Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 12

Hugur og hönd - 01.06.2006, Blaðsíða 12
I leit að þjóðlegri fyrirmynd Samkeppni um íslensk húsgögn árið 1928 / Arndís S. Arnadóttir Á seinni hluta nítjándu aldar risu upp félög og umbótahreyfingar víða í iðnvæddum löndum Evrópu og Ameríku meðal annars í þeim til- gangi að efla handverk og berjast gegn því sem talinn var vera hnign- andi smekkur samtímans. Þessi sjónarmið settu að einhverju leyti svip á heimilisiðnaðarfélög á Norð- urlöndum sem miðluðu verkþekk- ingu á ýmiss konar handverki til fé- lagsmanna sinna og almennings. Þau stóðu meðal annars fyrir því að fjölfalda teikningar og bjóða upp á námskeið, eins og til dæmis í hús- gagnagerð, þar sem lögð var áhersla á að nota þjóðlegar fyrirmyndir. Fræðimenn á þessu sviði hafa bent á að innan heimilisiðnaðarfélaganna hafi farið fram mikilvægt viðreisnar- starf verklegrar þjálfunar í hand- verki og hönnun (skill based design reform) jafnframt því að bæta heimil- ismenningu (Naylor 1997). Á íslandi voru heimilisiðnaðarfé- lög stofnuð síðar en á hinum Norð- urlöndunum, Heimilisiðnaðarfélag Islands í Reykjavík árið 1913, og tveimur árum seinna var annað stofnað á Akureyri. Þessi félög stefndu að því að glæða virðingu fyr- ir þjóðlegum heimilisiðnaði, þekk- ingu á honum og smekkvísi og að nota innlent efni og íslenskar fyrir- myndir. Kvenfélögin og ungmenna- félögin studdu sömuleiðis heimilis- iðnaðarmálið svokallaða, en hvenær athyglinni var beint að því að þróa íslenskan stíl fyrir húsgagnagerð er óljóst. Heimilisiðnaðarfélag íslands veitti Guðmundi Jónssyni frá Mos- dal (1886-1956) utanfararstyrk „til þess að fullkomna sig í öllu því er að heimilisiðnaði lyti, þar á meðal ein- faldri húsgagnagerð til sveita" (Gjörðabók Heimilisiðnaðarfélags íslands 1919) og sótti Guðmundur í kjölfarið námskeið á vegum Dansk Husflidsselskab og Norsk Husflids- forening og flutti skýrslu um ferðina fyrir stjórn félagsins. Hann kenndi síðar teikningu, smíðar, útskurð o.fl. á Isafirði um langt árabil og var öt- ull talsmaður ungmennafélagshreyf- ingarinnar. Halldóra Bjarnadóttir kennari (1873-1981) var sömuleiðis skeleggur talsmaður heimilisiðnað- armálsins og formaður Sambands norðlenskra kvenna árin 1915-1923 jafnframt því að vera ritstjóri ársrits sambandsins, Hltnar. Það var einmitt á stjórnarfundi sambandsins í júní 1926 að samþykkt var að veita 200 krónur til að láta gera uppdrætti „af hentugum íslenskum húsgögnum" (Áslaug Sverrisdóttir 2001). eftir Ríkarð Jónsson. VINNUTEIKNINGAR af 2 síólum, borði og hlaðborði til sölu. Sendar gegn póstkröfu hvert á land sem er, gegn lOkr. gjaldi. Heimiiisiðnaðarfelag fslands afgreiðir þá pöntun. NOTIB ÍSBENSK HÚSOÖON. Þær konur í Eyjafjaíðar- og F’ingeyjarsýslum, sem heldur vilja greiða andvirði Hlínar á Akureyri mega afhenda þáð Arnheiði Skaftadóttur í Kaup- fjelagi Eyfirðinga. Hún gefur kvittun fyrir greiðslum. Auglýsing úr Hlín 1931, bls. 135. Ljósm. Helgi Bragason. Hér verður gerð grein fyrir þess- ari fyrstu tilraun til að gera upp- drætti að íslenskum húsgögnum, en til samkeppninnar var síðan boðað í greinargerð Halldóru Bjarnadóttur í Hlín árið 1927. Þetta var merkileg til- raun til að bæta heimilisbrag og heimilismenningu á íslandi þar sem jafnframt var sett skilyrði um að fram kæmi þjóðlegur stíll. Halldóra taldi að nú væri þörf á íslenskum húsgagnastíl „ef heimilin með breytt- um húsakynnum og um leið með breyttum kröfum, eiga að fá íslensk- ari svip en nú hafa þau." Ljóst er að þátttakan í þessari samkeppni var dræm og hvorki lærðir húsgagna- smiðir né húsameistarar komu þar nærri. Urslitin voru umdeild og skil- uðu ekki tilætluðum árangri eins og fram kemur hér á eftir og ekki er að finna sjónarmið útlærðra húsameist- ara né húsgagnasmiða í þeirri um- ræðu. Baráttan gegn stássstofunni og leitin að íslenskum stíl Umbætur í húsbyggingamálum, utan- sem innandyra, voru oft til umræðu á þriðja áratugnum þegar húsakynni voru að taka stakkaskipt- um í sveitum og bæjum á íslandi. f grein um „nauðsynjar og óhóf", sem birtist í Morgunblaðinu árið 1920 tel- ur höfundur nauðsynlegt að veita fólki ráðleggingar um bættan smekk og „að benda fólki á, hvernig það á að verja efnum sínum til að útbúa húsakynnin og gera þau viðkunnan- leg." Hann vekur athygli á að hinar svokölluðu „stássstofur" á betri bæj- um í sveitum og kaupstöðum væru þjóðarsmekkleysa og væri það mikil framför að mati hans ef allar „stáss- stofur" væru teknar til daglegrar íbúðar (Brandur 1920). Nokkrum árum síðar skrifar Guð- mundur Gíslason Hagalín um heim- ilisiðnað í Harðangri og lýsir hrifn- ingu sinni á heimilismenningu al- þýðunnar þar. í Noregi hafi vaknað 12 HUGUROG HÖND2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.