Hugur og hönd - 01.06.2006, Síða 51
Norrænt heimilisiðnaðarþing
á íslandi 2007
Handverkshefðin sem innblástur að hönnun framtíðar
MargxétValdimarsdóttir, formaður norrænu nefndarinnar
Fráformannafundi norrænu heimilisiðnaðarfélaganna í Stokkhólmi, september 2005.
íforgrunni er Ib Solvang fráfarandiframkvæmdastjóri danska heimilisiðnaðarfélagsins.
Við hlið hans situr Bente Skov Machholm sem tekið hefur við afhonum.
ensku, fulltrúum Finnlands og Eist-
lands til hagræðis. A fundinum
sögðu fulltrúar aðildarlandanna frá
síðasta starfsári, rætt var um sumar-
mótið í Eistlandi og greint frá þing-
inu í Reykjavík haustið 2007.
Félagar okkar í Svíþjóð sáu um
ýmsa dagskrárliði utan fundarins.
Eftir fundinn var móttaka í verslun
heimilisiðnaðarfélagsins og sagt frá
starfseminni. Daginn eftir var síðan
boðið upp á áhugaverða fyrirlestra
um ýmis málefni sem viðkoma
heimilisiðnaði. Næsti formannafimd-
ur heimilisiðnaðarfélaganna verður
haldinn í Reykjavík haustið 2006.
Norrænt þing haustið 2007
Norræna heimilisiðnaðarþingið verður
haldið í Reykjavík 27.-30. september
2007. Þegar hefur farið fram mikil
undirbúningsvinna enda er nauð-
synlegt að vera snemma á ferðinni
eigi að takast vel til. Ráðstefnuþjón-
ustan íslandsfundir hefur verið ráð-
in til að sjá um framkvæmdahlið
ráðstefnunnar, svo sem skráningu
og bókanir en gert er ráð fyrir
200-250 erlendum þátttakendum.
Faglegur undirbúningur ráðstefn-
unnar er alfarið í höndum HFI. Dag-
skrá þingsins er skipt upp í fyrir-
lestra, skoðunarferðir á söfn og sýn-
ingar og dagsferð út fyrir borgina.
Þema
Eftir nokkra umhugsun var þema
þingsins ákveðið: Handverkshefðin
sem innblástur að hönnun framtíðar.
Þemað þykir samræmast vel tilgangi
HFÍ um að varðveita og koma áfram
til næstu kynslóða íslenskri hand-
verkshefð. Þemað þykir einnig í
samræmi við tíðarandann þar sem
ungir hönnuðir leita í sífellt auknum
mæli til handverkshefðarinnar.
Samstarfsaðilar
Til þess að vegur ráðstefnunnar verði
sem mestur hefur verið leitað sam-
starfs við ýmsa aðila sem á einn eða
annan hátt tengjast handverki og
handverkshefð. í lok janúar síðast-
liðins var haldinn kynningarfundur
þar sem mögulegum samstarfsaðil-
um voru kynntar hugmyndir að
þinginu. Góð mæting var á fundinn,
fundarmenn voru mjög jákvæðir í
garð ráðstefnunnar og tóku vel í að
leggja sitt af mörkum. Þeir sem
mættu til fundarins voru fulltrúar
Árbæjarsafns, Félags áhugamanna
um tréskurð (FÁT), Félags fata- og
textílkennara í framhaldsskólum,
Félags trérennismiða, Handprjóna-
sambandsins, Hönnunardeildar Iðn-
skólans í Hafnarfirði, frá Istex, Lista-
háskóla Islands, Textílsetursins á
Blönduósi, Verkmenntaskólans á
Akureyri og Þjóðminjasafnsins. Von-
ast er til að þessir aðilar sjái sér fært
að vinna ákveðin verkefni í sam-
ræmi við þema þingsins og sýna af-
raksturinn á sérstökum sýningum
rneðan á þinginu stendur. Hópurinn
mun hittast aftur í maí 2006 þar sem
nánar verður hugað að þætti ein-
stakra aðila.
Að lokum
Það er trú nefndarinnar að þingið
verði Heimilisiðnaðarfélaginu lyfti-
stöng. Þingið mun vekja athygli
ráðamanna og almennings á gildi
handverkshefðarinnar. Auk þess
mun samstarf ólíkra aðila í tilefni af
ráðstefnunni efalaust skila öllum
þörfu veganesti til framtíðar.
HUGUROG HÖND2006 51