Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jan 2020, Page 36

Læknablaðið - Jan 2020, Page 36
36 LÆKNAblaðið 2020/106 „Þetta er allt hér,“ segir Gísli H. Sigurðs- son, svæfinga- og gjörgæslulæknir, og rétt- ir fram bókina Læknir á vígvelli eftir Ólaf E. Friðriksson sem Iðunn gaf út 1991. Hún fjallar um veru hans sem læknir í Kúveit þegar Íraksstríðið geisaði. Eiginkona hans, Birna Guðbjörg Hjaltadóttir, beið eftir hon- um ásamt þremur börnum þeirra á meðan hann var innlyksa og í lífshættu í Kúveit. Gísli er nú að hætta störfum eftir farsælan feril sem læknir í fjórum lönd- um. Í Kúveit var hann prófessor við háskólann og yfirlæknir svæfinga- og gjörgæsludeildar Mubarak Al Kabeer-há- skólasjúkrahússins um ríflega 5 ára skeið. Síðustu mánuðirnir í starfi voru engu líkir. „Ég ákvað að gefa út bók til að skrifa mig frá þessari reynslu, sem var svakaleg. Ég var margoft í lífshættu,“ segir Gísli. „Oft var ég með byssukjafta í andlitinu. Maður vissi aldrei hvernig það myndi enda,“ segir hann og hugsar rétt nærri 30 ár aftur í tímann, til ársins 1990. Skothvellir á bráðamóttökunni Læknablaðið sest niður með Gísla og fer yfir starfsævina í stórum dráttum. Hann er að vinda ofan af sér og klára verk, smátt og smátt, og við ræðum það sem litaði starfs- ferilinn mest, Kúveit er efst á blaði. „Í þessu áður friðsæla landi var fólk skotið á staðnum fyrir smáræði, hvort sem var inni á spítalanum eða fyrir utan. Tilviljun réði því iðulega hver var tek- inn,“ segir hann. Honum hafi fundist spennandi að lifa og starfa í framandi landi, en áttað sig á því eftir á að hann stóð í lífsins rúllettu við innrásina eftir 5 friðsæl ár í Kúveit. „Inni á spítalanum var oft kaos þessa mánuði, sérstaklega þegar íraskir hermenn komu með yfirmenn sína sem höfðu orðið fyrir skoti frá leyniskyttum Kúveita,“ segir hann. „Stundum var skotið á bráðamót- tökunni. Fyrst og fremst upp í loftið til að hræða okkur: Ef þið bjargið honum ekki þá verðið þið skotnir. Sumir voru dauðir við komuna,“ segir Gísli. „Þá urðum við að setja líkið á sjúkrabörur og fara með það í hvelli inn á skurðstofu og þykjast endur- lífga þar til náðist í íraska herlækninn sem hafði verið skipaður sjúkrahússforstjóri.“ Tveimur vikum eftir innrásina var háskólaspítalinn sá eini í landinu með fulla starfsemi, þrátt fyrir að hátt í 200 er- lendir læknar og sérfræðingar væru farnir úr starfsliðinu; í herkví, í felur eða ekki komnir úr sumarfríi. Gísli stóð einn Vest- urlandabúa eftir á spítalanum. Var oft handtekinn Gísli kom til Kúveit á vegum Háskóla- sjúkrahússins í Lundi í Svíþjóð í gegnum samstarfssamning. Sænska sjúkrahúsið tryggði Kúveitum mannafla til að byggja upp nýjan háskólaspítala og læknadeild frá grunni og þar lauk hann sérnámi og doktorsprófi og gegndi yfirmannsstöðu. Gísli segir að þegar hann var eini Vesturlandabúi spítalans hafi hjálpað sér að hafa sérstakt skírteini frá íraska sjúkrahússforstjóranum. Hann hafi skilið þýðingu íslenska læknisins fyrir spítalann og fyrirskipað að ekki mætti handtaka Gísla án þess að haft væri samband við sig. „Ég var samt 11 sinnum tekinn til fanga og yfirheyrður klukkutímum saman. Stundum pyntaður. Ef ég þurfti að fara eitthvað út fyrir spítalann voru allsstaðar eftirlitsstöðvar mannaðar lítt þjálfuðum hermönnum. Þeir voru margir ólæsir, óskrifandi og illa þjálfaðir en þeir vissu að taka ætti alla hvíta menn fasta. Þeir myndu fá verðlaun ef þeir fyndu slíka,“ segir hann. „Þeir voru oft mjög æstir og beindu hríðskotabyssum að hausnum eða hálsin- um á manni. Maður vissi ekki nema þeir myndu í stressinu drepa mann óvart.“ Hann lýsir óhugnanlegu atviki á slíkri eftirlitsstöð. „Vestræn hjón voru skotin til bana. Þau höfðu ekki áttað sig á að þau áttu að hægja á bílnum löngu áður en þau komu á stöðina. Þeir skutu bílstjórann, manninn, og síðan konuna þegar bíllinn kom rennandi inn á stöðina. Það voru mörg svipuð tilfelli.“ En hvernig fjarlægir hann sig frá svona atburðum? „Ég held það hafi með það að gera að vinna sem svæfinga- og gjörgæslu- læknir. Maður er svo oft með alvarlega veika og slasaða sjúklinga sem deyja þrátt fyrir mikla meðferð. Maður myndar ein- hvers konar mótstöðu,“ segir hann. „Einnig hjálpaði mikið að hafa ekki tíma til að átta sig á hættunni þegar stressið var sem mest.“ Rifbeinsbrotinn í yfirheyrslum Gísli segir að hættan í yfirheyrslunum hafi verið mest áður en yfirmenn komu á staðinn. „Ég var því oft laminn og barinn því hermennirnir á varðstöðvunum skildu mig ekki og gátu ekki lesið skírteinið mitt frá spítalanum. En þegar vel þjálfaðir og upplýstir leyniþjónustumenn komu að borðinu, greinilega breskþjálfaðir, varð hættan minni.“ Hann nefnir sem dæmi um hve vel írösku leyniþjónustumennirnir voru að sér að þeir hafi vitað að hann hefði verið í há- skóla í Bandaríkjunum, í Norður-Karólínu, Saumaði sárin sjálfur eftir að hafa verið barinn með byssum Gísli H. Sigurðsson svæfinga- og gjörgæslulæknir var í stöðugri lífshættu í fjóra og hálfan mánuð í Íraksstríðinu 1990. Hvað eftir annað fékk hann byssuhlaup við háls sinn og höfuð. Hann horfði á fólk líflátið og komst að lokum við illan leik frá Kúveit eftir innrás Íraka. Læknablaðið ræðir við Gísla nú í lok starfsferilsins. ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.