Bændablaðið - 09.02.2017, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
„Sauðfé er fljótt að læra og skynsamt“
− segir einn reyndasti dýratamningamaður landsins, Ásta Dóra Ingadóttir, sem býr í Mosfellsdal
„Svo einkennilega sem það hljóm-
ar þá sagði mamma mér að ég
hefði nokkurra mánaða gömul séð
einhvern bleikan tuskuhund. Hún
fullyrti að við það hefði eitthvað
gerst í höfðinu á mér.“ segir Ásta
Dóra Ingadóttir, aðspurð um það
hvernig þessi ótæmandi áhugi á
dýrum hafi byrjað.
Ásta Dóra stofnaði hundaskólann
Gallerí Voff árið 1991 eftir að hafa
útskrifast úr hinum virta hundaskóla,
The Northern Centre for Animal
Behaviour á Englandi. Hún hefur
einna mestu reynslu af dýratamn-
ingum hér á landi og hefur tamið
fjölda dýra fyrir leikhús, auglýsingar
og bíómyndir.
„Þegar ég var lítil átti ég fyrst
heima í Garðsenda í Reykjavík en
þrátt fyrir hundabann gengu nokkr-
ir hundar oft lausir í hverfinu. Ég
var mjög ung, kannski fimm ára,
þegar ég tók hunda sem voru á ferli
traustataki, setti þá í band, og fór
með þá heim og gaf þeim mjólk.
Síðan sleppti ég þeim bara út aftur.
Ég flutti síðan í Árbæjarhverfið.
Þar sem ég bjó í blokk var ekki
möguleiki að vera með dýr, svo ég
fór að fara upp í Víðidal og Fák og
niður í Smálönd til að fá að fara á
hestbak og vera innan um hestana.“
Dýraáhugi Ástu Dóru nær til allra
dýra. Á yngri árum safnaði hún gras-
möðkum í krukku og tók mýs með
sér heim úr hesthúsunum við litla
gleði annarra á heimilinu. „Mamma
varð ekkert sérstaklega hrifin þegar
mýsnar voru farnar að hlaupa upp
gólfsíðar gardínurnar í stofunni og
taka sér bólfestu uppi á gardínuköpp-
unum.“
Kindin Skvetta lék í síðasta
áramótaskaupi
Eins og fyrr segir hefur Ásta Dóra
rekið hundaskóla frá árinu 1991
og heldur hundanámskeið á öllum
árstímum. Hún býr einnig með
nokkrar kindur og hesta á búgarði
sínum, Reykjahlíð í Mosfellsdal.
Ásta Dóra var ung þegar hún fór að
vinna í Tjaldanesi þar í nágrenninu
og bjó þá í Reykjahlíð, sem hún síðar
keypti.
Dýrin hennar Ástu Dóru hafa
leikið í sjónvarpi og kvikmyndum
og í síðasta áramótaskaupi lék kindin
Skvetta í fyrsta atriði þess. Þá þjálf-
aði hún líka labrador-hundinn sem
leikur í nýlegri og skemmtilegri
auglýsingu frá Skeljungi. Þá hljóp
kötturinn hennar, Jói, á eftir rauðum
hnykli um allt hús í sjónvarpsaug-
lýsingu.
„Fyrstu þrjár kindurnar mínar
fékk ég, móðurlaus lömb, frá Heiðar-
bæ í Þingvallasveit, Síðan hefur
þeim aðeins fjölgað. Ég fer með
kindur og hunda daglega í göngutúra
og rölti hér í nágrenninu ýmist upp
í fjall eða í göturnar hér í kring. Ég
skipti mér ekki mikið af þeim nema
ef ég þarf að fara yfir þjóðveginn
eða víkja fyrir umferð á götunum
hér í kring. Þá gegna þær innkalli
og koma á sprettinum og fá gras-
köggla í verðlaun. Kindurnar njóta
göngutúranna og þær narta, skoða
og stangast á en ég þarf aldrei að
þvinga þær til að koma með. Viðra
líka sjálfa mig og alla hundana sam-
tímis. Yfir fengi tímann fæ ég lánaða
hrúta og þeir falla strax inn í hópinn
og fara bara með í göngutúrana,“
segir hinn snjalli dýratemjari, Ásta
Dóra Ingadóttir. /AG
Ásta Dóra í daglegum göngutúr í Mosfellsdal með kindurnar sínar og hunda. Sjónvarpsstjarnan Skvetta gengur fremst. Myndir / Arnheiður Guðlaugsdóttir og í einkaeign
-