Bændablaðið - 09.02.2017, Qupperneq 24

Bændablaðið - 09.02.2017, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017 Nöfn á sauðfé eru fjölbreytt en algengast mun vera að nefna það eftir útlitseinkennum eins og lit eða hornalagi. Nöfn sem vísa til skapgerðar eru einnig vel þekkt. Ábúendur að Kaldbak á Rangárvöllum viðhalda annarri og sérkennilegri nafnahefð fyrir sauðféð sitt. Algeng nöfn sem tengjast lit, hornalagi og skapgerð eru Fönn, Gríma, Flekka, Móra, Botna, Frekja og Blíða. Algengustu nöfn á ám á Íslandi munu vera Hvít, Gul, Hyrna og Kolla. Einnig er þekkt að bændur nefni allar ær í ásetningsárgangi með nafni sem byrjar á sama bókstaf og vita þannig hvaða ár viðkomandi ær eru fæddar. Eflaust kannast færri við ærnöfn eins og Úrkoma, Væta, Klettaklanka, Sigurklanka eða Hæ-Kola, Hæ-Gjöf, Hæ-Fósturlandsinsfreyja og Flangsvesenoglætiklanka. 260 ær og mikil skógrækt Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson, ábúendur að Kaldbak á ofanverðum Rangárvöllum, eru með sauðfé, hross og skógrækt auk þess sem þau eru að breyta fjósinu í gisti- heimili og aðstöðu fyrir ferðamenn. Viðar segir þau vera með um 260 vetrarfóðraðar kindur sem þau þekkja allar með nafni og um 40 hross. „Við höfum stundað skógrækt í samvinnu við Suðurlandsskóga í tæp þrjátíu ár og ræktum skóg á um annað hundrað hekturum við Ytri- Rangá en alls er Kaldbakur um 400 hektarar að stærð. Ætli við séum ekki að setja niður um 10 þúsund plöntur á ári og árangurinn er mjög góður. Mest hefur verið sett niður af birki. Ösp og stafafura dafna einnig vel en greni hefur aftur á móti átt erfiðara uppdráttar. Svo er nýtt afbrigði af lerki sem heitir Hrymur sem lofar góðu.“ Auk skógræktar hafa Sigríður og Viðar verið virk í ræktunarstarfi búfjár. Í dag eru hrútar og stóðhestar frá þeim landsþekktir og meðan þau bjuggu með kýr komu nokkur naut frá þeim á Nautastöð Bændasamtaka Íslands að Hesti í Borgarfirði. Nafn gimbra frá móður Sigríður, sem er fædd og uppalin á Kaldbaki, segir langa hefð fyrir því að ánum í sveitinni sé gefið nafn. „Ég, eins og aðrir krakkar hér í sveitinni, átti mínar kindur og vandist því að gefa þeim nöfn. Þrátt fyrir að nöfnin sem kindurnar fengu séu ekki endilega hefðbundin sauðfjárnöfn byggja þau á ákveðnu kerfi sem felst í því að gimbrar halda að hluta nafni móður og er það eins konar ættarnafn. Þegar foreldrar mínir fluttu að Kaldabaki, árið 1958, hafði móðir mín með sér nokkrar kindur og margar þeirra báru heitið Klanka sem hluta af nafni sínu, eins og Hólaklanka, Klettaklanka og Sigurklanka. Klönku-nafnið kom til þannig að móðir mín heitir Klara og bróðir hennar stríddi henni með því að uppnefna hana Klönku. Hún kall- Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson, ábúendur að Kaldbak á ofanverðum Rangárvöllum. Myndir / VH Ærnöfn í fjárbók frá Kaldbak 1967. Nöfn hluta áa sem voru á gjöf að Kaldbak veturinn 1969 til 1970.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.