Gríma - 01.09.1940, Side 11

Gríma - 01.09.1940, Side 11
ÞÁTTUR AF STUTTU-SIGGU 9 verið um stundar sakir, því að talin er hún heimil- isföst í Flöguseli ár frá ári allt til 1846, eða fram yfir þrítugsaldur. — Um það leyti hefur Benedikt faðir hennar verið hættur að búa, enda dó hann á þorra 1847, en Rósa móðir hennar dó á miðsumri 1843. Hér hefur verið reynt að lýsa æsku- og unglings- árum Siggu eftir því sem heimildir herma. Ber frá- sögnum manna alveg saman í öllum aðalatriðum, og þó að nokkru skeiki í aukaatriðum, liggur það í aug- um uppi, að hún hefur alizt upp við ótrúlega harð- ýðgi og miskunnarleysi. Hún gat aldrei fyrirgefið föður sínum harðneskju hans og hataði hann alla æfi, svo að aldrei kallaði hún hann annað en helvítis karlinn. Systkinum sínum bar hún nokkuð misjafna sögu, en móður sinnar minntist hún jafnan fremur hlýlega. Segir þó sonarsonur hennar, Magnús Odds- son í Bási (f. 1854), að Rósa amma sín hafi í engu verið eftirbátur manns síns í harðneskju. — Það kemur öllum saman um það, að þótt Benedikt væri Siggu verstur af börnum sínum, þá hafi hin einnig fengið að kenna á harðýðgi hans. Einu sinni hafði hann að vetri til komið frá gegningum inn í bað- stofuna, og voru þá einhver af yngri börnunum ekki komin á fætur. Tók hann þau þá í fang sér, bar þau hálfnakin út á hlað og fleygði þeim í snjóskafl, en hríð var á og harðviðri. Þó er þess ekki getið, að börnin sakaði. Friðfinnur bróðir Siggu var seinþroska og þótti fákænn. Þegar hann var unglingur, sendi Benedikt hann eitt sinn að vetrarlagi vestur að Reykjum i Hjaltadal. Átti hann að koma að vestan daginn eftir, en þann dag árdegis skall á stórhríð, svo að Benedikt varð hræddur um drenginn, enda taldi hann líklegt,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.