Skessuhorn - 13.11.2019, Síða 55
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 2019 55
Meistaraflokkur Ungmennafélags
Grundarfjarðar í blaki tók á móti
liði Völsungs frá Húsavík laug-
ardaginn 9. nóvember síðastlið-
inn. Liðin byrjuðu bæði af krafti
og nokkuð jafnræði var með þeim
í fyrstu hrinu þar sem þau skipt-
ust á að leiða. Það voru þó gest-
irnir sem voru öflugri og sigruðu
hrinuna 25-21 og tóku því foryst-
una 1-0. Í annarri hrinu voru gest-
irnir ákveðnari og leiddu mest alla
hrinuna og kláruðu hana svo 25-20
og komust í 2-0. Grundfirsku stelp-
urnar voru því komnar með bakið
upp að vegg fyrir þriðju hrinuna
og voru ákveðnar að bíta frá sér.
nokkuð jafnræði var með liðunum
en aftur voru gestirnir ívið sterkari
á endasprettinum og kláruðu þriðju
hrinu 25-22 og unnu því leikinn
3-0 og fóru með öll stigin norður.
UMFG situr því í næstneðsta sæti
1. deildar og á heimaleik gegn Ými
næsta fimmtudag en Ýmir er í öðru
sæti og hefur unnið alla fimm leiki
sína til þessa. tfk
Snæfellskonur máttu játa sig sigr-
aðar gegn KR, 57-81, þegar liðin
mættust í Domino‘s deild kvenna í
Stykkishólmi á þriðjudaginn í síð-
ustu viku. Fyrri hálfleikur var nokk-
uð jafn en í þeim síðari tóku gest-
irnir öll völd á vellinum og unnu að
lokum sannfærandi sigur.
KR skoraði fyrstu stig leiksins og
leiddi framan af fyrsta leikhluta, en
Snæfellskonur voru þó aldrei nema
örfáum stigum á eftir. Þær jöfnuðu
síðan metin í 15-15 seint í leikhlut-
anum en KR-ingar áttu lokaorðið
og leiddu með 20 stigum gegn 15
eftir upphafsfjórðunginn. Snæfell
kom sér að nýju upp að hlið KR
strax í upphafi annars leikhluta og
þegar hann var hálfnaður var stað-
an jöfn, 25-25. En gestirnir náðu
góðum endaspretti í fyrri hálfleik
sem skilaði þeim tólf stiga forystu
í hléinu, 30-42.
Í þriðja leikhluta tóku KR-kon-
ur öll völd á vellinum, héldu Snæ-
felli í skefjum og höfðu 19 stiga for-
skot fyrir lokafjórðunginn. Þar með
lögðu þær grunn að sigrinum, því
Snæfell náði ekki að ógna forystu
gestanna í fjórða leikhluta. Að lok-
um fór svo að KR sigraði með 81
stigi gegn 57 stigum Snæfells.
Gunnhlidur Gunnarsdóttir var
atkvæðamest í liði Snæfells með
16 stig, tólf fráköst og þrjú varin
skot. Emese Vida kom henni næst
með 14 stig og 17 fráköst, Anna
Soffía Lárusdóttir og Veera Pirtt-
inen skoruðu sjö stig hvor, Chand-
ler Smith var með fimm stig, Re-
bekka Rán Karlsdóttir fjögur,
Helga Hjördís Björgvinsdóttir þrjú
og Tinna Guðrún Alexandersdóttir
skoraði eitt stig.
Sanja Orazovic var stigahæst KR-
kvenna með 24 stig og átta fráköst
að auki. Danielle Rodriguez skor-
aði 15 stig, gaf sex stoðsendingar og
tók fimm fráköst og Sóllilja Bjarna-
dóttir var með ellefu stig.
Eftir leikinn er Snæfell í sjötta
sæti deildarinnar með fjögur stig,
jafn mörg og Keflavík í sætinu fyr-
ir ofan en hefur leikið einum leik
fleira. næsti leikur Snæfells er ein-
mitt viðureign þessara tveggja liða.
Þau mætast í Keflavík í kvöld, mið-
vikudaginn 20. nóvember.
kgk
Skallagrímskonur máttu játa sig
sigraðar gegn Íslandsmeisturum
Vals, 60-82, þegar liðin mættust í
Domino‘s deild kvenna. Leikið var í
Borgarnesi á laugardagskvöld.
Leikurinn fór hægt af stað. Vals-
konur skoruðu fyrstu fimm stigin og
þannig var staðan þegar fyrsti leik-
hluti var hálfnaður. Skallagríms-
konur jöfnuðu í 5-5 en eftir það
tóku Valskonur góða rispu og leiddu
með 17 stigum gegn átta eftir upp-
hafsfjórðunginn. Íslandsmeistararn-
ir höfðu yfirhöndina í öðrum leik-
hluta, skoruðu 17 stig gegn 11 stig-
um Skallagríms og fóru með 15 stiga
forskot inn í hálfleikinn, 19-34.
Skallagrímskonur minnkuðu
muninn í tíu stig í upphafi síðari
hálfleiks en eftir það sýndu Vals-
konur mátt sinn og megin. Jafnt og
þétt juku þær forskotið á nýjan leik
og voru komnar með 26 stiga forystu
fyrir lokafjórðunginn, 33-59. Skalla-
grímskonur minnkuðu muninn í 18
stig í fjórða leikhluta en komust ekki
nær. Valskonur voru einfaldlega einu
númeri of stórar og sigruðu að lok-
um með 22 stigum, 60-82.
Keira Robinson var atkvæða-
mest á báðum endum vallarins í liði
Skallagríms. Hún skoraði 29 stig,
tók níu fráköst og stal hvorki fleiri
né færri en átta boltum. Emilie Hes-
seldal kom henni næst með tólf stig,
tók 13 fráköst og gaf fimm stoðsend-
ingar. Maja Michalska skoraði sex
stig, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var
með fimm stig og átta fáköst, Árnína
Lena Rúnarsdóttir og Clara Cold-
ing-Poulsen skoruðu þrjú stig hvor
og Gunnhildur Lind Hansdóttir
skoraði tvö stig.
Helena Sverrisdóttir skoraði 20
stig og tók 14 fráköst í liði Vals.
Kiana Johnson skoraði 20 stig einnig
og gaf ellefu stoðsendingar, Hallveig
Jónsdóttir skoraði 16 stig og Dag-
björt Dögg Karlsdóttir skoraði tólf.
Eftir sjö leiki situr Skallagrímur
í fjórða sæti deildarinnar með átta
stig, jafn mörg og Haukar í sæt-
inu fyrir ofan. Þessi tvö lið mætast
í næstu umferð, sunnudaginn 24.
nóvember næstkomandi. Sá leikur
fer fram í Hafnarfirði. kgk
Snæfellingar biðu lægri hlut gegn
Sindra, 88-73, þegar liðin mætt-
ust í 1. deild karla í körfuknattleik á
föstudagskvöld. Leikið var á Höfn í
Hornafirði.
Jafnræði var með liðunum fram-
an af fyrsta leikhluta og þau skiptust
á að leiða. Snæfellingar höfðu und-
irtökin seint í upphafsfjórðungn-
um og leiddu með 21 stigi gegn 16
að honum loknum. Heimamenn
minnkuðu muninn snemma í öðr-
um leikhluta og leikurinn var í járn-
um næstu mínúturnar. Um miðjan
leikhlutann náði Sindri smá rispu
og nokkurra stiga forystu. Þeir voru
sterkari það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks og leiddu með tólf stigum
í hléinu, 52-40.
Það var síðan í þriðja leikhluta
sem leiðir skildu. Sindramenn byrj-
uðu síðari hálfleikinn af miklum
krafti og voru snemma komnir 21
stigi yfir. Því forskoti héldu þeir um
það bil óbreyttu allan leikhlutann
og leiddu með 20 stigum fyrir loka-
fjórðunginn, 74-54. Snæfellingar
náðu aðeins að klóra í bakkann á
lokamínútum leiksins. Þeir minnk-
uðu muninn í ellefu stig þegar þrjár
mínútur voru eftir á klukkunni en
heimamenn svöruðu og sigruðu að
endingu með 15 stigum, 88-73.
Ingimar Þrastarson var atkvæða-
mestur í liði Snæfells með 21 stig
og átta fráköst. Pavel Kraljic skor-
aði 18 stig og tók sex fráköst,
Brandon Cataldo var með ellefu
stig, Aron Ingi Hinriksson skoraði
tíu og Ísak Örn Baldursson var með
sex. Benjamín ómar Kristjánsson,
Eiríkur Már Sævarsson og Guðni
Sumarliðason skoruðu tvö stig hver
og Viktor Brimnir Ásmundarson
lauk leik með eitt stig.
Í liði heimamanna var Arnar
Geir Líndal stigahæstur með 19
stig og tók hann sex fráköst að auki.
Árni Birgir Þorvarðarson skoraði
17 stig og tók fimm fráköst, Ignas
Dauksys skoraði 15 stig og Stefan
Knazevic skoraði ellefu stig og tók
sjö fráköst.
Úrslit leiksins gera það að verk-
um að Snæfell situr á botni deild-
arinnar með tvö stig eftir sex leiki,
jafn mörg og næstu þrjú lið fyr-
ir ofan sem öll eiga leik til góða á
Hólmara. næst leika Snæfellingar
á föstudaginn, 15. nóvember, þegar
þeir mæta Álftnesingum í Stykkis-
hólmi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Verma botnsætið
Keira Robinson í baráttunni í leiknum gegn Val. Ljósm. Skallagrímur.
Íslandsmeistararnir
of stór biti
Erfið byrjun hjá Grundfirðingum
Gestirnir sterkari í síðari hálfleik
Anna Soffía Lárusdóttir gerir hér atlögu að körfu KR-inga. Ljósm. sá.