Bændablaðið - 09.02.2017, Page 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
MENNING&LISTIR
Í bókaflóðinu fyrir síðustu jól þá
kom ein bók sem líklega varðar
íslenskan landbúnað meira en
aðrar bækur og líklega meiru
en allar bækur margra síðustu
áratuga. Þetta er meistaraverk
Steinunnar Sigurðardóttur sem
ber heiti þessarar greinar.
Þessi bók hefur ekki fengið neina
sérstaka umfjöllun Bændablaðsins
sem hefur vakið furðu mína. Er þá
undaskilin fréttafrásögn af netinu
um veitingu Fjöruverðlaunanna,
sem þetta magnaða rit hreppti af
verðleikum. Aðeins birtir blaðið
netfrásögnina enda virðast slíkir
pistlar uppáhaldsefni blaðsins. Ég
tel þetta það merka bók að hún eigi
skilið meiri umfjöllun hjá blaði sem
auglýsir sig sem málgagn bænda í
blaðhausi sínum. Vil ég því víkja að
bókinni örfáum orðum hér á eftir.
Ég vil byrja með að fullyrða að
þessi bók sé dýrmætasta auglýsing
sem íslenskur landbúnaður hefur
fengið um áratuga skeið. Allt í einu
kemur bók sem skipar sér á met-
sölulista bóka í landinu og er lesin
af þúsundum landsmanna í borg
og bæ. Þarna fá þeir snilldarlega
og sanna lýsingu á hinu daglega
lífi einyrkjans í dreifbýli á Íslandi.
Augljóslega getur aldrei einn verið
lýsing fyrir fjöldann en þær stöllur
segja þarna á sannan og nákvæman
hátt frá störfunum á búinu, breyti-
legum frá einum árstíma til annars.
Berum þetta saman við háttlaun-
aða ímyndasmiði og auglýsinga-
jöfra sem telja sig hafa verið að
vinna fyrir íslenskan landbúnað
á undanförnum árum. Þeir hafa
áreiðanlega fitnað af sínum laun-
um meðan engar slíkar sögur fara af
þeim stöllum, Steinunni og Heiðu.
Vinna auglýsingamógúla hefur held
ég ákaflega litlu skilað í skilningi
milli þéttbýlis og dreifbýlis. Þær
stöllur skila hins vegar frá sér lista-
verki sem þar byggir áreiðanlega
traustar brýr.
Hvernig gerist þetta?
Það er vegna þess að hér birtist
okkur frásögn af sönnu daglegu lífi í
íslenskri sveit sem hefur verið færð
í frábæran listrænan búning. Hún er
sönn, hvorki lítillækkun á umhverf-
inu né upphafning til skýj anna. Þess
vegna höfðar hún til fólks. Þarna er
sagt frá lífsgildum Heiðu á sannan
hátt, lífsgildum sem hún lýsir vel
hvernig hún hefur öðlast gegnum
uppruna sinn, uppeldi og umhverfi.
Hér höfða ég til viðhorfa til hluta
eins og jafnréttis, náttúru, menn-
ingar og starfs í dagsins önn svo
að eitthvað sé talið.
Skýrt er gert fyrir nokkuð sér-
stöku uppeldi Heiðu í barnæsku.
Þar fær hún jafnréttið með móður-
mjólkinni. Það er áreiðanlega líka
rétt að viðhorf til jafnréttismála eru
ákaflega misjöfn á milli sveita en í
Skaftártungunni eru þau eðlilegur
hlutur. Þess vegna verður það bros-
legt fyrir þær skólasysturnar, Heiðu
og Oddnýju Steinu, þegar kennarar
við Bændaskólann á Hvanneyri fara
að uppfræða þær um karlmannsverk
sem verið höfðu þeirra daglegu störf
á unglingárunum.
Heillaðist af þessari ómælisfegurð
Heiða elst upp á Ljótarstöðum sem
má segja að sé einn þröskuldanna
að hálendi og víðernum Íslands.
Þess vegna heillast hún strax sem
unglingur af þessari ómælisfegurð.
Henni er greinilega runnin í merg
og bein sú hugsun að náttúran hefur
sinn sjálfstæða rétt og undirstöðu
sjálfbærrar hugsunar að landið sem
við höfum undir honum höfum við
aðeins til umsjónar og ber að skila
betra til næstu kynslóðar. Þess vegna
er það nær sjálfsagt að jafn virkur
þegn og hún er að rísa upp til and-
svara og andstöðu þegar hin hreina
tæknihyggja hyggst umbylta hennar
nánasta umhverfi með hag erlendra
fjármagnseigenda sem helsta leiðar-
ljós. Það hlýtur að vera öllu ærlegu
fólki góð lesning að heyra frásagnir
Heiðu af bolabrögðum sem þessir
aðilar beita af fyllstu ósvífni í öllum
sínum málarekstri.
Nærgætin umgengni við
bústofninn
Hinum sönnu viðhorfum til daglegra
starfa er einkar vel lýst. Það þarf að
vinna dagleg störf
skipulega og af
festu. Sérlega
kemur þetta vel
fram í mörgum
bráðskemmti-
legum lýsingum
Heiðu af sam-
starfi hennar og
Elínar Heiðu að
fósturtalning-
um sem þær
hafa starfað
að um árabil.
H e i ð a
lýsir einnig
einkar vel
nærgætinni
og skiln-
i n g s r í k r i
umgengn i
sinni við
bústofninn
hvort sem er
um að ræða
sauðféð eða
hundana á
bænum.
Hér læt ég staðar numið að benda
á áhugaverð viðhorf.
Íslenskir bændur munu seint geta
launað þeim stöllum, Steinunni og
Heiðu, þetta einstaka listaverk. Það
er dýrðaróður til íslenskrar náttúru
og starfa íslenskra bænda. Það
byggir traustar brýr skilnings til
þéttbýlisbúanna á viðhorfum fólks
sem býr í mestu dreifbýli á Íslandi.
Slíkt verður aldrei þakkað.
Hvetja verður allt fólk til þess að
lesa þessa einstöku bók.
/Jón Viðar Jónmundsson
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is Reykjavík
Lyngháls
Akureyri
Óseyri
Borgarnes
Borgarbraut
Blönduós
Efstubraut
Hvolsvöllur
Fínt möluð og lystug steinefnablanda fyrir mjólkurkýr
Köggluð og lystug steinefnablanda fyrir mjólkurkýr
Steinefnablanda fyrir nautgripi og kindur
Magnesíumfata fyrir kýr og kindur auðug af steinefnum
og vítamínum
Bætiefnafata fyrir mjólkurkýr með hátt kalsíuminnihald
Bætiefnafata sem mætir steinefna- og vítamínþörfum
kúa á geldstöðu
Steinefnabættur saltsteinn fyrir jórturdýr
Saltsteinn fyrir allan búfénað
Vítamínbættur steinefnasteinn sem hentar
sérstaklega vel fyrir sauðfé
úða á heyin eða blanda í drykkjarvatn
Öll verð eru með vsk.
HEIÐA – fjalldalabóndinn