Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
Fagmenn SS á Hvolsvelli
eru þessa dagana að leggja
lokahönd á framleiðslu
súrmatarins fyrir kom-
andi þorra. Sláturfélagið
fagnar 110 ára afmæli á
þorranum, en félagið var
stofnað við Þjórsárbrú 28.
janúar 1907.
Hermann Bjarki
Rúnarsson, verkstjóri hjá
Sláturfélagi Suðurlands,
segir að í gegnum áratugina
hafi kjötiðnaðarmeistarar
SS lagt metnað í fram-
leiðslu þorramatar þar sem
gamlar hefðir og aðferðir
eru í hávegum hafðar.
Þorramatur eins og gott
vín
„Líkt og með góð vín sem
standast gæðakröfur ár
eftir ár, er blæbrigðamun-
ur á þorramat frá ári til
árs. Framleiðsla á súrmat
er langt ferli og hefst yfir-
leitt síðsumars eða snemma
hausts þegar hráefni er valið
og fyrstu bitarnir lagðir
í súr. Síðan hefst verk-
unarferli þar sem grannt er
fylgst með framvindu mála,
sýrustigi, hitastigi, bragði
og áferð frá degi til dags.“
Aðgangur að súrmats-
kjallaranum er takmarkað-
ur og aðeins fáir útvaldir
fá að annast súrmatinn til
að tryggja að verkunin sé
eins og best verður á kosið.
Það er því spennuþrungin
stund þegar líður að ára-
mótum og kjötiðnaðar-
meistararnir bjóða upp á
fyrstu bragðprufur og leggja
árangurinn í dóm samstarfs-
manna. Menn horfa, þefa,
smakka, tyggja og smjatta
og láta svo skoðanir sínar
óspart í ljós.
Tókst vel til í ár
„Í ár þykir vel hafa tekist til og segja menn að
bragð súrmatarins endurspegli góða veðráttu
síðastliðið sumar. Lömb komu væn af fjalli og
hráefnið því óvenjugott og með keim af lyngi
og vallhumli. Af sömu ástæðum hafi skyrmysa
í ár skilað einstöku súrbragði með undirliggj-
andi bragði af grængresi,“ segir Hermann
Bjarki Rúnarsson, verkstjóri hjá Sláturfélagi
Suðurlands. /VH
Sláturfélag Suðurlands 110 ára:
Bragð þorramatar endurspeglar
veðráttu síðastliðins sumars
Líf og starf MÆLT AF
MUNNI FRAM
Þ ó nokkuð af bókum barst inn á heimili okkar Petru Bjarkar um síðustu jól. Þrátt fyrir gyllandi
umsagnir gagnrýnenda þótti okkur sem
hefði mátt komast af án þeirra. Það er
nefnilega einu sinni svo, að smekkur
fyrir tilteknum bókum er verulega einstak-
lingsbundinn, og ekki til nein algild regla
fyrir bókasmekk. Hvað mesta gleði vakti
heimilisfólki eitt lítið „lettersbréf“, sem
barst okkur að baki jólum, eða réttara
sagt 10. janúar sl. Bréfið var frá Indriða
Aðalsteinssyni, bónda á Skjaldfönn. Líkt
og margir þekkja, þá fékk Indriði fé sitt
vistað í fyrravetur hjá vinum sínum á
Ströndum meðan hann dvaldi ásamt Lóu
konu sinni í Hveragerði. En Indriði hélt
aftur heim þegar leið á vetur, sótti sitt fé
úr fóstri og tók upp þráðinn við bústang
sem fyrr var hans venja. Bréf Indriða kallar
hann jólabréf, og er eins konar ársskýrsla
(annual report) síðasta árs. Kominn til
Hveragerðis orti Indriði:
Auðgar drjúgum anda minn
allt sem hér um slóðir finn.
Kyssir ánægð karlinn sinn
Hveragerðisdrottningin.
Indriði fór auðvitað með konu sinni Lóu á
þorrablót þar syðra:
Nú mun brátt um byggðir lands,
borið upp af fornri rót,
að menn langi í drykkju og dans
og drífi sig á þorrablót.
Indriði fylgdist nú með heimsfréttum af
meiri gjörhygli en gjarnt var, enda ekki
bundinn af málaverkum. Fréttir af flótta-
mannastraumi voru daglegt fréttaefni:
Yfir gresjur, heiðar, höf,
haldin dauðaótta,
milljónir að nyrstu nöf
nú eru á flótta.
Að áliðnum apríl 2016 er svo Indriði kom-
inn vestur að Skjaldfönn með fé sitt allt sem
fóstrað var á Ströndum.
Færist líf í fjallageim.
Frostsins veldi hallar.
Kindur mínar komnar heim,
kyssi ég þær allar.
Forsetakosningarnar voru í algleymi, og
Indriði fylgdist með:
Davíð er margt til lista lagt,
líkar ekki gengi slakt.
Skeiðar að marki skrefum hröðum
skemmtanastjóri á Bessastöðum.
Guðni æddi alla leið,
ekki nærri að falla.
Öflug þó við endaskeið
að honum sótti Halla.
En hugurinn fló oft til hamingjustunda í
Hveragerði:
Við áttum saman gæskan, góða daga
sem gullnum bjarma stafar jafnan frá,
og mikilvægt að halda þeim til haga
er hjartað kvelst af trega og eftirsjá.
Afmælisdagur Lóu gleymdist stundum eins
og gengur. Daginn þann batt Indriði í rím
svo aldrei gleymdist:
Sjöundi ágúst er sólskinsdagur,
sjöundi ágúst er bjartur og fagur.
Hann vil ég meitla í huga minn.
Hann er afmælisdagurinn þinn.
Svo leið að smaladögum:
Fallega húfan er fokin sinn veg
og farinn að kólna minn skalli.
Norðaustanáttin er andstyggileg
uppi á Skjaldfannarfjalli.
Sauðkindin er sál vors lands,
sómi og prýði eigandans.
Flytur líf í fjallasal,
færir arð um strönd og dal.
171
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Starfsmenn með 2017-árganginn af blönduðum SS súrmat. Alicja Poplawska, Halina Poplawska, Pawel Bokiniec, Hermann Bjarki Rúnarsson
og Rebecca Antioquia.
Hermann Bjarki Rúnarsson verkstjóri með fötum af 2017 árgerðinni af SS súrmat.