Bændablaðið - 09.02.2017, Side 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
kemur í ljós að af þessum 150 búum
taka 141 þeirra þátt í skýrsluhaldinu
eða 94% sem er svipað og hefur
verið undanfarin ár. Það vekur alltaf
furðu þegar þetta hlutfall er skoðað,
að allir notfæri sér ekki tölvutæknina
betur og taki þátt í hinu sameiginlega
skýrsluhald.
Uppbygging mjaltaþjónanna
er þannig að öllum skýrsluhalds-
u pplýsingum þarf hvort sem er að
halda til haga, svo það sem á vantar
er nánast einungis að taka kýrsýnin.
Sé horft til þeirra búa sem eru
með í skýrsluhaldinu þá kemur
í ljós að meðalnýtingarhlutfall
þessara búa, þ.e. innvegið mjólkur-
magn miðað við reiknaða skýrslu-
haldsnyt, var 92,9% á liðnu ári. Er
það nokkuð undir væntingum um
innvigtunarhlutfall mjólkur sem
oftar en ekki hefur verið í kringum
94-95% miðað við eðlileg afföll auk
heimanota mjólkur bæði til kálfa og
heimilis. Á þessu geta þó verið ótal
skýringar sem ekki verður reynt
að fara nánar út í hér. Á það hefur
áður verið bent að svo virðist sem
mjaltaþjónarnir mæli ekki alltaf rétt.
Eitthvað sem er afar einfalt að kanna
með því einfaldlega að bera saman
þriggja daga innvigtunina og bæta
við frátökumjólk og heimanotum.
Samtalan á einfaldlega að passa við
þá tölu sem mjaltaþjónninn telur að
hafi verið mjólkað á sama tíma.
Nokkur bú víkja verulega frá
hinni reiknuðu framleiðslu og alls
lögðu t.d. 14 bú inn mun meiri
mjólk en þau hefðu getað framleitt
samkvæmt skýrsluhaldinu og 20
bú til viðbótar lögðu inn svo hátt
hlutfall mjólkurinnar að það bendir
til þess að mjólkurmælarnir mæli of
lítið, þ.e. raunnyt kúnna er meiri en
skýrsluhaldsupplýsingarnar benda
til. Rétt er að minna á að það er
óhemju mikilvægt að allir kúa-
bændur, óháð þeirri mjaltatækni
sem er notuð við mjaltir, fylgist
sjálfir vel með því að skýrslu-
haldsnytin haldist vel í hendur við
innlagðar afurðir. Enda er fóðurgjöf
miðuð við afurðasemi kúnna og séu
afurðirnar ranglega metnar, verður
t.d. kjarnfóðurskömmtunin kolröng.
69 árskýr á hverju mjaltaþjónabúi
Alls voru 10.342 árskýr á mjalta-
þjónabúum landsins árið 2016 eða
sem svarar til 69 árskúm að jafn-
aði á hverju mjaltaþjónabúi og að
jafnaði 55 kýr á hvern mjaltaþjón.
Þetta eru heldur færri árskýr á hvert
mjaltaþjón en árið 2015 þegar þessi
fjöldi var 57,1. Bendir þetta til þess
að þónokkur fjöldi búa sé að byggja
upp bústofn sinn eftir skipti yfir í
mjaltaþjónatæknina
6.596 kg að meðaltali
Líkt og vænta má er meðalnyt kúa-
búa með mjaltaþjóna nokkuð hærri
en annarra búa hér á landi en skýr-
ingin felst m.a. í tíðari mjöltum og
virkara framleiðslustýringarkerfi. Í
því uppgjöri sem þessi úttekt nær
til var notast við skýrsluhaldsupp-
lýsingar Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins fyrir síðastliðið ár.
Þegar búið er að draga skýrslu-
haldsafurðir kúa mjalta þjónabúa
frá afurðum kúa á öðrum búum er
meðalnyt kúa annarra búa 5.829 kg
en meðalnyt kúa mjaltaþjónabúanna
6.596 kg. Munar þarna 11,6% á milli
þessara ólíku fjósgerða og ólíku
mjaltatækni sem notuð er og sem
skýra má sem fyrr segir bæði með
tíðari mjöltum og góðri bústjórn.
6 bú með frumutölu lægri en
150 þúsund
Þegar horft er til mjólkurgæða frá
búum með mjaltaþjóna eru mun færri
bú með lága frumutölu en vænta
mætti. Margfeldismeðaltal frumu-
tölu allra 150 búanna var 248.054
sem er því miður veruleg hækkun frá
því árið 2015 þegar hún var 242.358.
Ekki nema 6 bú voru með frumutölu
sem var lægri en 150 þúsund að með-
altali og lögðu 2 af þessum búum
inn meira en 400 þúsund lítra. Ekki
nema 36 bú af 150 náðu því að vera
með frumutöluna að jafnaði undir
200 þúsundum á síðasta ári.
Þá voru 33 bú með hærri frumu-
tölu en 300 þúsund sem er auðvitað
allt of há frumutala og óásættanleg
fyrir alla kúabændur, enda dregur
það úr afurðasemi kúnna auk þess
sem mikill kostnaður fylgir hárri
frumutölu að jafnaði.
Eins og sjá má af tölunum hér
að ofan eru til fjöldamörg bú sem
geta framleitt mjólk með mjaltaþjóni
og frumutölu sem er lægri en 150
þúsund svo það ætti að vera hvati
til þess að gera betur. Svo til enginn
munur var á frumutölunni eftir
því hvaða tegund mjaltaþjóns var
notuð, svo dagljóst er að hægt er að
ná góðum árangri óháð því hvaða
tegund mjaltaþjóns er notuð.
30 bú með meðaltal líftölu lægri
en 20 þúsund
Það hefur lengi loðað við mjalta-
þjónatæknina að líftalan eigi það
til að vera of há en að vera með líf-
tölu sem er í hærra lagi er þó ekki
lögmál og voru t.d. 30 kúabú með
líftölu að jafnaði sem var lægri en
20 þúsund/ml á síðasta ári og þar
af voru einnig bú með fleiri en einn
mjaltaþjón. Þá voru 8 mjaltaþjóna-
bú með lægri líftölu að meðaltali
en 15 þúsund/ml og sýnir að það er
vel hægt með góðri bústjórn að vera
með lága líftölu þrátt fyrir að vera
með mjaltaþjón.
Á hinn bóginn voru einnig allt of
mörg bú með líftölu sem var hærri
en 50 þúsund/ml eða alls 27 bú.
Rétt er að minna á að þessi bú nota
nákvæmlega sömu tækni og búin
sem eru á hinum enda listans og því
dagljóst að það eru til bæði tækni-
legar og bústjórnarlegar lausnir sem
geta komið böndum á of háa líftölu
á mjaltaþjónabúi.
Samantekt þessi byggir á
upplýsingum frá Auðhumlu og
Mjólkurafurðastöð KS auk þess
sem notuð voru gögn sem aflað
var hjá Bústólpa, VB landbúnaði,
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
og Bændasamtökum Íslands.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Sviðsstjóri mjólkurgæðasviðs
Dýralækninga- og gæðadeild
SEGES í Danmörku
Fullgilt greiðslumat
á þremur mínútum
Nú geta allir fengið nákvæma mynd
af greiðslugetu sinni með nokkrum
smellum á arionbanki.is.
Kynntu þér þessa spennandi nýjung
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 − Næsta blað kemur út 23. febrúar