Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - jan. 2020, Side 14

Læknablaðið - jan. 2020, Side 14
14 LÆKNAblaðið 2020/106 R A N N S Ó K N færri þunglyndis- og kvíðaeinkenni og upplifa meiri félagslega færni eftir meðferð. Skor sjúklinga á öllum kvörðum hækka við eftirfylgd ári eftir meðferð en aðeins finnst marktækur munur á kvíða- (meðaltals- munur 3,058, p<0,001) og þunglyndiseinkennum (meðaltalsmun- ur 3,381, p<0,001). Skor sjúklinga haldast síðan nokkuð stöðug frá komu í eins árs eftirfylgd (T4) og komu í eftirfylgd tveimur árum seinna (T5) á öllum mælikvörðum. Ekki er marktækur munur á skorum milli eins árs eftirfylgdar og þriggja ára eftirfylgdar á neinum af mælikvörðunum. Vinnufærni Niðurstöður um vinnufærni eru byggðar á mati sjúklinganna um vinnufærni sína fyrir og eftir meðferð. Vinnugeta hópsins í heild fór úr 36% 6 vikum fyrir meðferð í 47% eftir meðferðina og 51% í eins árs eftirfylgd og í 57% vinnufærni við þriggja ára eftirfylgd. Þegar skoðaður er munur á sjúklingum sem snúa aftur til vinnu eftir því hvort þeir skora undir eða yfir klínísku viðmiði á vinnukvarða FABQ (FABQ-W) sýna niðurstöður úr kí-kvaðrat prófi að þeir sem skora undir klínísku viðmiði á FABQ-W (<29) eru marktækt líklegri til að snúa aftur til vinnu eða telja sig vinnu- færa á öllum mælipunktum (T1: χ2(1, N = 105) = 16,97, p<0,001, ф = .402, T2: χ2(1, N = 105) = 21,11, p<0,001, ф = .448, T3: χ2(1, N = 105) = 10,56, p<0,001, ф = .320, T4: χ2(1, N = 105) = 21,58, p<0,001, ф = .498, T5: χ2(1, N = 105) = 24,881, p<0,001 ф = .605) (sjá mynd 2). Áhrifa- stærðir benda til að skor á FABQ-W hafi töluverð áhrif á viðhorf til vinnufærni. Niðurstöður úr kostnaðarnytjagreiningu Í greiningunni er kostnaðurinn áætlaður til þriggja ára frá því að meðferðinni á Reykjalundi lauk. Framtíðarávinningurinn er afvaxtaður með 5% afvöxtunarstuðli. Kostnaður ef ekki kæmi til meðferðar á Reykjalundi, það er af hefðbundinni meðferð, er áætlaður út frá meðaltalskostnaði fyrir meðferð. Í greiningunni er gert ráð fyrir því að meðaltalskostnaðurinn á ársgrundvelli hald- ist óbreyttur þau þrjú ár sem hann er áætlaður. Kostnaðurinn við hefðbundnu meðferðina er einnig afvaxtaður með 5% afvöxtun- arstuðli. Ástæða þess að stuðst er við 5% afvöxtunarstuðul er að horft er til íslenskra aðstæðna og eins skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, þar sem eðlileg ávöxtunarkrafa samfélagslegra verkefna á Íslandi er 5% á föstu verðlagi.37 Áætlaður kostnaður á hvern einstakling ef ekki kæmi til endur- hæfingar eftir þrjú ár var 1.329.529 kr. en með innlögn á verkjasvið Reykjalundar var kostnaðurinn eftir þrjú ár áætlaður 981.613 kr. Endurhæfing á Reykjalundi var því ódýrari út frá samfélagslegu sjónarhorni fyrir hvern einstakling sem nemur 347.916. kr. á verð- lagi 2018 (vísitala neysluverðs okt. 2018) þegar framtíðarávinning- ur og kostnaður hefur verið afvaxtaður með 5% afvöxtunarstuðli. Samkvæmt töflu III er meðferð á Reykjalundi ódýrari en hefð- bundin meðferð út frá samfélagslegu sjónarhorni eftir þrjú ár frá meðferð sem nemur 347.916 kr. á einstakling. Verkjameðferðin skil- aði einnig aukningu í gæðaárum (QALY) um 0,15 að þremur árum liðnum fyrir hvern einstakling. Ef tímaramminn var lengdur án þess að breyta öðrum forsendum varð endurhæfingin á Reykja- lundi hagkvæmari og skilaði 5 milljónum eftir 10 ár og tæplega 12 milljónum út lífið og 0,97 gæðaárum út lífið. 2010060577 og VSN 2003060024/03.1) og upplýsinga var aflað frá Tryggingastofnun (TR), Sjúkratryggingum (SÍ) og úr lyfjagagna- grunni Embætti landlæknis. Niðurstöður Allir sjúklingarnir fengu hefðbundna þverfaglega verkjameðferð. Meðalaldur sjúklinganna var 38,2 ár og 65% þeirra voru konur. Um 36% sjúklinga mátu sig vinnufæra við upphaf meðferðar. Tæp 30% þeirra fengu lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins, (15% ör- orkulífeyri og 14% endurhæfingarlífeyri) og 31% áttu óuppgerð slysamál gagnvart tryggingafélögum. Langflestir skjólstæðinga verkjasviðs eru með þrálát bakvandamál (tæplega helmingur) og í rannsókninni höfðu 46% sjúklinganna haft verki í 5 ár eða lengur. Tæplega helmingur sjúklinganna sem einnig voru að glíma við einkenni kvíða og/eða þunglyndis tóku verkjalyf daglega en til samanburðar um fjórðungur (24%) þeirra sem ekki voru með þessi einkenni, sjá lýðfræðilegar upplýsingar í töflu I. Niðurstöður úr dreifigreiningu með endurteknum mælingum sýndu marktæk megináhrif á öllum mælikvörðum frá komu á göngudeild og til komu í þriggja ára eftirfylgd (tafla II). Sjúklingar upplifa minni verki, minni ótta og hliðrun tengda vinnufærni, Tafla I. Lýðfræðilegar upplýsingar um þátttakendur eftir meðferðarhópum og klínísk skilmerki, hlutfall %. Heildar- hópur (N=112) HAM meðferðar- hópur (N=39) HAM samanburðar- hópur (N=38) Ekki HAM skilyrði (N=35) Lýðfræðiupplýsingar Kyn (kona) 65 57,5 67,5 66,7 Aldur (ár M±SD) 38,2 (11,39) 37,32 (12,16) 35,79 (11,28) 39,47 (10,57) Menntun Grunnskóli 37 38 39 32 Framhaldsskóli 46 38 50 50 Háskólapróf 17 23 10 18 Hjúskaparstaða Giftur/ í sambúð 65 56 67 69 Einhleyp/ur 35 42 33 28 Fráskilin(n)/ Ekkja(ekkill) 1 - - 3 Klínísk skilmerki Verkir (NRS, M±SD) 6,1 (2,1) 6,49 (1,86) 6,11 (2,25) 5,58 (2,11) Verkir varað 5 ár eða lengur 46 41 54 44 Verkjalyf Veikir ópíóíðar 95 95 100 88 Sterkir ópíóíðar 40 46 39 32 Verkjalyfjanotkun 1-2 sinnum í viku 45 32 45 61 Daglega 39 55 37 24 Yfir klínískum viðmiðum BAI 41 39 50 0 BDI-II 44 61 66 0 FABQ-W 19 26 26 3

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.