Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 29
Selskinnsskór
úr Skaftafellssýslu
Sigrún Helgadóttir
Þorgerður Hlöðversdóttir
Herdís Pétursdóttir
HeiðurVigfúsdóttir
Lengd: Ein löng spönn (frá þumalfingur-
gómi til löngutangargóms á útglenntri
hendi) að viðbættri lengd löngutangar.
Á árunum 1982-85 kom Sigrún
Helgadóttir, núverandi formaður
Heimilisiðnaðarfélags Islands, oft í
þjóðgarðinn í Skaftafelli og naut þá
gjarnan gestrisni Ragnars Stefáns-
sonar þjóðgarðsvarðar og Laufeyjar
Lárusdóttur konu hans. Einhvern
tíma þegar setið var að spjalli kom
fram að Laufey hefði á yngri árum
saumað skó úr selskinni. Þær upplýs-
ingar gleymdust ekki þótt árin liðu.
Um 20 árum síðar átti Sigrún leið
um Freysnes og hitti Önnu Maríu,
hótelstjóra í Hótel Skaftafelli, dóttur
þeirra Ragnars og Laufeyjar. Spurði
Sigrún tíðinda af Laufeyju og fékk
að heyra að hún væri við góða
heilsu. Sigrún hafði þá á orði við
Önnu Maríu hvort mamma hennar
gæti kannski enn gert selskinnsskó
og jafnvel kennt listina áhugasöm-
um konum. Önnu Maríu fannst það
ekki ólíklegt en taldi þó að erfitt
gæti verið að finna selskinn verkað á
gamla mátann.
Seinna sama sumar gekk Sigrún
um Norðurstrandir og kom að
Dröngum. Þar var heimilisfólk á leið
til selveiða. Sigrún spurði þá hvað
gert væri við skinnin og hvort hugs-
anlega væri hægt að fá selskinn,
spýtt og skafið eins og gert hefði
verið áður fyrr. Drangamenn tóku
vel í það. Sigrún hafði líka samband
við Örn Þorleifsson á Húsey við
Héraðsflóa og falaðist eftir skinni.
Svo fór að allir voru fúsir að útvega
skinn og þegar til kom var Sigrún
bæði komin með skinn af ungum sel
(vetrungi) að vestan og annað þykk-
ara af eldri sel að austan. Skinnin
voru stíf og hörð, höfðu verið spýtt,
skafin og þurrkuð.
í upphafi árs 2004 sótti Heimilis-
iðnaðarfélagið um styrk til Þjóðhá-
tíðasjóðs til að unnt væri að skrá-
Breidd: Mæld með því að setja
skinnið tvöfalt á milli löngu-
tangar og vísifingurs og mæla
við löitgutöng.
Á selskinnsskóm eru hárin alltaf
látin snúa aftur þ.e.frá tá að
hæl. Skinnin eru merkt á röng-
unni og síðan skorin.
Gott er að nota reglustiku til að
skera eftir.
Við hælinn er skinnið ekki skorið
alveg í gegn heldur brotið saman
og rist í sundur með hnífog þess
gætt að hárin við skurðbrúnina
haldist heil. Skæðið er brotið sam-
an og skorinn fleygur fyrir hæl.
HUGUROG HÖND2006 29