Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 31

Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 31
Skæðinu snúið við. Brúnin að ofan er vörpuð, ekki mjög djúpt, svo að hægt sé að draga hana hæfilega saman. Varpað er með nógu löngum enda svo að hann nái allan hringinn. Byrjað er að varpafrá hæl ogfrá vinstri til hægri, holdrosinn snýr að þeim sem saumar. Varpað er nokkuð þétt en gisnara yfir tána og þar er togað stíft í þráðinn svo að skinnið hafist við og litlar fellingar myndist ískóinn sem gera vídd yfir tærnar. Nokkra lagni og þjálfun þarftil þess að varpa skó þannig að þeirfari vel áfæti. Tilfinning fyrir þéttleika sporanna og hve stíft skal toga í þráðinn kemur með æfingunni. Áður en hællinn er saumaður er skórinn mátaður og sniðið afhon- um efhann er oflangur. Hællinn er saumaður frá röngunni í brúnirnar á víxl þannig að brúnirnar mætist og notaður sléttur saumur. Þá leggjast hárin yfir sauminn svo að hann verður vart sýnilegur. Byrjað er efst, við skóop og saumað niður hælinn og gengiðfrá endanum. Endað er á að snúra brúnina með snæri í skóopið. Endarnir víxlast að aftan og eru saumaðir fastir. Nýir skór voru gjarnan þurrkaðir áfótum þess sem átti aðfá þá til að þeir tækju á sig lag notandans og auðveldara væri en ella að setja þá á sig aftur. Laufey Lárusdóttir í miðju ásamt ánægðum nemendum sínum með afrakstur ferðarinnar. Frá vinstri: Þorgerður, Herdís, Laufey Lárus- dóttir, Sigrún og Heiður. HUGUROG HÖND2006 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.