Skessuhorn - 13.11.2019, Síða 45
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 2019 45
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Viltu vinna
með börnum?
Leitað er eftir dagforeldrum til starfa á Akranesi
fyrir komandi haust.
Dagforeldrar starfa eftir reglugerð Félagsmálaráðuneytis
um daggæslu barna í heimahúsi. Dagforeldrar eru sjálf-
stæðir verktakar en Akraneskaupstaður hefur umsjón og
eftirlit með starfsemi þeirra.
Réttindanámskeið fyrir verðandi dagforeldra hefur verið
haldið af Námsflokkum Hafnarfjarðar og Akraneskaup-
staður niðurgreiðir hluta af námsgjaldi.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri á skóla- og
frístundasviði Akraneskaupstaðar í síma 433-1000,
einnig er hægt að senda fyrirspurnir
á netfangið skolifristund@akranes.is
Í ár eru 100 ár liðin frá stofn-
un Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga. Af því tilefni stendur
stjórn deildar hjúkrunarfræð-
inga á Akranesi og nágrenni
fyrir því á afmælisárinu að birta
greinar eftir hjúkrunarfræðinga
í Skessuhorni. Greinarnar hafa
verið birtar jafnft og þétt yfir
afmælisárið og í þeim hafa les-
endum getað fengið smá innsýn
í þau fjölbreyttu störf og áskor-
anir sem hjúkrunarfræðingar
fást við. Að þessu sinni kynn-
ir sig til leiks Lilja Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur á Akranesi.
Beint úr hjúkrun
í Ljósmæðraskólann
Ég heiti Lilja Jónsdóttir og ég bý
með dóttur minni hér á Akranesi.
Ég er fædd og uppalin á Akranesi
en bjó á höfuðborgarsvæðinu í
20 ár. Við mæðgur fluttum upp á
Skaga haustið 2001. Áhugamál mín
eru að fara á tónleika, í leikhús,
gera handavinnu og fara í ferðalög.
Við mæðgur höfum ferðast mik-
ið saman og fórum við m.a. í sigl-
ingu í Karabíska hafinu um síðustu
jól og áramót. Ég kláraði stúdents-
próf frá Fjölbrautaskóla Vestur-
lands vorið 1981 og fór þá í hjúkr-
unarfræði. Eftir að ég hafði útskrif-
ast sem hjúkrunarfræðingur fór ég
beint í Ljósmæðraskólann.
Ákveðin að verða
ljósmóðir
Ég hafði frá 12 ára aldri ver-
ið ákveðin að verða ljósmóðir og
ekkert annað en ljósmæðrastarf-
ið komst að. Á þessum árum var
möguleiki eftir stúdentspróf að
komast í Ljósmæðraskólann, en
þegar ég ætlaði að sækja um var
búið að breyta skólanum og það
þurfti hjúkrunarpróf til að kom-
ast inn. Á þessum tíma fannst mér
alltof mörg ár sem myndu líða þar
til ég kæmist í draumastarfið. Ég
sótti þá bæði um Hjúkrunarskól-
ann, sem tók heil þrjú ár, og til vara
sótti ég um Kennaraskólann. Ég
fékk bréf þess efnis að ég kæmist
inn í Hjúkrunarskólann, og sá ekki
eftir því. Þetta var æðislegur tími í
náminu og eignaðist ég marga vini
í skólanum og kynntist fullt af frá-
bæru fólki sem var að kenna. Ég
var líka svo heppin að fá að búa á
heimavist meðan ég var í skólanum
og var það frábær upplifun. Það
var mikið verknám sem og ég varð
strax heilluð af hjúkrunarstarfinu.
Ég vann sem starfsstúlka á sjúkra-
húsinu hér í nokkur sumur og sem
hjúkrunarnemi og hjúkrunarfræð-
ingur. Vegna aðstæðna á þessum
tíma var hagstæðast að fara strax
eftir hjúkrun í Ljósmæðraskólann.
Eftir útskrift fór ég að vinna sem
ljósmóðir á fæðingargangi, sæng-
urkvennagangi og í mæðraskoðun.
Árið 2008 fór ég í Kennaraháskól-
ann og tók kennsluréttindi. Þegar
ég flutti upp á Skaga byrjaði ég að
vinna á handlækningadeildinni og
vann þar í nokkur ár. Einnig vann
ég á slysadeildinni og síðustu ár hef
ég verið í heimahjúkrun og skóla-
hjúkrun þar sem ég sinni Grunda-
skóla og Heiðarskóla. Einnig er ég
að vinna í mæðraskoðun og ung-
barnavernd.
Meira en 800 ljósubörn
Það er svo margt sem er skemmti-
legt við starfið. Ég vinn með góðu
samstarfsfólki og kynnist fólki á
öllum aldri. Ég uppsker oft mik-
ið þakklæti frá skjólstæðingum
mínum og það gefur mér mikið. Í
gegnum árin er maður oft að hitta
aftur sama fólkið. Sem dæmi þegar
ég var að vinna sem ljósmóðir tók
ég aftur og aftur á móti börnum hjá
sömu konunni, með einhverjum
árum á milli, sem var algjör tilvilj-
un. Ég á meira en 800 ljósubörn og
ég fæ ennþá fréttir af sumum, sem
er yndislegt. Sum þeirra eru börn
ættingja og vina. Svo er ég kannski
að sinna langömmu eða langafa
í heimahjúkrun og skoða lang-
ömmu- eða langafabarnið í ung-
barnavernd, sem er mjög skemmti-
legt. Það sem er mest krefjandi við
starfið er þegar fólki líður mjög illa
og það er erfitt að lina t.d. verki og
andleg veikindi. Það er margt sem
ég hef séð og orðið vitni að sem er
mjög erfitt. Það hefur líka verið
erfitt að hjúkra mikið veikum ætt-
ingjum sem hafa legið banaleguna.
Þá er maður bæði ættingi og starfs-
maður, sem getur verið flókið.
Skólahjúkrun
og heimahjúkrun
Hjúkrunarfræðimenntunin og
starfið býður upp á óendanleg-
an fjölbreytileika. núna vinn ég á
heilsugæslunni í 90% vinnu og þar
er unnið mjög fjölbreytt starf. Mitt
starf þar skiptist þannig að ég vinn
við skólahjúkrun og er með að-
stöðu í Grundaskóla. Ég vinn svo
þriðju hverja helgi í heimahjúkr-
un og fer þá inn á heimili fólks og
sinni þeim skjólstæðingum í þeirra
umhverfi, þá er ég eins og gest-
ur. Sem skólahjúkrunarfræðing-
ur í Grundaskóla og Heiðarskóla,
sem er mjög fjölbreytt starf, sinni
ég m.a. skólaskoðunum, bólusetn-
ingum og fræðslu og sinni börn-
um sem meiða sig á skólatíma. Ég
sit einnig fundi sem tengjast skóla-
starfinu. Ég vinn líka í mæðraskoð-
un og sinni ungbarnavernd, þar
sem ég fer inn á heimili fólks sem
er nýbúið að eignast barn. Það er
oftast fólk sem ég hef hitt á með-
göngunni og fæ að fylgjast með
fjölskyldunni þar til barnið verður
um níu vikna gamalt.
Allt frá árinu 1988 hefur Sundfélag
Akraness staðið fyrir útvarpsdag-
skrá fyrstu helgina í aðventu und-
ir nafninu Útvarp Akranes. Engin
undantekning er á slíku í ár en út-
varpað verður að þessu sinni dag-
ana 29. nóvember til 1. desember.
Í tilkynningu frá útvarpsstjórn seg-
ir að venju verði boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá en undirbúning-
ur er í fullum gangi þessa dagana.
„Með Útvarpi Akraness hefst und-
irbúningur jólanna af fullum krafti
hjá mörgum Skagamönnum. Ef
einhverjir vilja leggja til efni/hafa
þátt, hafið þá samband við Sund-
félag Akraness á netfangið sund-
felag@sundflelag.com.
„Á þeim árum sem Útvarp Akra-
ness hefur verið starfrækt hefur
fjöldi Akurnesinga og gesta kom-
ið við sögu, ýmist sem þáttagerð-
arfólk eða viðmælendur. Á síðustu
árum hefur 5. bekkur grunnskól-
anna verið með þátt í útvarpinu og
eru sum barnanna nú vaxin úr grasi
og komin með sitt hlutverk í samfé-
laginu. Enginn vafi er á því að stór
hluti af því efni sem flutt hefur ver-
ið í útvarpinu er merkileg heimild
um bæjarlífið á Akranesi auk þess
sem þar er að finna margs konar
skemmtilegan sögulegan fróðleik,
sem mikilvægt er að varðveita,“
segir í tilkynningu. mm
Á Vökudögum Akraneskaupstaðar
hlaut Útvarp Akraness menningar-
verðlaun Akraneskaupstaðar sem er
kærkomin viðurkenning fyrir áratuga
starf.
Undirbúningur á fullu fyrir
útsendingu Útvarps Akraness
Lilja Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á Akranesi ásamt dóttur sinni Bjarneyju
Helgu Guðjónsdóttur, þegar sú síðarnefnda varð stúdent.
Hjúkrunarfræðistarfið býður upp
á endalausan fjölbreytileika
Dagur í lífi
hjúkrunarfræðings
Einn dagur í lífi mínu getur sem
dæmi litið svona út: Ég byrja daginn
í Grundaskóla og við ólöf Lilja Lár-
usdóttir hjúkrunarfræðingur gerum
lífstílsmat á 4. bekk. Við mælum hæð
og þyngd, tökum sjónpróf og lífstíl-
smat þar sem við spyrjum spurn-
inga sem meta m.a. hvernig börn-
unum líður í skólanum, svefnvenj-
ur, tannburstun og fleira. Svo sinni
ég börnum sem hafa komið eftir að
hafa meitt sig í skólanum. Ef það er
eitthvað alvarlegt fara börnin niður
á heilsugæslu. Klukkan eitt fer ég á
nemendaverndarfund í Heiðarskóla
og bóluset starfsfólk við inflúensu.
Ég fer svo niður á Akranes þar sem
ég fer í tvær vitjanir hjá nýfæddum
börnum og fjölskyldum þeirra. Eftir
það fer ég á heilsugæsluna og skrái
það sem ég er búin að vera að gera,
færi inn bólusetningar og vigtina á
ungabörnunum. Ég fer eftir vinnu
til mömmu minnar sem þarf oft
aðstoð þar sem hún er 84 ára og á
erfitt með að gera suma hluti sem
við systkinin og dóttir mín aðstoð-
um hana við. Seinni partinn fer ég
í leikfimi hjá Ernu Sigurðardótt-
ur, sem mér þykir alveg frábært og
lykilatriði til að líða vel. Eftir tíu ár
verð ég trúlega hætt að vinna og
vona að ég eigi eftir að geta sinnt
mínum áhugamálum.
Lilja Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Viltu efla þig og styrkja?
Viltu styrkja mannauðinn og efla starfsemina?
Ertu að hugsa um símenntun?
Kíktu inn á nýja heimasíðu og skoðaðu hvort þú
finnir ekki eitthvað við þitt hæfi.
www.simenntun.is
Námskeið
Endurmenntun
Fyrirtækjaráðgjöf
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9