Gríma - 01.09.1940, Page 63

Gríma - 01.09.1940, Page 63
GUÐMUNDUR ELDRl SKÁLD 1 ENNISKOTI 61 móðsku og hinu illa eftirdæmi. — Eg vona nú, að Guð almáttugur gefi okkur það, að þér hafið ekki talað þessi orð til einskis, en að við megum hafa þau hugföst og að þau verði okkur til viðvörunar og blessunar — báðum“. Að svo mæltu fór hann út. — Ekki er þess getið, hversu presti brá við. Sú er sögð síðasta ferð Sigurðar, að hann fór í kaupstað á Borðeyri að vori til. Tíðarfar var fremur slæmt og færð engu betri, og ofreyndi Sigurður sig og ofkældi á ferðalaginu. Þetta var veikinda-vor hið mesta, og lagðist flest fólk víða á bæjum; er því lik- legt, að hann hafði fengið minni aðhlynningu, þar sem hann varð að gista, en ella hefði orðið. Veiktist Sigurður á heimleiðinni og fékk lungnabólgu. Brauzt hann þó áfram yfir hálsana og þangað til hann komst að Refsteinsstöðum í Víðidal. Þá var hann þrotinn og lagðist hann þar. Hann hafði talsvert með sér af brennivíni, og fyrstu dagana, sem hann lá, drakk hann óspart og var þá bæði fullur og með óráði, söng og talaði við sjálfan sig með slíkum há- vaða, að fólk jafnvel hafði ekki svefnfrið. En á þriðja degi bráði svo af honum, að hægt var að mæla við hann. Bóndinn á Refsteinsstöðum hét Guðmund- ur, og var honum, eins og reyndar flestum öðrum, hlýtt til Sigurðar. Hann gengur nú til tals við hann og segir m. a.: „Ósköp er nú á þér, Sigurður minn, að drekka svona og láta svona illa. Þú ert nú bráð- um orðinn gamall maður, og eins og nú er komið, veizt þú ekki, hvert stefna muni fyrir þér, og ekki nema þessi lega geti orðið þín síðasta; þú ættir nú að hugsa um það og ekki drekka svona eða láta svona, eins og þú lætur, — eða heldurðu nú ekki, að Guði leiðist að heyra lætin í þér?“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.