Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1975, Side 19

Hugur og hönd - 01.06.1975, Side 19
handa börnum sínum. En þá verður ekki greitt um svör, því að ekki er á annað að treysta en fornleifafundi og þeir eru lítt gjöfulir á þessu sviði. Það er að vísu alþekkt fangaráð fornleifa- fræðinga, ef þeir finna einhvern skrít- inn smáhlut, sem erfitt er að gefa nafn, að segja að hann sé annaðhvort töfragripur eða leikfang. En þetta segir meira um fornleifafræðingana sjálfa en barnleika í fornöld. Stundum hleypur þó betur á snærið. I fyrra- sumar voru fornleifafræðingar að grafa við Suðurgötu hér í Reykjavík og þá fundu þeir svolítinn spýtukarl með haus og skrokk og varla er önn- ur skýring betri en sú að hér sé kom- in brúða úr eigu einhvers Reykjavík- urbarns fyrri alda. Annars er ekki um auðugan garð að gresja meðal ís- lenskra fornleifa, nema hvað mann grunar að skrítilega lagaðir og marg- litir smásteinar sem oft er mikið af í uppgröfnum bæjartóftum, séu leik- föng sem börn hafa viðað að sér úti í náttúrunni. Allir kannast við að bátar og skip eru eftirlætisleikföng barna. Svo hef- ur einnig verið fyrr á tíð og því meir því nákomnari sem sjórinn og skipin voru daglegu lífi fólksins. I Vestri- byggð á Grænlandi hefur fundist eitt skemmtilegasta dæmi um slíkt leik- fang, ofurlítill bátur skorinn út úr einni spýtu svo vandlega að á honum mótar fyrir umförum í byrðingnum, og í allri sinni smæð ber þetta fley nokkuð af stoltri reisn víkingaskipa í svip sínum. I Kirkjubæ í Færeyjum hefur sambærilegt leikfangaskip kom- ið úr jörðu, og Sverri Dahl fornminja- vörður var svo heppinn fyrir nokkr- um árum, þegar hann var að rannsaka fornaldarbæ þar sem heitir í Kvívík, að finna tvær slíkar fleytur til við- bótar. Á Grænlandi og í Færeyjum voru bátar lífsnauðsyn, jafnvel í enn ríkara mæli en hér á landi, en þó þarf ekki að velkjast í vafa um að þessir litlu bátar sýna einnig hvernig menn hér á landi bjuggu til báta handa drengjunum sínum. Og þá eru það dýrin, ekki síst hest- arnir. Sverri Dahl fann ckki aðeins báta i uppgreftri sínum, heldur fann hann einnig tvo litla tréhesta sem sýnilega eru leikföng. Það skeikar víst ekki miklu að þeir séu frá tíð Þrándar í Götu og Sigmundar Brestissonar. Fararskjótar þessir hafa gegnt sama hlutverki og látúnshestar drengjanna í Vígaglúmssögu. Á Grænlandi bjuggu menn til litla hvítabirni úr rostungstönn. Þar á landi var hvítabjörninn æsandi hluti veruleikans. Hér á næstu grösum við okkur hef- ur hvergi fundist annað eins af leik- föngum og í bæjargrunni Björgvinjar í Noregi, á Þýskubryggju sem kölluð er, og reyndar nokkuð einnig í mann- vistarlögum í öðrum gömlum kaup- stöðum á Norðurlöndum. I Björgvin hafa fundist leikföng eins og til dæmis boltar (knettir) herptir saman úr skinni og úttroðnir, en einnig smáar eftirlíkingar af nytjahlutum hinna fullorðnu og ekki síður skaðræðisgrip- um þeirra eins og til dæmis sverðum og öðrum vopnum ýmiss konar. Þegar maður sér þessi trésverð barnanna kemur mansöngur Sigurðar Breiðfjörð aftur í hugann: Einvíg þreyttum huga herðir, handa neyttum máttar þá, og með beittu svigasverði sárin veittum eigi smá. HUGUR OG HÖND 19

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.