Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 36

Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 36
íleppamunstur Héléne Magnússon Símunstur á prjónuðu vesti sem unnið var upp úr hamarrós á grundvelli leppanna nr. 19. Uppskrift að vestinu er aðfinna í bókinni Rósaleppaprjón í nýju ljósi sem er væntanleg. Haustið 2000 kynntist ég íslenskri prjónahefð, þá sem nemandi við textíldeild Listaháskóla Islands. Við skoðun á íslensku prjóni beindist áhugi minn fljótlega að íleppum, en eins og lesandinn veit eflaust fyrir eru íleppar innlegg sem sett voru til hlýinda og þæginda t.d. í sauð- skinnsskó, roðskó (íleppar nr. 9) og jafnvel í gúmmískó þegar þeir komu til sögunnar. Ilepparnir sáust því sjaldan og einmitt af þeim sökum kemur það skemmtilega á óvart hversu litríkir lepparnir geta verið, ekki síst þegar haft er í huga að föt almennings voru yfirleitt í dökkum litum eða þá sauðalitunum. Einnig kemur á óvart hversu mikil vinna var oft lögð í gerð leppanna, enda áttu hinir fótum troðnu leppar yfir- leitt stutt líf fyrir höndum. Ástæða þess að íleppar kveiktu áhuga minn í upphafi var ekki síst sú hversu litríkir, fjölbreyttir og fal- legir lepparnir reyndust vera við nánari skoðun. I framhaldinu hóf ég að taka myndir af íleppum, alls stað- ar af landinu, í þeim tilgangi að reyna að safna saman á einn stað og varðveita öll þau munstur sem not- uð voru við gerð íleppa. I safninu eru nú yfir 300 myndir, án þess þó að ég telji mig hafa fest alla tiltæka leppa á filmu. Afrakstri athugana minna á íleppum undanfarin ár hef ég reynt að koma fyrir í bók, Rósa- leppaprjón í nýju Ijósi, sem koma mun út á næstunni hjá útgáfufélaginu Sölku. í bókinni verður farið ítarlega yfir sögu rósaleppaprjóns og aðferð- ir við gerð íleppa. Ekki síst mun þó áhersla verða lögð á hvernig þessi gamla hefð getur nýst í nútímanum. Verða því birtar í bókinni yfir 25 nýj- ar prjónauppskriftir sem allar eru byggðar á gömlum íleppamunstrum með einum eða öðrum hætti. Ein slík uppskrift er birt hér á eftir. Upp- skriftinni vil ég fylgja úr hlaði með nokkrum orðum um íslensk íleppa- munstur og sérstöðu þeirra. íleppa má flokka með ýmsum hætti, t.d. eftir aðferðum. Slyngdir leppar (íleppar nr. 1 og 2) voru oftast prjón- aðir tveir saman í hring með sléttu- prjóni og tvíbanda munstri og klippt í miðjunni. Þeir voru fóðraðir og slyngdir í kring, en með slyngingu er átt við að fótofið band sé saumað í kring um leppinn samhliða því að það er ofið. Munstur á slyngdum leppum voru ekki ýkja margbreyti- leg. Þau voru fyrst og fremst einlita rósir, aðallega áttablaðarósir, og rendur. Mikil vinna lá þó í slyngdum leppum og voru þeir sparileppar. í öðru lagi skulu nefndir stykkja- leppar (íleppur nr. 3). Þeir voru ekki prjónaðir heldur saumaðir úr fjórum stykkjum, yfirleitt mislitum, oft í rauðu og svörtu, sem sett voru í kross. Stykkjaleppar voru oft slyngd- ir allan hringinn og voru einnig sparileppar. í þriðja lagi er til að taka stangaða leppa sem voru saumaðir úr ull- arpjötlum eða öðrum efnisafgöng- um, og stangaðir (íleppar nr. 4 og 5). Þessir leppar komu ekki fram fyrr en í byrjun 20. aldar og voru því að- allega notaðir í gúmmískó. Þetta voru ekki mjög vandaðir leppar og hugsaðir einungis til þæginda en ekki til skrauts. I fjórða lagi vil ég nefna garða- 36 HUGUROG HÖND2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.