Gríma - 01.09.1940, Qupperneq 59
GUÐMUNDUR ELDRI SKÁLD í ENNISKOTI 57
Eg er kominn eins og þú
inn á hreppaskilin.
Margt var fleira sagt frá Steini og kveðskap hans,
en ekki skal þó fleira til tínt.
c. Frá Sigurði Guðmundssyni skeggja.
Sigurður Guðmundsson var kallaður skeggi, ekki
af því að skeggvöxtur hans væri meiri en annarra
manna, heldur sökum þess, að þegar hann var við öl,
sem oft bar við, raulaði hann jafnan fyrir munni sér
erindi úr Þórðarrímum, og var það þetta:
Skeggi svarar: Sýndu mér o. s. frv.
Ekki voru þeir bræður skaplíkir, Sigurður og
Steinn, því að Steinn var, eins og áður er getið, upp-
vöðslusamur og ójafnaðarmaður, einkum við vín, en
Sigurður var geðgóður og hæglátur hversdagslega,
kátur og fyndinn í orðum. En við vín þótti hann ert-
inn í meira lagi og gat verið svo meinyrtur, að fáir
vildu þá verða til að eiga orðasennu við hann; var
sagt, að honum yrði aldrei svarafátt við hvern sem
um var að eiga.
Lítið ástríki var með þeim bræðrum, og var sagt,
að Steinn væri reiður jafnan, er fundum þeirra bar
saman; svo mjög óttaðist hann stríðni bróður síns,
að hann tók honum illa upp jafnvel hin meinlaus-
ustu orð og brást reiður við. Þannig er sagt, að þeir
kæmu einu sinni báðir í einu að Núpdalstungu og
gistu. Um kveldið reyndi Sigurður að halda uppi
samræðum og braut upp á ýmsu, sem fólki þótti
gaman að, en Steinn svaraði fáu og lét samtalið að
mestu hlutlaust, en þó fór ekki óálitlega með þeim
bræðrum. Svo var þeim vísað til sængur, og skyldu
þeir sofa saman. Steinn háttar fyrr og leggur sig við