Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - jan. 2020, Side 28

Læknablaðið - jan. 2020, Side 28
28 LÆKNAblaðið 2020/106 F R É T T A S Í Ð A N 10% þurfa gangráð fjórum árum eftir ósæðarlokuskipti Um 10% sjúklinga sem gangast undir ósæðarlokuskiptaaðgerð hér á landi þurfa gangráð rúmum fjórum árum eftir að- gerð. Þetta er niðurstaða rannsóknar 9 íslenskra lækna sem birtist í Scandinavian Cardiovascular í desember. „Það er vel þekkt að ef fjarlægja þarf mjög kalkaða ósæðarloku getur orðið truflun á nálægu leiðslukerfi hjartans. Því þurfa sumir sjúklingar gangráð á fyrstu tveimur vikunum eftir aðgerðina sem þeir hafa ævilangt. Hér á landi var tíðnin að- eins 3,8% sem er ívið lægra en á mörgum stærri hjarta- skurðdeildum erlendis,“ segir Tómas Guðbjartsson, prófessor og yfirlæknir og einn læknanna 9 sem stóðu að rannsókninni. Hann nefnir að sérstaða rannsóknar- innar sé sú að öllum sjúklingunum hafi verið fylgt eftir í mörg ár eftir aðgerðina. Fyrsti höfundur greinarinnar er Sindri Aron Viktorsson, sérnámslæknir í skurð- lækningum. Samkvæmt greininni náði rannsóknar- tíminn frá árinu 2002 til 2016 og til 712 sjúklinga, en 557 þeirra var fylgt eftir. Blása á fregnir um uppsagnir Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja segir á heimasíðu sinni engar áætlanir uppi um að leggja niður deildir á stofnuninni eða segja upp fólki. „Það er þó ekkert launungarmál að HSS stefnir í hallarekstur á árinu, sem rekja má til þess að fjárveitingar til stofnunar- innar hafa ekki tekið mið af þjónustuþörf á Suðurnesjum og verulegri íbúafjölgun á svæðinu undanfarin ár,“ segir í tilkynn- ingu frá framkvæmdastjórninni. Leiðrétt Hanna Björg Henrysdóttir á geisla- eðlisfræðideild 10-K á Landspítala er eðlis- fræðingur en ekki geislafræðingur eins og misritað var í síðasta tölublaði. Nokkrir meðlimir öldungadeildar Banda- ríkjaþings, þar á meðal öldungadeildar- þingmennirnir Tim Kaine, Elizabeth Warren, Tom Cotton og Mitt Romney, telja að þjóðaröryggisáhætta hafi skapast við að treysta öðru ríki fyrir að framleiða þau lyf sem nýta eigi í landinu. Þingmennirnir hafa sent bréf til Mark Esper varnarmálaráðherra í kjölfar birtingar ársskýrslu bandarísku efna- hags- og öryggismálanefndar og nefna fyrst og fremst áhyggjur vegna Kína. „Það er áríðandi að lykilstofnanir taki á þeirri hættu sem stafar af því að treysta á erlenda lyfjaframleiðendur,“ segja þingmennirnir. Greint var frá málinu í fréttum CBS 19 þann 10. desember. Erlendir fjölmiðlar eins og Bloomberg Businessweek og The Guardian hafa birt fréttir um óhreinindi í lyfjum fram- leiddum í Kína, meðal annars blóð- þrýstingslyfinu Valsartan og magalyfinu Ranitidine sem einnig kallast Zantac. Framleiðandi seinna lyfsins, Glaxo- SmithKline, hefur innkallað það á heims- vísu. Óhreinindin voru talin stafa af breyttum framleiðsluháttum Samkvæmt upplýsingum frá Lyfja- stofnun hefur reynst erfitt að einangra hvaðan mengunin í lyfjunum sé sprottin. Ekki sé hægt að útiloka að hún hafi verið þar fyrir en með nýrri greiningartækni hafi hún komið fram. Vel er fylgst með málinu og Lyfja- stofnun er í samstarfi við evrópsk lyfja- yfirvöld. Aðgerðir í málum sem þessum eru almennt samræmdar. Ekki er til- kynnt um mál sem þessi séu lyfin ekki á borðum landsmanna, því varhugavert er að hræða fólk frá lyfjatöku. Bandarískir þingmenn áhyggjufullir vegna kínverskrar lyfjaframleiðslu Sjúkrahúsrúmum fækkar hér á landi Sjúkrahúsrúmum hefur fækkað undanfarinn áratug. Alls voru rými 3,1 á 1000 íbúa á árinu 2017, það er mun minna en í löndum Evrópusambandsins þar sem þau eru 5,0 að meðaltali. Þetta kemur fram í yfirliti OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, fyrir árið 2019 um heilbrigðismál. Bent er á að nokkrum bráðarýmum á sjúkrahúsum hafi verið breytt í umönnunar- rými til lengri tíma. Þá er einnig bent á að innlögnum á sjúkrahús hafi fækkað, og að meðal talsdvöl á sjúkrahúsi hafi verið 6 dagar árið 2017 sem sé styttra en ESB-meðal- talið en það er um 8 dagar. Nefnt er í skýrslunni að innlagnir á sjúkrahús vegna langvinnra sjúkdóma sem hugsanlega hefði verið hægt að komast hjá séu færri á Íslandi en í flestum ríkjum ESB, og áberandi færri í vissum tilfellum – einkum vegna sykursýki þar sem Ísland sé með lægstu tíðni í Evrópu.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.