Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 8
Himneskir herskarar
Sigurður Örn Guðbjörnsson
Handverk á sér margvíslegar rætur.
Oft eru þær þjóðlegar þar sem virð-
ing og trúfesta við hefðina skiptir
mestu, bæði hvað varðar efnivið og
handbragð. Annað handverk sprett-
ur fremur úr frjóum hug og sköpun-
argleði. En allt handverk á það sam-
eiginlegt að þar mætast hugur og
hönd. Handverk Páls Garðarssonar
sem hann vinnur undir nafninu
Himneskir herskarar á heima í síðar-
nefnda flokknum.
Rætur handverks liggja víða og
handverksmenn koma með ólíkum
hætti að starfi sínu. Þegar Páll var
strákur norður á Akureyri var
myndmennt ekki hans uppáhalds-
fag og sjálfur segist hann frekar hafa
verið þekktur fyrir tíu þumalputta
heldur en að vera sérstaklega hand-
laginn. Upphaf handverks hans má
því ekki rekja til teiknimöppu hans
og handavinnu frá barnaskólaárun-
um. Þegar hann á síðustu árum fór
að fást við handverk af alvöru kom
hann mörgum á óvart, ekki síst sjálf-
um sér. Samt er forvitnilegt að
hverfa aftur til bernskuára hans, því
að margt þaðan hefur skilað sér í þá
veröld sem hann skapar núna.
Strákurinn Páll velti því mikið
fyrir sér hvað hlutir gætu verið ann-
að en þeir eru og hvað nýtt mætti
búa til úr ýmsu því sem þegar hafði
fengið hlutverk í lífi manna. Þannig
voru t.d. byggingavöruverslanir æv-
intýraheimur í augum stráksins,
stöðug uppspretta hugmynda og
leikja. Önnur minning í huga Páls er
draumur um að eiga sér lítinn vin
sem hægt væri að stinga í vasann.
Eldspýtur og tindátar léku það hlut-
verk. Eins orkuðu smáatriði og lit-
brigði umhverfisins, bæði hin mann-
Úr himneskum herskörum. Ljósm. Kristín Bogadóttir.
gerðu og náttúrulegu, sterkt á hug
hans. Óm alls þessa, auk margs ann-
ars, má skynja í því handverki sem
Páll hefur unnið á síðustu árum.
Það var svo fyrir tilviljun, fremur
en að um meðvitaða ákvörðun hafi
verið að ræða, að handverk hefur á
síðustu árum skipað stöðugt stærra
rými í daglegu lífi Páls og hefur nú
um skeið verið hans aðalstarf. Það
spratt úr öðru verkefni sem hann
tók þátt í vegna vinnu sinnar. Það
varð til þess að hann fór að fikta við
einhverjar hugmyndir. Mikil og já-
kvæð viðbrögð urðu svo til þess að
hann hélt áfram.
Páll hefur sótt tvö tálgunarnám-
skeið og eitt námskeið í útskurði.
Þangað hefur hann sótt þekkingu
um við og meðferð verkfæra. Ann-
ars er hann sjálfmenntaður í faginu,
hefur þroskast og þróast með fikti.
8 HUGUR OG HÖND 2006