Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1995, Qupperneq 21

Hugur og hönd - 01.06.1995, Qupperneq 21
var að vefa í tveggja álna breiðan vef. Tvær álnir voru þá um 126 cm, en erlendu tvíbreiðu vefstólarnir í Eyja- firði upp úr 1940 gætu sem best hafa verið ennþá breiðari. Sumarið eftir farkennsluna vann Guðrún foreldrum sínum heima í Litla-Arskógi, en stefndi að því að fara næsta vetur suður til Reykjavík- ur að læra að sníða og sauma fína kjóla, taldi víst að það myndi verða sér hagnýtt nám og skemmtilegt. Hún var svo staðráðin í þessu, að hún sinnti ekki eindregnum óskum og ráðleggingum Þuríðar frænku sinnar og prestsfrúarinnar Jónínu Björnsdóttur, um að sækja um skólavist á Hallormsstað í nýstofn- aða vefnaðarkennaradeild þar. Þó fór svo að hún breytti þeirri ákvörð- un vegna draums. Draumar Guð- rúnar Vigfúsdóttur hafa oft verið ör- lagavaldar í lífi hennar. I þetta sinn fannst henni draumurinn beina sér svo ákveðið að Hallormsstað, að hún afréð að sækja um skólavist og hún komst að. í VEFNAÐARKENNARADEILD I bók Sigrúnar Hrafnsdóttur, Hús- mœðraskólinn á Hallormsstað 1930- 1980, segir í þætti um vefnaðar- kennaradeild skólans: „Haustið 1943 byrjaði vefnaðarkennaradeild við skólann og í henni voru yfirleitt tveir nemendur. Hún starfaði til ársins 1952. Námið tók tvo vetur. Ur deildinni útskrifuðust átta vefn- aðarkennarar. Hliðstæð starfsemi fór ekki fram við aðra húsmæðra- skóla." Fyrstu nemendur deildar- innar voru tvær Guðrúnar, Vigfús- dóttir og Bergþórsdóttir frá Fljóts- tungu í Hvítársíðu. Þær fylgdust að í tvö ár og útskrifuðust saman 1945 og hafa alla tíð síðan verið góðar vinkonur. Forstöðukona húsmæðraskólans var þá merkiskonan Sigrún Páls- dóttir Blöndal sem var upprunnin á Hallormsstað. Hún hafði mikinn á- huga á fræðslumálum, einkum menntun kvenna, sem leiddi til þess að árið 1930 stofnaði hún ásamt manni sínum, Benedikt Blöndal, Húsmæðraskólann á Hallormsstað og stýrði honum til dauðadags. Auk verklegra greina voru kenndar fleiri bóklegar greinar en í öðrum hús- 2. „Litaspil", prír köflóttir kjólar í mörgum sauðarlitum. heimila og leiðbeindi húsmæðrum. Hún setti upp vefi, valdi liti og kom verkinu af stað. Þegar húsmæðurnar höfðu ekki tíma eða tök á að sinna vefnaðinum sjálfar óf Guðrún fyrir þær. Nýja vefstóla setti hún saman og kom í gagnið og sums staðar voru dregnir fram ævagamlir gripir í mis- munandi ástandi. Fjölbreytt verk- efni sem leysa þurfti hafa vafalítið veitt nytsama reynslu og þjálfun. Aðspurð segist Guðrún hafa þennan vetur komist í kynni við vefstóla með slöngurifnum uppi og hangandi slagborði sem eru auð- kenni margra gamalla íslenskra vefstóla. Hún telur þó að hinir hafi verið fleiri sem höfðu slöngurifinn í sömu hæð og voðmeiðinn. I þeim hafi slagborðið verið fest að neðan. Einn eða tvo tvíbreiða vefstóla fékk hún að fást við, þeir voru innfluttir. Þegar alinmálin voru við lýði þýddi tvíbreiður vefstóll þann sem hægt 3. Hátíðahökull ofinn fyrir Isajjarðar- kirkju, gefinn afisjómönnum. 21

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.