Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2020, Blaðsíða 38

Læknablaðið - jan. 2020, Blaðsíða 38
38 LÆKNAblaðið 2020/106 hans hagi. Hann vissi sem var að Saddam Hussein var svo hræddur um samsæri sinna manna gegn sér að samskipti milli varðstöðva og hersveita voru miklum tak- mörkunum háð,“ lýsir hann. Hermenn á varðstöðvunum hafi vitað að þeim bæri að handataka þá en þeir hafi einnig vitað að reglur giltu ekki um alla. Hermennirnir gátu lent í miklum vand- ræðum ef þeir röskuðu ró íraska ráðherr- ans. „Eftir 6-8 tíma yfirheyrslur var okkur því alltaf sleppt þótt ekki hafi tekist að sannreyna sögu okkar.“ En fær hann martraðir eftir þessa reynslu? „Ekki lengur, nei.“ En fékk hann þær? „Já það kom vissulega fyrir,“ svarar Gísli og brosir. Rekinn og endurráðinn í Svíþjóð Áður en Gísli fór til Kúveit gekk honum vel í starfi í Svíþjóð og hann segist aldrei hafa fundið fyrir því að hann væri þar útlendingur. Hann hafi fengið tækifæri jafnvel umfram sænska kollega. „Mér fannst það stundum óþægilegt,“ segir hann hógvær. Honum hafi boðist staða sem reyndari læknar fengu ekki. „Ég var aldrei að ota mínum tota. Þetta var ákvörðun yfirmanna á þeim árum. Samt var ég alltaf í nokkurri andstöðu við prófessorinn gamla. Honum þótti ég helst til sjálfstæður í hugsun. Hann rak mig meira að segja einu sinni en sá svo eftir því,“ segir Gísli og hlær. „Á þessum árum voru menn reknir á staðnum. En það er nú breytt,“ segir Gísli en segir að á sama tíma hafi prófessorinn sýnt mikið sjálfstraust og leitað til hans þegar svo bar undir. „Yfirmenn lögðu mikið upp úr því að ala upp fólk sem gæti stjórnað. Þeir vildu ekki endilega beina öllu kastljósinu að sjálfum sér,“ segir Gísli. Hér á landi hafi hefðirnar verið meira í ætt við smákónga- kerfi sem hafi þó breyst á síðustu áratug- um. En hvað skýrir það? „Svo margt hefur batnað.“ Það þekkir Gísli því hann kom hingað heim og starfaði í nokkra mánuði eftir Íraksstríðið. Smákóngaveldið á Íslandi „Það var á fyrri hluta árs 1991. Þá fannst mér óþægilegt að vinna á Landspítalan- um.“ Ekki hafi ríkt gagnkvæm virðing milli stétta, hjúkrunarfræðinga og lækna. „Það var óþarfa kjaftur á fólki. Sumir starfsmenn voru mjög ókurteisir. Ég hafði ekki kynnst því í Svíþjóð og ekki í Kúveit. Mér fannst það sérkennilegt.“ Hann hafi því leitað aftur út og tekið við yfirmanns- stöðu svæfinga- og gjörgæsludeildar Há- skólasjúkrahússins í Bern í Sviss. Í Sviss hafi samskipti starfsmanna á spítalanum og í háskólanum verið á allt öðru plani. „Svo þegar ég kom heim til Íslands 10 árum seinna var andrúmsloftið allt annað á Landspítalanum, allt önnur gæði, ótrú- leg framför.“ Margir nýir sérfræðilæknar á flestum deildum spítalans hafi verið komnir heim með góða menntun frá ýms- um löndum. Hjúkrunarfræðingum með háskólapróf og framhaldsmenntun hafi á þessum áratug fjölgað ört. Starfsandinn hafi verið einstaklega góður. „Það var mjög jákvæð upplifun.“ Andinn hafi haldist síðan sem allra víðast. En hvernig er að hætta störfum sem læknir? „Skrýtið. Mér fannst ég fyrst vera í fríi,“ segir Gísli og hlær. „Ég er að byrja að fatta það núna,“ segir hann og hefur síðustu misseri sinnt mörgum verkum auk klínískrar vinnu á gjörgæslunni. Var með læknanema og sérnámslækna á sinni könnu, sinnti vísindarannsóknum, var formaður Vísindaráðs Landspítala í 11 ár. Þá hefur hann setið í ritstjórn erlenda læknatímaritsins Acta Anaesthesiologica Scandinavica og áður European Journal of Anaesthesiology. Síðustu 11 ár hefur Gísli einnig verið í ólaunuðu starfi framkvæmdastjóra tveggja ára viðbótarnáms ( fellowship) í gjörgæslu- lækningum á Norðurlöndum sem tekur við eftir 5 ára sérnám í svæfinga- og gjör- gæslulækningum. „Ég hef verið að trappa niður vinnu þetta ár. Vinn ekkert klínískt lengur en hef sinnt stjórnunarstörfum í sambandi við sérnám lækna bæði hér á Landspítalanum og á hinum Norðurlöndunum. Ég vinn einnig áfram við vísindastörf,“ segir hann. „Ég á líka eftir að skrifa nokkrar grein- ar sem ég hef ekki haft tíma til að klára. Er líka ennþá í ritstjórn Acta Anaesthesi- ologica Scandinavica og í nefndum á vegum Evrópusamtaka gjörgæslulækna. Ég hef sennilega næg verkefni í einhver ár.“ Eftir að innrásarherinn hafði verið hrakinn á brott frá Kúveit fundust meðal annars fjöldi pyndingartóla víðs vegar um borgina. Og vopn lágu eins og hráviði um allt.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.