Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 53

Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 53
Nemendur á hnífagerðarnámskeiöi. Ljósm. Anna Lilja Jónsdóttir. Tól og tæki til hnífagerðar. Ljósm. Anna Lilja Jónsdóttir. Baldýring. Ljósm. Anna Lilja Jónsdóttir. mæta 10-20 konur og er unnið af kappi undir leiðsögn í Hornstofunni á Laufásveginum. Námskeið í Heimilisiðnaðarskól- anum eru kynnt í fréttablaði félags- ins, í auglýsingum í ýmsum tímarit- um og dagblöðunum. Þegar nógu margir hafa skráð sig á ákveðið nám- skeið er haft samband við þá og þeim kynnt tímasetning á því. Fjöldi nem- enda á hverju námskeiði er yfirleitt 6-8, en lágmarkið er 5 nemendur. Þeir sem hafa áhuga á sérstökum námskeiðum geta skráð sig í síma skólans 551-7800, á heimasíðu fé- lagsins www.heimilisidnadur.is, eða í tölvupósti á netfangið: hfi@heimilisidnadur.is Skólinn hefur notið framlags frá Menntamálaráðuneytinu í ár eins og undanfarin ár sem gerir okkur kleift að halda skólastarfinu gangandi. Er það von okkar að svo verði áfram. Konur gerðu garðinn ... Guðrún H. Bjarnadóttir Árið 2003 voru 90 ár liðin frá því að Lystigarðurinn á Akureyri var stofn- aður. Sumarið 2003 var af því tilefni efnt til samsýningar 13 íslenskra kvenna og var þremur færeyskum konum einnig boðin þátttaka. Til- drög sýningarinnar voru þau að í janúar 2002 sýndu nokkrar norð- lenskar listakonur verk sín í Lista- safni Færeyinga. Þar kom sú hug- mynd upp að halda sýningu á Akur- eyri og þá utandyra. Var ákveðið að halda sýninguna í Lystigarðinum og heiðra þannig minningu þeirra kvenna sem stofnuðu garðinn. Hadda, lista- og handverkskona, átti glerverk á þessari sýningu. Hug- myndin að verkinu var sköpun kvenna, hvernig konur nýttu náttúr- una og umhverfi sitt sem innblástur í sköpun sína í hinu daglega amstri. Þær teiknuðu blómin og saumuðu í föt sín sem þær gengu svo í. Gang- andi listaverk. Með því að setja baldýringamynstur á gler og láta það standa í garðinum gátu dætur þessara kvenna séð móta fyrir sér í glerinu og orðið hluti af verkinu og arfinum. Verkið hlaut nafnið „Hjarta- góð, hjálpfús, trygg, ástrík, stillt, sið- prúð, reglusöm, sparsöm, skyldu- rækin, hentug." Þar sem verkið stóð á grasflöt var vel hægt að ímynda sér að garður- inn væri kominn í þjóðbúning. Ljósm. Hadda HUGUROG HÖND2006 53

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.