Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Síða 45

Hugur og hönd - 01.06.2006, Síða 45
Lene og feldirnir HeiðurVigfúsdóttir Vítt og breitt um Eyjafjörð eru bygg- ingar og söfn sem fróðlegt er að skoða, einnig hefur verið afar ánægjulegt að fylgjast með grósk- unni þar í handverki og listum. Ar- leg handverkshátíð á Hrafnagili hef- ur líka laðað að sér margan gestinn. í Eyjafirði býr Lene Zachariassen, handverks- og listakona sem oft hef- ur vakið athygli fyrir fallega og frumlega hönnun í verkum sínum. Lene vakti fyrst almenna athygli fyr- ir að bregða hrosshár á fínlegan hátt í skartgripi en þau eru fjölbreytt við- fangsefnin sem hún hefur fengist við. Lene og Beate Stormo, sem báðar eru norskar að ætt og búsettar í hér- aðinu, hafa undanfarin ár unnið stöðugt að tilraunum við verkun og sútun margs konar skinna. Þær hafa sameiginlega þróað vinnuferlið og leitað sér víða fróðleiks. Um tíma hafði Lene líka nema, aðstoðarstúlk- una Barböru Kepinski. Feldirnir úr gæruskinnum sem hér er fjallað um eru sérstakir en við gerð þeirra er stuðst við norskra hefð sem er alda- gömul (sjá grein í Hug og hönd árið 2003). Feldimir eru unnir úr gærum sem hafa verið sútaðar, saumaðar saman og skreyttar. Lene og Beate eiga hugmyndirnar að myndum sem skreyta holdrosann á gærunum en þær vísa bæði til fornra hefða og náttúrunnar. Georg Hollander handverksmaður í Eyja- firði sagaði myndirnar í við og skar út svo að úr urðu eins konar stimpl- ar. Litur er borinn á þessa stimpla sem er síðan handþrykkt á skinnin. Ullin á gærunum heldur sér og er í fjölbreyttum sauðalitum. Brúnir feld- anna eru ýmist varpaðar eða lagðar skrautlegum bryddingum. Feldirnir eru af öllum stærðum, allt frá því að vera nettir treflar, slár á axlir eða stórar ábreiður og eru einkar mjúkir og hlýir. Lene býr við Hjalteyri í gömlu skólahúsi og hefur þar góða vinnu- aðstöðu. Hún er einnig að útbúa þar íbúð fyrir lista- og handverksfólk sem mun geta nýtt vinnuaðstöðuna. Lene verkar húðir, skinn (ekki af gæludýrum) og gærur fyrir eigin framleiðslu, eftir pöntunum og til al- mennrar sölu. Handverkið við sútun, samsetningu og skreyti sitja í fyrirrúmi hjá Lene. Arangurinn er sá að feld- irnir hennar eru sannar- lega augnayndi á að horfa og ljúfir að fara höndum um auk þess sem handbragðið allt er að- dáunarvert. Það er ánægjulegt að sjá að skinna- verkun er enn stunduð í Eyjafirði, þar sem hún á sér langa sögu sem atvinnugrein. Ljósm. Lene Zachariassen HUGUROG HÖND2006 45

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.