Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1975, Page 34

Hugur og hönd - 01.06.1975, Page 34
SESSUR Sessur og dúkar saumuð með lykkju- spori og leggsaumi. Saumað er í frem- ur fíngerðan perlujafa með ullar- garni. Teikna má munstrið á jafann ef vill, en ekki er síðra að sauma beint í efnið og láta hugdettuna ráða. Heppilegt er að sauma fyrst útlínur munstranna og fylla þar til hvergi grisjar í grunninn. Sauma má með margskonar garnteg- undum, misgrófum þráðum, þynnt- um eða sundurröktum. Iluga skal að litasamstæðum, þéttleika og skörun munstranna svo jafnvægi náist. Munstur sessanna er látið enda í röndum við ystu brúnir. Síðan er saumað í þær bak úr léttu ullarefni og lagður í þær þunnur koddi Gengið er frá jaðri dúksins með fasta- hekli og tungukanti og að lokum er hann fóðraður með þunnu léreftsefni. Bolta, sessur og dúk hefur frú Sigrún Ragnarsdóttir teiknikennari saumað. BOLTAR OG HRINGIR Boltarnir á forsíðu eru saumaðir í garnhnykil. Yfirborð er fyllt með smáum saumsporum svipuðum að stærð og litsstyrk svo góð heild náist. Til drýginda má hafa innri hluta bolanna krumpaðann pappír vafinn gömlu uppraki. Hringina má nota fyrir nálar og prjóna líkt og boltana. Heklað er með fasta- og stuðlahekli. Járnhringir eru hafð- ir í yztu brúnir svo form þeirra haldist. Byrjað er í miðju fyllta hringsins með nokkrum loftl. Síðan er heklað í hring og aukið út eftir þörfum svo stk. liggi slétt. Þegar hringirnir ná sömu stærð eru þeir heklaðir saman í einni umferð, gengið frá brúnunum með tungukanti eða hnút- um, sem hekl. eru á sama hátt og fastah., nema frá vinstri til hægri. Fitjað er upp ummál opna hringsins í miðju, tengt og heklað á sama hátt og fyllti hringurinn. Saumað er í hringina með lykkjusporum og fræhnútum eða öðrurn sporgerðum, sem hugurinn býður. H. Á. 34 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.