fallegt en al-
veg að fúna í sundur,“ segja Þóra
og Helgi í samtali við Skessuhorn.
„Það var greinilegt að hér hafði ver-
ið ræktun og mikill garðaáhugi, því
garðurinn var snyrtilegur og fínn.
Fólk sem er ekki svona galið eins
og við hefði bara haldið honum,“
segir Þóra létt í bragði. „Eftir eitt
ár hérna hófumst við handa við að
taka garðinn í gegn. Við vorum að
endurnýja húsið að innan og vild-
um drena með húsinu að utan. Til
þess þurfti gröfu sem mokaði með-
fram öllu húsinu og þá lá beint við
að nýta tækifærið, taka pallana og
stéttina, skipta um jarðveg og taka
bara allt í gegn,“ segir Þóra. Helgi
bætir því við að samhliða hafi þau
notað tækifærið, lagt lagnir í bíl-
skúrinn, heitan pott og leitt affall-
ið frá húsinu í gróðurhúsið. „En
þegar búið var að taka garðinn all-
an upp var svo mikil rigning, þar-
síðasta haust, að það var ekki hægt
að halda áfram. Garðurinn var upp-
vaðinn heilan vetur. En vorið eftir
fengum við gröfuna aftur og héld-
um áfram. Fyrsta verkið var bara
að komast upp úr drullunni,“ segir
Þóra og brosir.
Allt heilt notað aftur
Hjónin vildu nýta sem mest af því
sem féll til við endurnýjun garðs-
ins. Allt sem var heilt var notað
aftur og hefur sitt hlutverk í nýja
garðinum. „Við söfnuðum spýtun-
um úr pallinum, naglhreinsuðum
þær, hreinsuðum hellurnar sömu-
leiðis og fengum gefins hellur úr
öðrum garði,“ segir Helgi. „Þau tré
sem voru felld voru söguð í eldi-
við, greinar þurrkaðar og kurlað-
ar. Við hentum engu efni sem hægt
var að nota,“ segir Þóra. Þá keyptu
þau sér nýtt gróðurhús, fóru í Um-
búðamiðlun og fengu gefins gölluð
fiskikör og röðuðu níu slíkum upp
í miðjan garðinn. Helgi klæddi þau
að utan með spýtunum úr gamla
pallinum og þar er nú stór hluti af
matjurtaræktun heimilisins. „Sumir
héldu að við værum orðin klikkuð
þegar við komum með hvert kar-
ið á fætur öðru inn í garð,“ segir
Þóra. „En þetta gerðum við til að
lyfta beðunum, til að þurfa ekki að
bogra yfir þeim, heldur getur mað-
ur bara setið á kantinum,“ segir
Helgi. Matjurtaræktunin er þann-
ig í miðju garðsins, sem er óvenju-
legt að sögn Þóru. „Yfirleitt er mat-
jurtarækt höfð á bakvið þar sem
enginn sér, en við erum með hana í
miðjum garðinum,“ segir Þóra.
Hringrásarkerfi
Auk þess að hafa endurnýtt allt
heillegt sem til féll við endurnýj-
un garðsins stefna Þóra og Helgi
að því að garðurinn verði eins sjálf-
bær og mögulegt er. Allur lífrænn
úrgangur sem fellur til á heimilinu
og í garðinum er færður til moltu-
gerðar, sem er í tunnu á bakvið
gróðurhúsið. „Við erum að búa til
hringrásarkerfi og markmiðið er að
garðurinn verði sjálfbær. Við búum
til okkar eigin moltu sem við setj-
um undir allt sem við ræktum, sem
er kannski skýringin á því af hverju
allt vex svona rosalega eins og í
sumar. Það eina sem við hendum
er illgresið, en þó er ekki mikið af
því vegna þess að við sækjum gæða-
mold til Reykjavíkur. Við vinnum
bæði fyrir sunnan og látum okk-
ur hafa það að koma við í Gæða-
mold af og til og kaupa almennilega
mold,“ segir Þóra. „En við reynum
að nýta allt sem til fellur, eins mik-
ið og hægt er. Við viljum vera um-
hverfisvæn,“ bætir hún við.
Félagsskapur
garðáhugafólks
Fyrir tveimur árum stofnaði Þóra
Garðyrkjudeild Akraness og gegn-
ir formennsku þar, en deildin er
undirdeild Garðyrkjufélags Íslands.
„Við höldum tvo viðburði á ári.
Á vorin er plöntuskiptadagur þar
sem fólk kemur saman og skiptist á
plöntum sem það ýmist hefur for-
ræktað eða grisjað úr sínum garði.
Það sem verður afgangs er sett í
almenning sem hver sem er má
koma og sækja í. Seinni viðburður-
inn er garðaganga í ágúst. Þá hitt-
umst við á ákveðnum stað, göngum
á milli og skoðum nokkra garða,“
segir Þóra. „Þessi félagsskapur er
vonandi kominn til að vera,“ segir
hún. „Ef til stendur að koma upp
nýjum og betri ræktunarstað á veg-
um Akraneskaupstaðar. Þá er garð-
yrkjudeildin reiðubúin að koma að
því með einhverjum hætti. Af því
við erum partur af Garðyrkjufélagi
Íslands þá getum við fengið þaðan
fræðslufulltrúa til að koma og leið-
beina okkur. Það þarf að gera þetta
almennilega svo fólk fái áhuga og
fleiri fari að rækta ofan í sig,“ seg-
ir hún.
Hvetur til
matjurtaræktunar
Í matjurtagarðinum á Brekkubraut
rækta Þóra og Helgi alls konar mat-
jurtir; kúrbít og hvítlauk, paprikur,
tómata, jarðarber, rifsber, sólber,
hindber, klettasalat, brokkólí, spínat
og krydd eins og myntu, steinselju
og fleira. Liggur við að þau hjón-
in séu hætt að fara út í búð á sumr-
Hvetja alla til að rækta ofan í sig
- rætt við Þóru Þórðardóttur og Helga Helgason á Akranesi
Þóra Þórðardóttir og Helgi Helgason í garðinum sínum á Brekkubrautinni. Ljósm. kgk.
Garðurinn á Brekkubraut 25 í miklum blóma í ágústbyrjun.
Blómlegt í beðunum í lok maí.
Gróðurhúsið sem Þóra og Helgi settu upp er kynt með affallinu frá íbúðarhúsinu.