Skessuhorn - 13.11.2019, Page 52
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 201952
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Á Vesturlandi eiga heima samtals
um 940 einstaklingar með 75%
örorkumat og endurhæfingar-
mat. Þetta eru karlar og konur á
ýmsum aldri sem búa við skerta
starfsorku vegna andlegra eða
líkamlegra sjúkdóma, áfalla eða
slysa. Aðstæður þessa fólks eru
æði misjafnar, bæði persónulega
og félagslega. Eitt á þetta fólk þó
sennilega sameiginlegt sem hóp-
ur. Enginn hefur valið sér þetta
hlutskipti og allir vildu vera í
annarri stöðu.
Ójöfnuður
Öryrkjar hafa misserum saman
leitað eftir sanngjörnum leiðrétt-
ingum á kjörum sínum, að dregið
sé úr hróplegum ójöfnuði þann-
ig að hver og einn geti búið við
sæmandi atlæti, félagslega og fjár-
hagslega. Þeir krefjast lífskjara-
sáttmála eins og annað fólk í sam-
félaginu. Þeir vilja vera þátttak-
endur, veitendur og neytendur á
öllum stigum og á eigin forsend-
um.
Á vettvangi stjórnmálanna eru
kjör og viðmót gagnvart öryrkj-
um vissulega talsvert til umfjöll-
unar um þessar mundir en í verki
þokast lítið. Fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár
er enn eitt reiðarslagið, gefur ör-
yrkjum enga nýja von. Þrátt fyrir
endurteknar og hástemmdar yf-
irlýsingar ríkisstjórnarinnar, hlý
orð og fögur loforð, þá verður ör-
yrkjum boðið upp á það sama árið
2020, áfram kalda sturtu.
Starfshópur félagsmálaráð-
herra, skipaður ágætu fólki, skil-
aði af sér skýrslu í vor með tillög-
um en engri niðurstöðu. Traust á
milli aðila skorti, tortryggni tals-
manna öryrkja réði því að ekki var
hægt að ljúka stórum áfanga.
Starfsgetumat
Skýringar ráðherra á töfum á um-
bótum gagnvart öryrkjum voru
lengi framan af þær, að unnið væri
að kerfisbreytingum með svokall-
að starfsgetumat að leiðarljósi.
Samkvæmt skilgreiningu úr fyrr-
nefndri skýrslu ráðherra er starfs-
getumat mat á getu einstaklings til
starfa að gefnum tilteknum kröf-
um og við tilteknar aðstæður. Ör-
yrkjum finnst skorta á trúverð-
ugleika þessarar hugmyndafræði,
hvort sem það snýr að stjórnvöld-
um eða vinnumarkaði. Þeir óttast
að raunverulegir hagsmunir þeirra
verði fyrir borð bornir. Vísað er til
misjafnrar reynslu annarra þjóða og
m.a. til þekktrar breskrar heimilda-
myndar sem sýnd var hér á landi.
Hugtakið starfsgetumat eitt og sér
hefur öðlast neikvætt inntak í hug-
um flestra.
Lífsgæðamat
Stjórnvöld þurfa að bregðast við á
enn ferskari og sveigjanlegri hátt en
hingað til í samskiptum við öryrkja
og hafa hugfast að orðfæri og inn-
tak skiptir máli. Hugtakið lífsgæði
ætti að vera leiðarstef.
Fyrir hóp öryrkja getur mat á
getu til starfa í atvinnulífinu verið
hluti af bættum lífsgæðum en það
gildir ekki um alla. Við eigum því
miklu frekar að ræða um lífsgæða-
mat fremur en bara starfsgetumat
þegar þessi málefni öryrkja eru
annars vegar.
Stjórnvöld þurfa að flýta för,
skapa traust og ráðast í gerð raun-
verulegs lífsgæðasamnings við ör-
yrkja. Fyrir því munum við jafn-
aðarmenn áfram berjast sem hing-
að til.
Guðjón S. Brjánsson.
Höf. er alþingismaður fyrir Sam-
fylkinguna í NV kjördæmi.
Ég veit að hugmynd mín um eign-
arrétt, er nauðsynleg, og vil ég skýra
hana nánar. Um eignarréttarákvæði
í núverandi stjórnarskrá, grein 63
segir: „Eignarrétturinn er friðhelg-
ur, engan má skylda til að láta eign
sína af hendi nema almenningsþörf
krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og
komi fullt verð fyrir.“ Seinni hluti
greinarinnar er þannig: „Með lög-
um má takmarka erlenda aðila til
að eiga fasteignarréttindi eða hluta
í atvinnufyrirtæki hér á landi.“
Þessar staðreyndir sýna að for-
ríkur Englendingur gat keypt tugi
bújarða fyrir austan af landi okkar
sem eru samtals fleiri hundruð fer-
kílómetrar að flatarmáli. Einnig má
minna á þegar Kínverji vildi kaupa
Grímsstaði á Fjöllum, eina af land-
mestu jörðum landsins.
Eignarrétt bænda á óræktuðu
landi verður að afnema, en nýt-
ingarrétt þeirra til beitar búfjár
skal heimila ef umhverfisráðuneyti
landsins samþykkir það og þá undir
eftirliti þess. Ekkert hamlar bænd-
um að sækja um land til ræktunar
eða öðrum til annarra framkvæmda
á landi, en það skal vera í samráði
við umhverfisráðuneytið.
Það er fáránlegt að bændabýli í
efstu sveitum Suðurlands, Vestur-
lands, norðurlands og Austurlands
telja sig eiga allt land á móti öðrum
að sýslumörkum yfir öræfin, jafn-
vel jökla. Tökum dæmi: Húsafells-
bændur eiga land að sýslumörk-
um Borgarfjarðarsýslu og Húna-
vatnssýslu. Og því eiga efstu bæir
í suðri allt land að Borgarfjarðar-
sýslu. Þótt nokkur hluti lands okk-
ar sé sameiginleg eign þjóðarinnar,
svo sem Þingvellir, þjóðgarður og
hluti Snæfellsness auk Skaftafells,
þá er það aðeins brotabrot af landi
okkar.
Vatn er grundvöllur alls lífs á
jörðinni. Að landeigendur sam-
kvæmt núverandi eignarréttar-
ákvæðum geti talist eigendur vatns
er endaleysa. Að nokkrir landeig-
endur (t.d. bændur) skuli hafa rétt
til að krefjast greiðslu fyrir vatn
sem rennur um óræktað land nærri
býli þeirra eða stöðuvötnum upp
í óbyggðum og heitt vatn (hverir)
sem kemur djúpt úr iðrum jarðar
er vægast sagt óþolandi. Það sýnir
vitleysuna í þessu að bændur geti
krafið ríkissjóð um ótrúlega háar
fjárhæðir fyrir virkjun fallvatna
upp í óbyggðum eins og gerðist við
Blöndu og nú er sama uppi vegna
virkjunar við Kárahnjúka.
Í grein minni Stjórnarskrárum-
ræðan, segi ég að öll mannanna
verk séu séreign þeirra sem skópu
þau, en allar náttúruauðlindir séu
sameign þjóðarinnar. Það sem að
ofan greinir er rökin fyrir nauðsyn
þess að svo sé.
Ég styð frumvarp Stjórnlaga-
ráðs frá 2011 um nýja stjórnarskrá
í meginatriðum en alls ekki 13.
grein hennar um eignarrétt því það
er tekið svo til óbreytt úr núver-
andi stjórnarskrá, einnig 34. grein
um náttúruauðlindir þar sem segir:
„Auðlindir í náttúru Íslands, (sem
ekki eru í einkaeigu), eru sameigin-
leg og ævarandi eign þjóðarinnar.
Að öðru leiti er 34. greinin frábær.
Hafsteinn Sigurbjörnsson.
Höf. er eldri borgari á Akranesi.
Á fyrsta degi októbermánaðar var í Iðnó í Reykjavík
haldinn stofnfundur nýs félags sem ber heitið Arfur
Þorsteins frá Hamri. Markmið félagsins er að sýna arf-
leifð Þorsteins ræktarsemi sem og þeim menningararfi
sem hann tók í fang sér. Félagið mun standa fyrir ýms-
um viðburðum, einkum á ævislóðum Þorsteins í Borg-
arfirði, og á höfuðborgarsvæðinu.
Fimmtudaginn 14. nóvember nk. stendur félagið
fyrir Þorsteinsvöku á Sögulofti Landnámssetursins í
Borgarnesi. Er hún jafnframt eins konar framhalds-
stofnfundur félagsins. Að þessu ljóða- og sagnakvöldi
koma einstaklingar úr Borgarnesi og Reykjavík. Flutt
verða stutt ávörp og lesin valin ljóð skáldsins. Til máls
taka: Guðrún nordal, Þórarinn Jónsson, Vigdís Gríms-
dóttir, Theódór Þórðarson, Ástráður Eysteinsson, Sig-
urbjörg Þrastardóttir, Valdimar Tómasson og Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir.
Dagskráin hefst kl. 20 og stendur í rúma klukku-
stund, aðgangur er ókeypis.
-fréttatilkynning
Þorsteinsvaka á Sögulofti
Landnámssetursins
Ákvæði um eignarrétt
nauðsynlegt í nýja
stjórnarskrá
Pennagrein
Lífsgæðasamning
fyrir öryrkja