Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
Slökunarpúði
HANNYRÐAHORNIÐ Gallery Spuni
Það er svo ótrúlega gaman að fegra
heimilið sitt og þá sérstaklega með
persónulegum gjöfum sem maður
fær eða með einhverju sem maður
hefur sjálfur búið til.
Þessi æðislegi prjónaði púði er
fullkomin í slíkt verkefni og eru fleiri
mynstur inni á www.garnstudio.com
– garnið er allt hægt að fá hjá okkur.
Slökun með DROPS Design
Prjónaðir DROPS púðar með 4 þráðum úr „Eskimo“ með
garðaprjóni og köðlum eða brugðnum lykkjum. Einnig
hægt að prjóna þá með 2 þráðum Polaris.
DROPS Design: Mynstur nr ee-542.
Garnflokkur E + E + E + E eða F + F.
PÚÐI MEÐ KÖÐLUM:
Mál: Ummál: Ca 144 cm (með fyllingu). Ummál: Ca 48
cm. Hæð: 25 cm.
Efni: DROPS ESKIMO frá Garnstudio 750 gr litur nr
01, natur.
Eða notið:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1000 gr litur nr 01, natur
PÚÐI MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM SEM FÆRAST TIL:
Mál: Ummál: Ca 150 cm (með fyllingu). Þvermál: Ca
48 cm. Hæð: 25 cm.
Efni:
DROPS ESKIMO frá Garnstudio
700 gr litur nr 47, ljós beige
Eða notið:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1000 gr litur nr 06 ljós beige
DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 15 – eða sú stærð
sem þarf til að 7 l og 8 umf með sléttprjóni eða 7 l og
12 umf með garðaprjóni með 4 þráðum Eskimo (eða 2
þræðir Polaris) verði 10 x 10 cm.
1 dúnkoddi (1400 g) eða 2 dúnkoddar (700 g) fyrir fyll-
ingu (best er að nota dún því auðveldast er að forma
koddan til). Ódýrasta gerðin hentar vel – við höfum
notað sumarkodda sem er ca 1400 gr).
1 koddaver í sama lit og koddinn (til þess að hlífa koddan-
um og að hann sjáist ekki í gegnum lykkjurnar).
TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið enda innan úr dokkunni og utan með. Þegar skipt
er um dokku er gott að skipta ekki um báða endana í
einu – þá verður skiptingin ekki eins þykk.
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
MYNSTUR:
Sjá teikningu A.1 og A.2. Teikning sýnir allar umf í mynstri
séð frá réttu.
ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn, í næstu
umf er uppslátturinn prjónaðar snúinn slétt (þ.e.a.s.
prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma
í veg fyrir göt.
PÚÐI MEÐ KÖÐLUM:
Púðinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna –
LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR!
Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 15 með 4 þráðum Eskimo
eða 2 þráðum Polaris.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið * 1 l sl, sláið uppá prjóninn
*, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið 2 l sl
í síðustu l = 12 l.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l. ATH: Uppslátturinn
er alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s.
prjónið aftan í lykkjubogann í stað fyrir framan) svo
að ekki myndist gat! Setjið eitt prjónamerki í 2., 4., 6.,
8., 10. og 12. l.
Haldið síðan áfram með GARÐAPRJÓN – sjá skýringu
að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l á undan hverri
l með prjónamerki (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING!
Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum
til viðbótar = 60 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir = 72 l.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig:
Prjónið A.1 (= 6 l) 12 sinnum á breiddina (ATH: Ekki er
prjónuð kantlykkja þar sem l eru svo þykkar). Þegar allt
A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið fyrstu
5 umf í A.1 (síðasta umf frá réttu). Prjónið nú 1 umf br
frá röngu. Haldið nú áfram með garðaprjón til loka. Í
næstu umf frá réttu er fækkað um 12 l jafnt yfir með
því að prjóna 2 l slétt saman = 60 l.
Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið
eitt prjónamerki í 1. L, síðan eru sett 5 prjónamerki til
viðbótar með 9 l millibili. Nú eru eftir 9 l eftir síðasta
prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l
á eftir hverju prjónamerki. Endurtakið úrtöku í hverri
umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 12 l. Prjónið nú l 2
og 2 slétt saman = 6 l. Klippið frá, skiljið eftir nægilega
langan enda til þess að sauma púðann saman í lokin.
FRÁGANGUR:
Dragið endana í gegnum þær l sem eftir eru og herðið vel
að, hnýtið hnút og festið bandið vel án þess að klippa frá
(= botn á púða). Saumið opið, saumið yst í lykkjubogana
með 2 þráðum Eskimo eða 1 þræði Polaris. Púðinn er
fylltur þannig (það getur verið kostur að vera tveir í þessu
verki til þess að þetta gangi betur): Leggið 1 kodda (ca
1400 gr) eða 2 kodda (ca 700 gr ofan á hvorn annan)
og dragið koddaver yfir. Troðið koddunum í púðaverið.
Dragið saman toppinn á púðanum. Festið vel.
PÚÐI MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM SEM FÆRAST TIL:
Púðinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna –
LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR!
Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 15 með 4 þráðum Eskomo
eða 2 þráðum Polaris.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið * 1 l sl, sláið uppá prjóninn
*, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið 2 l sl
í síðustu l = 12 l.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l. ATH: Uppslátturinn er
alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið
aftan í lykkjubogann í stað framan) svo að ekki myndist
gat! Setjið eitt prjónamerki í 2., 4., 6., 8., 10. og 12 l.
Haldið síðan áfram með GARÐAPRJÓN – sjá skýringu
að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l á undan hverri
l með prjónamerki í (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING!
Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum
til viðbótar = 60 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf frá réttu er aukið út um 10 l jafnt yfir = 70
l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki
hér – stykkið er nú mælt héðan!
Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 2 l garðaprjón,
prjónið síðan A.2 (= 6 l) 11 sinnum á breiddina, 2
l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka 1
sinni á hæðina er haldið áfram með br í mynstri svo að
það færist til um 1 l til vinstri (séð frá réttu) í hverri umf.
Þegar stykkið mælist 16 cm frá prjónamerki er haldið
áfram þannig: Prjónið síðan garðaprjón til loka,
JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 10 l
jafnt yfir = 60 l. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið án þess
að prjóna: Setjið eitt prjónamerki í 1. L, síðan eru sett 5
prjónamerki til viðbótar með 9 l millibili. Nú eru 9 l eftir
síðasta prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er fækkað um
1 l á eftir hverju prjónamerki. Endurtakið úrtöku í hverri
umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 12 l. Prjónið nú l 2
og 2 slétt saman = 6 l. Klippið frá og látið vera nægilega
langan enda til þess að sauma púðann saman í lokin.
FRÁGANGUR:
Dragið endana í gegnum þær l sem eftir eru og herðið vel
að, hnýtið hnút og festið bandið vel án þess að klippa frá
(= botn á púða). Saumið opið, saumið yst í lykkjubogana
með 2 þráðum Eskimo eða 1 þræði Polaris. Púðinn er
fylltur þannig (það getur verið kostur að vera tveir í þessu
verki til þess að þetta gangi betur): Leggið 1 kodda (ca
1400 gr) eða 2 kodda (ca 700 gr ofan á hvorn annan)
og dragið koddaver yfir. Troðið koddunum í púðaverið.
Dragið saman toppinn á púðanum. Festið vel.
Bestu prjóna kveðjur, Gallery Spuni.
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
9 8 6 3 7
3 2 1 9
4 8 1
6 9 1 7
1 6 8
5 3 4 2
2 7 9
9 8 5 4
4 3 6 1 5
Þyngst
5 6 9 7
3 5
7 8 4 1
6 8 3 7 1 2
7 1 2 8 9 6
9 4 5 6
2 4
4 1 2 3
1 7 9 3
5 3 1
4 6
1 7 6 4
5 2
2 6 3 8
8 6
2 8 7
9 6 3 2
1 3 9 4
6 8 7
4 1
6 9 2
7 8
3 1 7
9 5
1 4 2
2 8 5 3
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætla í veiðiferð í sumar
Sigurður Darri er sjö ára en alveg
að verða átta ára og hlakkar mikið
til að halda upp á afmælið sitt.
Honum finnst rosalega gaman
að leika með vinum sínum í Nerf-
byssuleikjum.
Nafn: Sigurður Darri Tómasson.
Aldur: 7 ára.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Bý í Garðabæ.
Skóli: Sjálandsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Tölvur og íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Ljón .
Uppáhaldsmatur: Hamborgari.
Uppáhaldshljómsveit: Emmsé
Gauti.
Uppáhaldskvikmynd: Star Wars.
Fyrsta minning þín? Þegar ég heim-
sótti dýragarðinn í Edinborg og sá
litlu mörgæsirnar.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi sund með Stjörnunni.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég er ekki búinn að
ákveða mig.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Fara í Nerf-stríð með
vinum mínum.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór í veiðiferð.
Næst » Sigurður Darri skorar á vin sinn, Elmar
Rafn, að svara næst.
Vantar þig íslenskan lopa?
Álafosslopi - Plötulopi - Léttlopi - Einband - Bulkylopi - Kambgarn
Heimasíðan gefjun.is
býður upp á lopa frá
Ístex á lægsta
fáanlega verði !
Sendum um allt land!
www.galleryspuni.is
25% afsláttur
Polaris, Big Delight,
Eskimo og Alaska garn.
FRÁBÆRT
TIL
ÞÆFINGAR
felting fever
Mynstur
= sl frá réttu, br frá röngu
= br frá réttu, sl frá röngu
= setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan
stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
A.1
6 6
A.2