Læknablaðið - jan. 2020, Síða 19
LÆKNAblaðið 2020/106 19
Y F I R L I T
Inngangur
Stærsta ósk verðandi foreldra er að barn þeirra verði heilbrigt og
eru þeir tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að stuðla að heil-
brigði ófædda barnsins. Það er þó staðreynd að um það bil 2-3%
nýfæddra barna eru með meðfædda missmíð.1 Orsakirnar geta
verið margvíslegar, margslungnir erfða- og umhverfisþættir og
ýmis lyf en að stórum hluta eru orsakirnar óþekktar. Hlutverk
lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks er að veita leiðbeiningar og
ráð varðandi þekkta fyrirbyggjandi þætti og hvað ber að forðast.
En þegar vandamál greinast er það hlutverk FM-lækna að bregðast
við þeim á meðgöngu og nýburalækna á nýburaskeiði. Sérgreinin
fósturgreining og meðgöngusjúkdómar var fyrst viðurkennd hér á
landi árið 2015 sem undirsérgrein við fæðinga- og kvensjúkdóma-
lækningar þegar breyting var gerð á reglugerð um sérfræðileyfi.2
Örar framfarir í myndgreiningu, einkum óm- og segulóm-
skoðunum ásamt framförum í sameindagreiningum (molecular
diagnostics), auk möguleika á meðferð og aðgerðum á fóstri í móð-
urkviði gera FM að einum helsta vaxtarbroddi heilbrigðisþjónustu
á meðgöngu. Margar sérgreinar læknisfræðinnar þurfa að koma
að málum við greiningu og meðferð fóstursins sem sjúklings,
svo sem nýburalæknar, barnahjartalæknar, erfðalæknar, röntgen-
læknar og barnaskurðlæknar svo dæmi séu tekin. Víða erlendis
Fósturgreining og meðgöngusjúkdómar,
undirsérgrein fæðinga-
og kvensjúkdómalækninga
Yfirlitsgrein
Hildur Harðardóttir
læknir
Kvennadeild Landspítala og læknadeild Háskóla Íslands.
hhardard@gmail.com
Á G R I P
Læknisfræði fósturs er undirsérgrein fæðinga- og kvensjúkdómalækn-
inga og lýtur að rannsóknum á þróun, vexti og sjúkdómum fóstra. Það
má telja eðlilegt að hafa eina sérgrein fyrir þá órjúfanlegu heild sem
móðir og fóstur mynda og er íslenska undirsérgreinin í samræmi við
það og ber heitið fósturgreining og meðgöngusjúkdómar (FM). Stór-
stígar framfarir hafa átt sér stað í FM hvað varðar myndgreiningu fóstra
með ómskoðun og segulómun. Einnig á sviði erfða- og sameinda-
læknisfræði við sjúkdómsgreiningar með kjarnsýrutækni auk þess
sem aðgerðir á fóstrum eru nú mögulegar í vissum tilfellum. Í vinnu
við fósturgreiningar er samstarf við fjölmarga aðra sérfræðinga mikil-
vægt, til dæmis nýburalækna, barnalækna í ýmsum undirsérgreinum,
barnaskurðlækna, erfðalækna og lækna sem vinna á sviði myndgrein-
ingar. Í stærri samfélögum starfa FM-læknar gjarnan sem ráðgefandi
fyrir fæðingalækna og aðra sérgreinalækna auk þess að vinna við
fósturskimanir, greiningar og meðferð. Hér á landi er sérhæfing styttra
á veg komin. Hér eru tekin dæmi um verkefni FM-lækna og lýst hvernig
tækniframfarir hafa breytt fósturskimun fyrir litningafrávikum, eftirliti
og meðferð við rhesus-varnir auk aðgerða á fósturskeiði. Þá er sagt frá
samstarfi norrænna FM-lækna.
innifelur sérgreinin einnig sjúkdóma hjá þunguðum konum og
kallast á ensku Maternal-Fetal Medicine.
Áður fyrr var konum með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma
gjarnan ráðlagt að eignast ekki börn. Þær sættu sig oft við þann úr-
skurð en nú eru breytt viðhorf og konur sætta sig síður við að veik-
indi þeirra setji þeim takmörk hvað varðar barneignir. Sjúkdómur
móður getur þýtt ævilanga lyfjagjöf sem ef til vill samrýmist ekki
meðgöngu vegna fósturskemmandi áhrifa og er álitamál hvern-
ig eigi að leysa það. Ætti verðandi móðirin að sleppa lyfjatöku á
kostnað verra heilsufars til lengri tíma eða taka lyfið og fylgjast
með því hvort það hafi áhrif á fóstrið? Stundum eru áhrif sjúk-
dóms móður á framgang meðgöngunnar þekkt, bæði hvað varðar
fósturþroska og líkur á fyrirburafæðingu eða önnur vandamál en
í mörgum tilfellum eru þessi áhrif óviss eða alls ekki þekkt. Einnig
þarf að huga að áhrifum meðgöngunnar á sjúkdóm móður. Sem
dæmi má nefna undirliggjandi hjartasjúkdóm þar sem hin mikla
aukning á blóðmagni sem fylgir meðgöngu veldur auknu álagi á
hjarta móður og getur til dæmis leitt til hjartabilunar. Sé verðandi
móðir með alvarlegan undirliggjandi sjúkdóm sem skerðir lífslíkur
hennar, þarf að ræða möguleg áhrif hans á meðgönguna og einnig
áhrif meðgöngunnar á undirliggjandi sjúkdóm. Loks þarf að meta
Fósturgreining og meðgöngu sjúkdómar er
hratt vaxandi undirsérgrein fæðingalækninga
sem lýtur að heilsu móður og fósturs.
www.lis.is
Fjölskyldu- og
styrktarsjóður lækna
Fjölskyldu- og styrktarsjóður LÍ (FOSL) var stofnaður árið 2001.
Upp haflegi tilgangur sjóðsins var að greiða fæðingarstyrki en í dag
greiðir hann marga mikilvæga styrki m.a. vegna tekjumissis í tengslum
við veikindi, útfararstyrki og fæðingarstyrki.
ST YRKIR SJÓÐSINS ERU:
• FÆÐINGARSTYRKUR
• VEIKINDASTYRKUR
• ENDURHÆFINGARSTYRKUR
• GLASAFRJÓVGUNARSTYRKUR
• STYRKUR FYRIR HEYRNARTÆKI
• STYRKUR FYRIR SÁLFRÆÐIAÐSTOÐ
• ÚTFARARSTYRKUR
• EINGREIÐSLUSTYRKUR
Læknar sem starfa hjá hinu opinbera eiga
rétt á styrk úr sjóðnum en þeir sem stunda
sjálfstæðan rekstur verða að velja sjálfir
að sækja um aðild að FOSL á vefsíðu
Læknafélagsins.
KYNNTU ÞÉR RÉTTINDI ÞÍN