Læknablaðið - jan 2020, Qupperneq 45
LÆKNAblaðið 2020/106 45
Pétur
Heimisson
heimilislæknir
Hefðbundin læknisfræði byggist á meina-
fræðilegri nálgun þar sem grafist er
fyrir um orsakir sjúkdóma. Þekking um
sjúkdómsvald er nýtt til að laga (lækna)
skaða og í besta falli fyrirbyggja sjúk-
dóma. Þetta hefur skilað ótrúlegum fram-
förum en bent hefur verið á að með fylgi
sú tilhneiging að sjá einstakling sem frísk-
an eða veikan og ekkert þar á milli. Einnig
að nálgunin sé fagmiðuð; styrkurinn
fagmannsins, veikleikinn sjúklingsins
og afleiðingin í versta falli að sjúklingur
verði óvirkur og telji sig eiga heimtingu
á lækningu. Vanvirkni í eigin bataferli
er ekki síst alvarleg þegar fengist er við
lífsstílssjúkdóma og þá flóknu blöndu ein-
kenna af sálrænum, tilfinningalegum, fé-
lagslegum, líkamlegum og tilvistarlegum
toga sem margir leita hjálpar við.
Aron Antonovsky (1923-1994) var fé-
lagsfræðingur sem rannsakaði streitu sem
áhrifaþátt heilsu og varð upptekinn af
þeim sem héldu heilsu þó aðrir veiktust
af sama álagi. Hann leitaði skýringanna,
það er uppruna góðrar líðanar og heilsu
og skilgreindi þrjár meginstoðir þar
að baki. Í fyrsta lagi Sense Of Coherence
(SOC) sem kalla mætti tilfinningu fyrir
samhengi og tilgangi hluta. Hann taldi
sterkt SOC byggja á möguleikanum til að
skilja, ráða við og finna tilgang í vanda
og viðfangsefnum. Í öðru lagi Generalised
Resistance Resources (GRR) sem eru alls
kyns viðnámsþættir, efnislegir, huglægir,
meðfæddir og áunnir (menntun, erfðir, að
tilheyra (partnership) eða ekki, efnahagur,
atvinna/atvinnuleysi). Í þriðja lagi taldi
hann heilsu vera línulegt ferli, allt frá
mjög lítilli til mjög góðrar heilsu, í stað
þess að sjá fólk annað tveggja frískt eða
sjúkt. Hann skóp hugmyndafræðina Salu-
togenesis (þýðingu vantar), byggða á SOC,
GRR og línulegri sýn á heilsu. Orðið er
samsett úr salus (heilsa) og genesis (upp-
runi). Spurt er um styrk, möguleika og
líðan einstaklings í stað veikleika hans,
takmarkana og sjúkdóma og leitað er
styrkleika sem búa í sjúklingi, umhverfi
hans og aðstæðum og ekki síður hæfileik-
um og möguleikum hans til að nýta þá,
sér til bættrar líðunar og heilsu.
Antonovsky taldi þetta hagnýtt og í
dag renna rannsóknir stoðum undir það.1
Hann lagði ofuráherslu á að þessi sýn/
nálgun hvorki gæti né mætti koma í stað
hefðbundinnar nálgunar, heldur fengist
nýtt sjónarhorn ef spurt væri hvað veld-
ur heilsu og vellíðan samhliða því að
spyrja hvað veldur sjúkdómi. Aðalsmerki
salutogenesis er að gert er ráð fyrir og
byggt á því að í manneskjunni sjálfri búi
miklir möguleikar til að bæta líðan sína
og þar með virkni í eigin bata. Samhliða
er rík áhersla á ráðgjafar- og leiðbeinanda-
hlutverk fagaðilans ekki síður en með-
ferðarhlutverkið.
Hollendingar hafa meðal annars á
grunni Salutogenesis þróað það sem þeir
kalla Positive Health, sem Elínborg Bárðar-
dóttir heimilislæknir kynnir hér í blaðinu.
Hvort Salutogenesis og Positive Health
gætu með öðru hentað vel til að mæta
bylgju lífsstílssjúkdóma og draga úr mik-
illi lyfjanotkun finnast mér áleitnar spurn-
ingar. Kannski fást svör við þeim og fleiri
spurningum á málþinginu Salutogenesis
– Positive Health þar sem rædd er ný nálg-
un og ný sýn á heilsu og Félag íslenskra
heimilislækna stendur fyrir föstudaginn
24. janúar næstkomandi á Læknadögum.
1. Mittelmark MB, Sagy A, Eriksson M, Bauer GF, Pelikan
JM, Lindström B, et al. The Handbook of Salutogenesis.
Springer 2017.
Hvað er Salutogenesis?
– svarið fæst á Læknadögum
38 000 studenter och 6 000 medarbetare gör
Göteborgs universitet till en stor och inspirerande
arbetsplats. Stark forskning och attraktiva utbildningar
lockar forskare och studenter från hela världen.
Med ny kunskap och nya perspektiv bidrar vi till
en bättre framtid.
Institutionen för kliniska vetenskaper,
Sahlgrenska akademin, Göteborgs universitet, söker:
UNIVERSITETSLEKTOR
I ONKOLOGI
med inriktning immunonkologi, förenad med
befattning som specialistläkare
Anställningen är placerad vid institutionen för kliniska
vetenskaper, Sahlgrenska akademin.
Ref nr: PAR 2019/1605
Sista ansökningsdag för anställningen är: 2020-02-14
För mer information se Göteborgs universitets hemsida:
www.gu.se/omuniversitetet/aktuellt/lediga-jobb