Læknablaðið - jan 2020, Qupperneq 39
LÆKNAblaðið 2020/106 39
B R É F T I L B L A Ð S I N S
G. Haukur
Guðmundsson
sjúkraþjálfari, íþrótta-
og heilsufræðingur
Ljósinu – endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð fyrir
fólk sem hefur fengið
krabbamein og
aðstandendur þess
g.haukur@icloud.com
Á undanförnum árum hefur verið æ meira
rætt um ávinning líkamsþjálfunar fyrir
heilsu fólks sem greinist með krabbamein.
Þetta er í samræmi við aukna þekkingu á
neikvæðum áhrifum kyrrsetu og jákvæð-
um áhrifum þjálfunar á líðan, heilsu og
lífsgæði fólks sem greinist með krabba-
mein.
Nýlega voru birtar alþjóðlegar leið-
beiningar um stöðu þekkingar á sviði
þjálfunar í tengslum við krabbamein, bæði
sem forvörn og meðferð við krabbamein-
um. Þessar leiðbeiningar voru þróaðar af
alþjóðlegri nefnd sérfræðinga og hags-
munaaðila á sviði þjálfunar fyrir krabba-
meinsgreinda. Nefndin var kölluð saman
af American College of Sports Medicine,
samtökum í Bandaríkjunum sem fjalla um
þjálfun til að bæta heilsu fólks og vinna
gegn þrálátum sjúkdómum. Nefndin kom
saman í mars 2018 og bjó til starfshópa
sem unnu að ráðleggingunum. Niðurstöð-
ur þeirra voru birtar í þremur fræðigrein-
um í október 2019.
Í fyrstu greininni1 var einblínt á áhorfs-
rannsóknir og staðfesti hún niðurstöður
nýlegrar samstöðu um að aukin hreyfing
geti verið verndandi gegn krabbameinum
í brjósti, ristli, legslímu, nýra, þvagblöðru,
vélinda og maga. Þá er einnig fjallað um
mikilvægi þess að forðast kyrrsetu til að
draga úr áhættu á að þróa með sér krabba-
mein í legslímu, ristli og lunga. Athyglis-
vert er að aukin hreyfing hefur fylgni við
aukna áhættu á að greinast með sortuæxli.
Höfundar bentu á mikilvægi sólarvarn-
ar við útivist, frekar en beina áhættu af
hreyfingunni sjálfri. Fólk sem hóf þjálfun
eftir að hafa greinst með krabbamein í
brjósti, blöðruhálskirtli eða ristli sýndi allt
að 36% hærri lifun en aðrir. Magn þeirrar
þjálfunar sem þarf til að fá þennan árang-
ur fyrir fólk með þessi krabbamein er ekki
enn þekkt.
Í annarri greininni2 var fjallað um
hlutverk þjálfunar eftir greiningu með
krabbamein til að lina ýmsar algengar
aukaverkanir af krabbameinsmeðferðum
og umfjöllun um lykilatriði í skimun fyrir
öryggi einstaklinga sem fá uppáskrifaða
þjálfun. Höfundar staðfesta að þjálfun
er örugg fyrir fólk með krabbamein og
einnig að forðast ætti kyrrsetu. Stefna ætti
að almennum lýðheilsuráðleggingum um
hreyfingu, sem kveða á 150 mínútur á
viku af þolþjálfun og svo styrktarþjálfun
tvisvar í viku. Það sem er nýtt er að höf-
undar notuðu skipulagt ferli til að komast
að samstöðu um stöðu þekkingar til að
ákvarða hversu mikla þjálfun ætti að
skrifa upp á til að vinna gegn algengum
aukaverkunum krabbameinsmeðferða.
Sterkar vísbendingar styðja uppáskrift á
þjálfun gegn krabbameinstengdri þreytu,
bættum heilsutengdum lífsgæðum,
aukinni líkamlegri virkni, minni kvíða
og þunglyndi og sýna einnig fram á að
stigvaxandi styrktarþjálfun er örugg
fyrir fólk með sogæðabjúg. Uppáskrifuð
þjálfun var venjulega 30 mínútna þol-
þjálfun af miðlungs ákefð þrisvar í viku.
Svipaður ávinningur, að undanskildum
minni kvíða og þunglyndi, kom fram
við styrktarþjálfun eða blöndu af þol- og
styrktarþjálfun tvisvar í viku. Þá voru
miðlungssterkar vísbendingarnar um
svipað magn þolþjálfunar á bættan svefn,
en ekki nægilegar vísbendingar núna til
að gefa nákvæmar ráðleggingar um magn
þjálfunar gegn eitrunaráhrifum á hjarta-
vöðva, á bætta vitsmunalega getu, færri
byltur, minni velgju, minni verki, minni
úttaugaskaða, aukna kynferðislega virkni
og aukið þol við lyfjameðferð.
Þriðja greinin3 á að brúa bilið milli
rannsókna og klínískrar vinnu. Hún fjallar
um hvernig best megi innleiða þessa þekk-
ingu um mikilvægi þjálfunar í umönnun
og þjónustu við krabbameinssjúka til að
gera þeim kleift að njóta góðs af. Mikil-
vægasta atriðið er að heilbrigðisstarfsfólk
sem vinnur með krabbameinsgreindum
sé meðvitað um mikilvægi þjálfunar fyrir
skjólstæðinga sína, ræði markvisst um
þjálfun við þá og hafi verkferla sem leiða
skjólstæðingana í þjálfunarúrræði og þá
viðeigandi þjónustu sem eru í boði.
Klínísk reynsla mín við endurhæfingu
krabbameinsgreindra hefur sýnt mér mik-
ilvægi þess að samfella sé í ráðleggingum
heilbrigðisstarfsmanna. Ég tel æskilegast
að bjóða skjólstæðingum upp á greiningu,
fræðslu og þjálfun undir handleiðslu þar
sem skjólstæðingar geta svo valið sjálfir
hvort þeir geri æfingarnar á eigin vegum
eða innan heilbrigðisstofnana. Slík þjón-
usta getur veitt langtímastuðning við
fólk sem hefur greinst með krabbamein
og veitt aðhald með reglulegu endurmati.
Með slíkri eftirfylgni eru meiri líkur á
að viðkomandi hefji þjálfun og viðhaldi
henni sem lífsstíl, frekar en sem skamm-
tímaúrræði meðan á meðferð stendur
eða fyrst eftir hana. Þannig myndi hinn
krabbameinsgreindi njóta langtímaávinn-
ings af þjálfun sem greinarnar hér að ofan
lýsa.
Heimildir
1. Patel AV, Friedenreich CM, Moore SC, Hayes SC, Silver JK,
Campbell KL, et al. American College of Sports Medicine
Roundtable Report on Physical Activity, Sedentary
Behavior, and Cancer Prevention and Control. Med Sci
Sports Exerc 2019; 51: 2391-402.
2. Campbell KL, Winters-Stone KM, Wiskemann J, May
AM, Schwartz AL, Courneya KS, et al. Exercise
Guidelines for Cancer Survivors: Consensus Statement
from International Multidisciplinary Roundtable. Med Sci
Sports Exerc 2019; 51: 2375-90.
3. Schmitz KH, Campbell AM, Stuiver MM, Pinto BM,
Schwartz AL, Morris GS, et al. Exercise is medicine in
oncology: engaging clinicians to help patients move
through cancer. CA Cancer J Clin 2019; 69: 468-84.
Alþjóðlegar ráðleggingar kalla á að þjálfun
verði hluti af meðferð krabbameinssjúklinga