Hugur og hönd - 01.06.1995, Side 38
ISLENSKI
ÞJÓÐBÚNINGURINN
OG BARBIE
Á síðustu árum hefur áhugi vaxið á
íslensku handverki. Víða um land eru
samstarfshópar og einstaklingar sem
vinna mjög mikið starf og ótrúlega
fjölbreytt eins og sést á ýmsum stöð-
um þar sem íslensku handverki er
komið á framfæri.
Tímaritið Hugur og hönd fór þess
á leit við mig að ég segði aðeins frá
því sem fram fer á Vinnustofu Ingu í
Þorlákshöfn. Þar hanna ég og sauma
íslenska þjóðbúninga á brúður af
ýmsum stærðum og gerðum, auk
þess að teikna og mála. Eg hef hald-
ið sýningar, tekið þátt í mörgum
samsýningum og eru verk mín í
einkaeign víða um land.
Um þrjú ár eru liðin síðan ég byrj-
aði á þessari framleiðslu. Ég var búin
að sjá að það vantaði á markaðinn
brúður í þjóðbúningum, sem saum-
að væri á hér á landi. Við eigum alveg
ótrúlega fallega þjóðbúninga, sem
við verðum að varðveita með þjóð-
inni. Við eigum að vera stolt af því
að þeir skuli vera til hjá okkur og
reyna að koma þeim á framfæri.
Fólki finnst kannski ekki þjóðlegt að
klæða Barbie í þjóðbúninga, en ég
held að það sé nauðsynlegt að nota
þær brúður sem fólk er ánægt með,
því það er viðskiptavinurinn sem
ræður hvort varan selst. Barbie er
þekkt brúða víða um lönd og margir
safna henni.
Markaðssetning á „Barbie í þjóð-
búningi" og þeim gerðum sem ég er
með hefur gengið nokkuð vel og eru
þær seldar víða um land. Síldarstelp-
ur hafa aðeins hleypt heimdraganum,
auk þess hafa Grýla og Leppalúði far-
ið á kreik með sína sveina og lenti sú
fjölskylda meðal annars á safni í
Norður-Þýskalandi. Ekki má svo
gleyma íslensku ullinni, því löngum
hefur þótt við hæfi að klæða sig vel
áður en lagt er í langferð og er Barbie
þar engin undantekning. Hún er
komin í handprjónaða íslenska lopa-
peysu, húfu, sokka, upphlut, peysu-
föt og skautbúning og flytur kveðjur
frá íslandi til landa víða um heim.
G. Ingibjörg Guðmundsdóttir
38