Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 39
íleppa að það var unnið með garða-
prjóni. Erlendis var og er hins vegar
slétt prjón oftast notað við mynd-
prjón. Mér er þannig ekki kunnugt
um neina hefð utan Islands þar sem
myndprjón var notað með garða-
prjóni þótt ég hafi rekist á einstök
dæmi um slíkt í nýlegum prjóna-
uppskriftum.
í íslensku íleppamunstrunum kem-
ur saman ákveðin tækni, efni, litir
og litasamsetning sem gerir þau um
margt einstök. Gildir þá einu þótt
flest þessara munstra eigi sér ein-
hverja samsvörun erlendis. Með
þessum hætti geta íleppamunstrin
vissulega talist séríslensk. Það sem
stendur upp úr er hins vegar það að
þessi munstur eru fjársjóður sem
mikilvægt er að varðveita til fram-
tíðar. Þetta helgast ekki aðeins af því
að mikilvægt er að halda til haga
því sem er gamalt og gott, heldur
getur þessi sjóður vel nýst okkur
Mjór trefill
Lengd: U.þ.b. 100 sm
Efni: Kambgam frá ístex
- hvítt 0051,1 dokka
- blátt 9655, 1 dokka
- rautt 9664,1 dokka
Loðband - einbandfrá ístex
- hvítt 0051,1 dokka
- svart 0059,1 dokka
- rautt 0078,1 dokka (sérlitað, fæst
hjá Handprjónasambandi Islands)
- ljósgrænt 9936, 1 dokka
Prjónar nr. 3
sem innblástur við ýmiss konar ný-
sköpun. Með öðrum orðum geta
íleppamunstrin orðið haldgóð upp-
spretta hugmynda fyrir nútíma-
hönnun sem stendur undir nafni
sem „íslensk". I þeirri bók sem von
er á og nefnd var í upphafi hef ég
því ekki síst lagt áherslu á að vinna
úr þessari gömlu hefð með nýjum
prjónauppskriftum. Með þessu er
vonandi lítið lóð lagt á vogarskál-
arnar í þeirri viðleitni að sú þekking
og fegurð sem fólgin er í íslenskum
íleppum og rósaleppaprjóni glatist
ekki.
Prentaðar heimildir:
Elsa E. Guðjónsson (1985). „Um prjón á Is-
landi," Hugur og hönd, s. 8-12.
Jónas Jónasson (1961). íslenzkir þjóðhættir,
3. útg. Reykjavík. ísafold, s. 122-128.
Þjóðháttaskráning Þjóðminjasafnsins XII,
Skrá 12. Skógerð, október 1964.
Prjónfesta: 10 x 10 sm með garða-
prjóni og kambgarni eru 23 L og 26
garðar. □ = 1 L og 1 garður.
Prjónaðferðir: Fyrst er miðstykkið
prjónað langsum fram og aftur, síð-
an rósirnar á báðum endum þvers-
um. Athugið að einbandið er haft
tvöfalt.
Garðaprjón: 1 garður = 2 umf. slétt
prjón fram og aftur.
Miðstykki: Fitjið upp 180 L á prjón
nr. 3 með hvítu kambgarni. Prjónið
Munnlegar heimildir:
Elsa E. Guðjónsson, fyrrverandi safnvörður
textíl- og búningadeildar Þjóðminjasafns ís-
lands, janúar 2004 og maí 2005.
Sigríður Halldórsdóttir, vefnaðarkennari,
fyrrverandi skólastjóri Heimilisiðnaðar-
skólans í Reykjavík, janúar 2004.
Vefsíður:
Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans www. lex-
is.hi.is (sótt 31.01.2004).
Héléne Magnússon er fædd í Frakk-
landi árið 1969 og þriggja barna
móðir. Hún lauk meistaraprófi í lög-
um og starfaði um skeið sem lög-
maður í París. Arið 1995 söðlaði hún
um og flutti til Islands þar sem hún
hóf síðar myndlistar- og hönnunar-
nám. Hún útskrifaðist frá textíl- og
fatahönnunardeild Listaháskóla Is-
lands árið 2004. Heimasíða hennar
er: www.helenemagnusson.com.
© Héléne Magnússon
Ljósm: Héléne Magnússon
munstur A með garðaprjóni. Endur-
takið munstrið frá *-* út umf. Fellið
af.
Endar: Takið upp 14 L á prjón nr. 3
með bláu kambgarni á öðrum enda
miðstykkisins og prjónið munstur B.
L eru fitjaðar eða felldar af til að
mynda blöð rósanna eins og sýnt er
á teikningunni. Prjónið munstur C
eins á hinn enda miðstykkisins.
Frágangur: Gangið frá lausum end-
um.
HUGUROG HÖND2006 39