Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 21

Hugur og hönd - 01.06.2006, Side 21
mennar reglur viðvíkjandi þessu starfi" kemur skýrt fram að ætlast er til að „sérhvert litunar-efni sé fyrst þvegið í heitu álúns eða vínsteins- vatni; því að þá vinnur liturinn miklu betur á allskonar tægi enn ella".19 Hugsanlegt er að í verklýs- ingu Jóns, Þórðar og Björns sé ein- faldlega gert ráð fyrir að það sem sameiginlegt var mörgum litunarað- ferðum hafi verið flestum kunnugt og því óþarfi að taka það fram í verklýsingu hverju sinni. Nefna má í þessu sambandi að Jón Daðason álít- ur ekki ómaksins vert að skrifa niður í Gandreið litunaraðferðir sem virðast hafa verið algengar en segir einungis „Að mosa, barka og sorta vita flest- ir".20 Ef hins vegar er athuguð lýsing Olaviusar á því hvernig lita má úr krapprót, kemur í ljós að aðferðin er lík þeim sem kennd er á jurtalitunar- námskeiðum nútímans, efnið sem lita skal er fyrst soðið með álúni og vínsteini og síðan hitað eða jafnvel soðið með krapprótinni og rekur Olavius aðferðina til Hellot.21 Það er með öðrum orðum ekki lagt til að farið sé eins að með krapprót og möðrurætur sem þó eru jurtir af sömu ætt og rótin inniheldur sams konar litunarefni. Freistandi er að láta sér detta í hug að fyrirmyndin að aðferðum þeim sem Olavius og Björn gefa upp um litun með ís- lensku möðrurótunum eigi rætur að rekja til eldri íslenskra heimilda. Benda má á að í ávarpi til lesara í upphafi Grasnytja kemur fram að Björn Halldórsson styðst við ýmis eldri rit og nefnir meðal annars Gandreið Jóns Daðasonar.22 Saman- burður við Fuldstændig Fruentimmer Farve-Bog gefur hins vegar til kynna að málið er ekki endilega svo einfalt. í uppskriftum Olaviusar og Björns má finna áhrif úr ýmsum áttum, eins og þeir sjálfir benda á. Það má að lokum geta þess að á árum áður, þegar ég gaf mig svolítið að jurtalitun, keypti ég ætíð krapp- rót erlendis frá til að nota við kenhslu eða þegar ég litaði heima. Þótt ég hefði heyrt getið um að fá mætti rauðan lit úr gulmöðru og krossmöðru tímdi ég ekki að grafa þær upp og nota í litun að undan- skildu tilviki þegar ég gerði tilraun til að fá staðfestingu á litunarmætti þeirra. Hálfgerð spjöll finnst mér að því að grafa upp íslensku möðru- ræturnar í stórum stíl og farga jurt- inni á þann hátt, ólíkt því sem gerist þegar skorið er ofan af jurt eða greinar með laufum teknar af trjám og runnum, því að mikil prýði finnst mér að gulmöðru, krossmöðru og hvítmöðru í móum þegar líða tekur á sumarið. Hér fylgja svo með til gamans myndir af smáhespum sem höfund- ur litaði úr rótum gulmöðru og krossmöðru á áttunda áratug aldar- innar sem leið. Sú litun var liður í tilraunum sem ég gerði með að lita, úr ýmsum jurtum, smáar hespur sem áður höfðu verið soðnar, hver um sig, í mismunandi blöndu af málmsöltum og varð litblærinn á hverri hespu þannig mismunandi þó að litunarlögurinn sjálfur væri sá sami. Tilraunin með möðrulitunina var í grófum dráttum þannig að möðruræturnar voru grafnar upp og hreinsaðar en ekki þurrkaðar, síðan saxaðar niður og soðnar í um klukkustund en ekki síaðar frá litun- arleginum, bandhespurnar smáu voru þá settar í litunarlöginn, hitað að suðumarki og haldið svo í klukkustund. Segja má að í aðferð- inni speglist ýmsar aðferðir, meðal annars þær sem eru meginviðfangs- efni þessarar samantektar. Heimildir: 1 Sjá t.d. Bo Mossberg og Lennart Sten- berg, Den nya nordiska floran, Stokk- hólmur 2003, s. 476^81. 2 Sjá t.d. Hörður Kristinsson, Plöntu hand- bókin. Blómplöntur og byrkningar, Reykjavík 1986, s. 132-134 og 160. (ís- lensk náttúra II). 3 Lbs. 892. 4vo. s. 148-149. í prýðilegu yf- irliti Guðmundar Finnbogasonar um lit- un sem birtist á sínum tíma í Iðnsögu Is- lands má finna litunaruppskriftir Jóns Daðasonar og vísanir í aðrar gamlar heimildir um litun. Sjá Guðmundur Finnbogason, „Litun", Iðtisaga Islands, II. bindi, ritstj. Guðmundur Finnbogason, Reykjavík 1943, s. 110-120. 4 Guðmundur Finnbogason, „Litun", Iðn- saga Islands, II. bindi, s. 117. Guðmund- ur hefur stafsetningu nútímalega en fer að öðru leyti nákvæmlega eftir lýsingu Jóns Daðasonar. 5 Eggert Ólafsson, Ferðabók Eggerts Ólafs- sonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra á fslandi árin 1752-1757, I. bindi, Reykjavík 1943, s. 99. 6 Nefna má að Eggert Ólafsson segir að sortulyngsblöð hafi verið soðin með voðinni í 6-8 stundir fyrir mósvartan lit og síðan látið kólna í leginum. Eggert Ólafsson Ferðabók, I. bindi, s. 100. 7 AM 192,8vo. 8 Höfundur þakkar Guðvarði Má Guðna- syni, fræðimanni hjá Stofnun Arna Magnússonar og Erni Hrafnkelssyni forstöðumanni Handritadeildar Lands- bókasafns aðstoð við að ráða í skriftina. 9 Rit Björns Halldórssonar í Sauðlauks- dal, Gísli Kristjánsson og Björn Sigfús- son bjuggu til prentunar, Reykjavík 1983, s. 307. 10 Orðið „fló" mun merkja þunnt lag af e-u. Sjá Asgeir Blöndal Magnússon, Is- lensk orðsifjabók, Reykjavík 1989, s. 193. 11 Sjá athugasemdir við AM. 192, 8vo, í Katalog over den Arnamagnæanske hánd- skriftsamling, 2. bindi. Kaupmannahöfn 1894, s. 441. 12 Það er að mestu leyti nútímastafsetning á lýsingunni í ritinu. Sjá Rit Björns Hall- dórssonar í Sauðlauksdal, s. 307-308. 13 Sjá Svenskt biografiskt lexikon, 20. bindi, ritstj. Erik Grill, Stokkhólmur 1973- 1975, s. 598-601. 14 Olavius, Fyrisagnar Tilraun um Litunar- giörd á Islandi, Kaupmannahöfn 1786, sjá formála. 15 Wescher, H, „Great Masters of Dyeing in 18th Century France", Ciba Review, 18. (Basle, 1939). s. 630 og 632-636. Sjá einnig Svenskt biografiskt lexikon, 23. bindi, ritstj. Birgitta Lager-Kromnow, Stokkhólmur 1980-1981, s. 416-419. 16 En Dansk Farve-Bog til Almindelig Nytte eller Kort Underretning. Kaupmanna- höfn 1768. Sjá formála. 17 Fuldstændig Fruentimmer Farve-Bog, eller tydelig Underviisning om Farve-Kunst- en, Kaupmannahöfn 1768, s. 203-204. 18 Olavius, Fyrisagnar Tilraun um Litunar- giörd á lslandi, s. 35-36. Höfundur hefur fært lýsingu Olaviusar til nútímastaf- setningar. 19 Sama rit, s. 20. 20 Lbs. 892. 4to, s. 149. 21 Olavius. Fyrisagnar Tilraun um Litunar- giörd á Islandi, s. 27-28. 22 Rit Björns Halldórssonar, s. 219. HUGUROG HÖND2006 21

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.