Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 52
Heimilisiðnaðarskólinn
s
Asdís Birgisdóttir
Augnsaumur. Refilsaumur. Skógerð.
Skólinn er til húsa að Laufásvegi 2,
þar sem hann hefur verið rekinn allt
frá 1979 er hann var stofnaður.
Skólastarfið fer fram í mislöngum
námskeiðum yfir vetrarmánuðina.
Markmið með skólahaldinu eru
einnig markmið félagsins en í lögum
Heimilisiðnaðarfélagsins segir:
„Hlutverk félagsins er að vernda
þjóðlegan íslenskan heimilisiðnað,
auka hann og efla, stuðla að vöndun
hans og fegurð og vekja áhuga
landsmanna á því að framleiða fal-
lega og nytsama hluti, er hæfi kröf-
um nýs tíma með rætur í þjóðlegum
menningararfi." Þessi markmið end-
urspeglast í fjölbreyttum námskeið-
um. I kennslustundunum er farið
höndum um það efni sem unnið er
úr, kennt að nota þau tæki sem til
þarf, handtökin sýnd og því málfari
beitt sem lýsir jafnt efni sem vinnu-
brögðum.
Námskeið í boði eru: baldýring,
bútasaumur, flauelsskurður og perlu-
saumur, hekl, hnífagerð: skefti og
slíður; höfuðbúnaður: krók- og
spaðafaldur; jurtalitun, keðjugerð:
víkingakeðjur; knipl, leðursaumur,
myndvefnaður, möttulsaumur, prjón:
dúkaprjón, handstúkur, íleppar, sjöl
og hymur; orkering, sauðskinnsskór,
skartgripagerð: perlufestar; skyrtu-
og svuntusaumur, spjaldvefnaður,
tóvinna, útsaumur: hvítsaumsgerðir,
íslenskur útsaumur; útskurður, vatt-
arsaumur, vefnaður, víravirki, þjóð-
búningasaumur: upphlutur, peysu-
föt, herrabúningur, faldbúningur,
skautbúningur og kyrtill; þæfing:
grunnnámskeið, formþæfing-þurr-
þæfing, framhaldsnámskeið og lit-
un.
Námskeið skólans hafa verið vel
sótt undanfarin misseri. Er ánægju-
legt að áhugi á ýmsum hefðbundn-
um vinnubrögðum fer vaxandi og
ekki síst meðal ungra kvenna. Nám-
skeið í hekli og prjóni hafa notið æ
meiri vinsælda og eru fullskipuð
þegar þessar línur eru ritaðar. Á síð-
astliðnu hausti kom gestakennari frá
Danmörku, Jorgen Hangoi, og
kenndi hnífagerð, voru þau nám-
skeið mjög vinsæl. Voru námskeiðin
fjögur í skólanum og eitt námskeið
var haldið á Egilsstöðum. Jorgen er
væntanlegur aftur til landsins til að
kenna á handverkshátíðinni á
Hrafnagili um miðjan ágúst og
einnig hjá Heimilisiðnaðarskólanum.
Námskeið í þjóðbúningasaumi
hafa verið fjölsótt í vetur. Kennarar
skólans, Guðrún Hildur Rosenkjær,
Oddný Kristjánsdóttir og Jófríður
Benediktsdóttir hafa sinnt kröfu-
hörðu starfi, því að sívaxandi eftir-
spurn er eftir námskeiðum bæði hér
sunnanlands og úti á landi. Á
haustönn var einnig boðið upp á
kennslu í að sauma herrabúninga.
Það námskeið sóttu bæði konur og
karlar. Námskeið í að sauma fald-
búninga hafa verið í boði nú í all-
mörg ár. Reglulega er tekið við nýj-
um nemendum, en nýr hópur tók til
starfa í janúar. Þá eru nokkrar konur
vel á veg komnar að sauma skaut-
búninga og kyrtla. Umsjónartímar
fyrir þessi löngu námskeið eru jafn-
an fyrsta laugardag í mánuði, en þá
52 HUGUROG HÖND 2006