Bændablaðið - 09.02.2017, Síða 50

Bændablaðið - 09.02.2017, Síða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017 Ég býst við að flest okkar, ef ekki öll, geti svarað spurningunum á þann veg að við viljum umfram annað innlendan hollan mat að svo miklu leyti sem við getum skaffað hann. Á sama hátt er okkur umhugað um náttúruna og viljum að fram- leiðsla á matnum okkar sé í eins mikilli sátt við náttúruna og hægt er á hverjum tíma. Dýravelferð sé í hávegum höfð. Við viljum líka sjá landið okkar í byggð og að alls staðar sé gengið vel um og búskaparhættir þannig að sómi sé af. En við viljum líka fá ódýran mat eða meiri tekju- jöfnuð í samfélagið og betri afkomu þannig að allir hafi efni á að kaupa matinn. • Ágætt að setja málefnið fyrst fram sem nokkrar spurningar: • Ætlum við að vera í fremstu röð? Þjóð sem getur státað af náttúrulegum og hollum mat- vælum? • Er matvælaöryggi og fæðuör- yggi eitthvað meira en fræðileg orð í okkar huga? • Er dýravelferð raunverulegt markmið, eða á það bara við um okkar innlendu framleiðslu? • Viljum við bara fá ódýrasta mat- inn í búðina okkar á hverjum tíma, hvar sem hann hefur verið framleiddur í heiminum og óháð því hvað þeir sem framleitt hafa matinn bera úr býtum? • Er kolefnisspor bara tískuorð eða viljum við sýna ábyrgð og taka þátt í að vernda náttúruna með vali okkar og ákvörðunum? • Er frjáls samkeppni okkar eina leiðarljós, eða kann að vera að stundum þurfi að gera hlutina öðruvísi til að hagsmunir okkar sem þjóðar séu varðir til lengri framtíðar? • Hvernig metum við starfsöryggi atvinnugreinar. Erum við þar að tala í árum eða áratugum? • Eru ríkisstyrkir við slíka atvinnugrein eða neytendur tabú eða sjálfsagður hlutur? • Er samspil landbúnaðar og byggðar í landinu eitthvað sem við sjáum ástæðu til að huga að? • Hvernig mat viljum við gefa börnunum okkar og hvernig viljum við afhenda þeim landið? Við þurfum framtíðarsýn ef við ætlum að ná árangri Að mínu mati er engin ein leið sú eina rétta að þessu marki, en eins og um allt annað sem við tökum okkur fyrir hendur þá þarf skýra framtíðar- sýn, það þarf festu og skýr mælanleg markmið, og rekstrarumhverfi sem greinin getur þróast innan á hag- kvæman hátt á leið sinni að markinu. Mesta vandamál íslensks land- búnaðar og matvælavinnslu er einmitt það að við sem þjóð erum alltaf að breyta þessu rekstrarum- hverfi þannig að bændur og mat- vælaframleiðendur vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga þegar kemur að fjárfestingum og breytingum á rekstri sínum sem leitt geta til bættrar framleiðslu eða bættrar afkomu og þar með lægri framleiðslukostnaðar samfélaginu og neytendum til góða. Við stöndum á tímamótum nú enn einu sinni þar sem háværar kröfur eru uppi um að kollvarpa því rekstr- arumhverfi sem landbúnaðurinn hefur búið við síðustu ár. Ef við förum aðeins til baka í tíma og skoðum rekstrarumhverfi íslenskra mjólkurbænda þá kemur margt fróðlegt í ljós. Bændum landsins hefur fækkað mjög mikið og bú þeirra stækkað. Árið 1986, þegar ég kom heim frá háskólanámi erlendis og hóf störf í mjólkur- iðnaði, ráku bændur og samvinnu- félög 17 mjólkurbú víðs vegar um landið (Reykjavík, Borgarnes, Búðardalur, Patreksfjörður, Ísafjörður, Hvammstangi, Blönduós, Sauðárkrókur, Akureyri, Húsavík, Þórshöfn, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Neskaupstaður, Djúpivogur, Höfn og Selfoss). Í dag eru mjólkur- búin 5 (Búðardalur, Akureyri, Sauðárkrókur, Egilssstaðir og Selfoss ásamt höfuðstöðvum MS og dreifingu í Reykjavík). Einnig eru komin á fót í dag nokkur lítil einkarekin fyrirtæki. Þessari þróun var að mestu leyti stýrt af kröfunni um hagræðingu og lækkun verðs á mjólkurvörum. Þannig var ríkisskipuð nefnd látin vinna tillögur að hagræðingu í grein- inni og gegnum opinbera verðlagn- ingu var séð til þess að greinin yrði að hagræða til að hún gæti lifað af. Til að ná þessum markmiðum komu búvörulögin til sem heimiluðu mjólkurfyrirtækjunum samvinnu og samninga um verkaskiptingu (undanþágur frá samkeppnislög- um). Með því móti hefur náðst fram gríðarleg hagræðing í greininni sem skilað hefur verið til neytenda í lægra vöruverði. Heilu mjólkur- samlögunum var lokað og vinnsla ákveðinna afurða sameinuð. Sem dæmi af því má nefna að nær öll ostaframleiðsla fer nú fram á tveimur stöðum á landinu, á Sauðárkrók og á Akureyri, en var á 9 eða 10 stöðum áður. Mjólkurpökkun fer nú fram í meginatriðum á tveimur stöðum, á Akureyri og á Selfossi, en fór fram á flestum af mjólkurbúunum áður. Bændur voru þannig knúnir með opinberum aðgerðum til að sam- eina nær allan rekstur sinn í einu félagi MS, en það félag á í dag alla mjólkurvinnsluna að mjólkurbúinu á Sauðárkrók undanskildu sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. − Hvaða áhrif hefði það nú ef ákvæði búvörulaga væru afnumin og greinin heyrði eingöngu undir samkeppnislög? Sú samvinna sem leitt hefur til verkaskiptingar, samvinnu og sam- runa fyrirtækjanna yrði ekki leyfð og bændum líklega einnig gert að skipta MS upp í smærri einingar og jafnvel að selja frá sér hluta rekstr- arins. En slíkt en nánast óhugsandi í dag þar sem búið er að sameina vinnslu á örfáa staði og framlegð og afkomumöguleikar yrðu allt aðrir ef slík uppskipti ættu að fara fram nú, svo ekki sé minnst á kostnaðarauk- ann sem slíku myndi fylgja. Þannig kæmu norðlenskir bændur mjög veikt út þar sem búið er að sameina alla ostaframleiðslu landsins á þeirra svæði, en sú framleiðsla gefur mun minna af sér en flestar af sérvörum og svokölluðum dagvörum, eins og skyr, jógúrt og fleiri vörur. Þannig yrðu fyrirtæki bændanna á Norðurlandi ekki samkeppnisfær nema þau breyttu á ný sinni vöru- samsetningu með óheyrilegum til- kostnaði. Söfnun á mjólk er líka þannig háttað í dag að allir bændur sitja við sama borð og fá líkt verð fyrir sína mjólk hvar sem þeir búa. Í dag er það Auðhumla, sam- vinnufélag bændanna, sem safnar og kaupir alla mjólk af bændum og endurselur síðan til MS og annarra sem fást við mjólkurvinnslu. Ekki þarf að eyða á það mörgum orðum að slíkt myndi ekki ganga ef hér ættu samkeppnisöflin ein að ráða för. Þá yrði fjótt skorið á mjólkur- vinnslu á jaðarsvæðum sem of dýrt væri að sækja mjólk til. Þar yrðu líklega Vestfirðirnir og Austurlandið í heild þau svæði sem framleiðsla legðist fyrst af. Það er líka ansi kúnstugt að eftir að hafa stýrt bændum þessa veg- ferð hagræðingar og samruna félaga með opinberum kröfum ætlum við þeim allt í einu að gera allt til þess að aðrir, nýir og óháðir aðilar geti hafið mjólkurvinnslu hvar sem er á landinu og fengið afhenta mjólk til sinnar vinnslu eftir þörfum frá degi til dags án þess að taka nokkra ábyrgð á því að greinin sem heild sé rekin með hagkvæmum hætti og tryggi neytendum um allt land heilnæmar vörur á sama verði hvar sem þeir búa. Um leið og ég segi þetta er ég ekki að tala gegn fyrirtækjum eins og Örnu í Bolungarvík eða Mjólkurbúinu KÚ eða öðrum sem fást við mjólkurvinnslu í smærri stíl. Við verðum bara að vera sanngjörn við félag bændanna sem við höfum stýrt á þann stað sem það er í dag. - samkeppni frá innflutningi? Svarið við þessari spurningu er NEI. Það er óhugsandi að okkar mjólkurvinnsla og í raun flest matvælavinnsla í dag geti staðist samkeppni frá óheftum tollfrjálsum innflutningi. Ástæða þess er ekki sú að við séum ekki að framleiða nógu góða vöru eða á réttu verði. Ástæðan er einfaldlega sú að þær vörur sem fluttar yrðu inn, sérstak- lega fyrst í stað, eru vörur sem hafa verið niðurgreiddar í framleiðslu- löndunum og eru oft ekki af sömu gæðum. Evrópa er í augnablikinu full af umframframleiðslu á vörum sem framleiddar hafa verið og seld- ar langt undir kostnaðarverði. Við slíkt keppir ekkert land meðan slíkt ástand varir. Ef hlutir þróast með eðlilegum hætti þá má búast við að verð á land- búnaðarvörum muni í framtíðinni hækka mikið í Evrópu allri þar sem ekkert land getur til lengdar framleitt undir kostnaðarverði eða styrkt og verndað slíka framleiðslu til langrar framtíðar. Afleiðingarnar í Evrópu eru líka hrópandi í dag þar sem bændur í stærstu framleiðslulöndun- um eru á barmi fjöldagjaldþrots. En þegar þessi staða væri komin upp að vörur í Evrópu væru fram- leiddar og seldar á eðlilegu verði væri okkar viðkvæma framleiðsla hér heima löngu komin á hausinn og of seint að grípa í taumana þá. Því er mikilvægt að við sem þjóð stöndum nú í lappirnar og tryggjum okkar innlendu matvælaframleiðslu með þeim ráðum sem við höfum og látum ekki skammtíma sjónar- mið og hentistefnu ráða för. Þessa sýn þurfum við líka að kynna fólk- inu í landinu þannig að við getum sameiginlega tekið skynsamlegar ákvarðanir byggðar á staðreyndum og rökum. Hér í lokin langar mig svo að svara nokkrum af upphafsspurn- ingunum sem ég setti fram: − Ætlum við að vera í fremstu - úrulegum og hollum matvælum? Við erum í fremstu röð meðal þjóða í dag um mjög marga þætti sem gera matvæli að góðum mat- vælum. Við höfum hreina náttúru og hér er álag á land mjög lítið. Hér er lyfjanotkun með því minnsta sem finnst í landbúnaði og vaxtarhvetj- andi hormón hafa aldrei verið notuð svo eitthvað sé nefnt. Sauðfjárrækt á Íslandi sem dæmi er í sérstöðu og er í raun margfalt betri og náttúrulegri en lífræn ræktun getur státað af víða um heim. En ef við ætlum að halda þessu þá þurfa bændur að geta rekið sín bú og haft starfsöryggi til lengri tíma. − Er matvælaöryggi og fæðu- öryggi eitthvað meira en fræðileg orð í okkar huga? Fæðuöryggi er það að við tryggjum að eiga alltaf mat fyrir alla í okkar samfélagi. Allar hugs- andi þjóðir setja fæðuöryggi fremst á sinn áherslulista. Matvælaöryggi er aftur á móti mælikvarðinn á heilnæmi matarins. Hér þarf engar málalengingar, hvort tveggja verð- ur ekki tryggt nema við stöndum vörð um okkar matvælavinnslu til langs tíma. − tíma, hvar sem hann hefur verið því hvað þeir sem framleitt hafa matinn bera úr býtum? Ef það er okkar eina markmið þá leyfum við bara frjálsan innflutn- ing á matvælum og gefum verslun og öðrum innflutningsaðilum frítt spil til að færa okkur matinn á því verði sem samkeppni þeirra í milli ákvarðar á hverjum tíma. En þá getum við heldur ekki á sama tíma ætlað bændum landsins að standa undir óskilgreindu hlutverki við að halda landinu í byggð. Við getum heldur ekki ætlað þeim það hlutverk að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar og matvælaöryggi. − Er kolefnisspor bara tískuorð þátt í að vernda náttúruna með vali okkar og ákvörðunum? Þegar við reiknum kolefnisspor eða það álag sem framleiðsla eða einhver aðgerð sem við framkvæm- um hefur á náttúruna þarf að taka allt með í reikninginn. Við mat- vælaframleiðsluna er eitt helsta markmiðið að við neytum fæðu úr okkar nánasta umhverfi sem fram- leidd er með vistvænum hætti í stað þess að flytja matvæli um langan veg. Þannig er t.d. kolefnisspor heimaræktaðrar kartöflu á Íslandi talsvert annað en hrísgrjónanna sem við höfum flutt yfir hálfan hnöttinn til að setja á diskinn okkar. Þetta gildir líka um kjöt og mjólk með sama hætti. − að stundum þurfi að gera hlutina öðruvísi til að hagsmunir okkar framtíðar? Frelsi til ákvarðana og athafna er í eðli sínu göfugt og gott markmið sem við eigum að rækta eins og hægt er, en það á þó ekki við um alla hluti þegar við á sama tíma ætlum saman að reka samfélag sem tryggir allar okkar grunnþarfir og tryggir jöfnuð og aðgang allra að ákveðnum grunnþáttum og grunn- þjónustu. Þannig leggjum við mikið upp úr að hafa heilbrigðisþjónustu og menntakerfi sem er eins fyrir alla og því leggjum við samkeppn- isöflin og gróðasjónarmiðin þar til hliðar og rekum þessa þætti á sam- félagslegum grunni. Ef við sem þjóð ætlum að vera okkur næg um mat og viljum hafa landbúnað í landinu þá verðum við í það minnsta að verja hann líkt og allar okkar nágrannaþjóðir gera með styrkjum og innflutn- ingshöftum í formi tolla. Ef öll Evrópa legði samtímis af alla styrki og legði niður alla tolla af slíkum vörum og gerði alvöru kröfur um gæði og upprunamerkingar værum við að tala um allt aðra mynd hér. Við getum bara ekki gert þetta ein og látið þannig aðra leggja okkar framleiðslu og vinnslu í rúst á stutt- um tíma. Janúar 2017 framkvæmdastjóri Bústólpa á Akureyri Hver er framtíðarsýn okkar sem þjóðar varðandi landbúnað og matvælaframleiðslu? LESENDABÁS Ef hlutir þróast með eðlilegum hætti þá má búast við að verð á landbúnaðarvörum muni í framtíðinni hækka mikið í Evrópu allri þar sem ekkert land getur til lengdar framleitt undir kostnaðarverði eða styrkt og verndað slíka fram- leiðslu til langrar framtíðar. Mynd / Áskell Þórisson

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.