Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Arkitektarnir Hjördís Sigurgísla-
dóttir og Dennis Davíð
Jóhannesson hjá ARKHD -
Arkitektar Hjördís & Dennis
urðu við ákalli landsbyggðarinnar
um hönnun á hagkvæmum
íbúðarhúsum. Var það gert í
samvinnu við Límtré Vírnet.
Fyrstu einingahúsin með nýrri
hönnun þeirra Hjördísar og Dennis
eru nú að fara að rísa í Vík í Mýrdal.
Bændablaðinu lá forvitni á að vita
um tilurð þessarar hönnunar og hvað
vaki fyrir hugmyndasmiðunum með
henni.
„Nýlega var haldið málþing hjá
Íbúðalánasjóði þar sem leitast var
við að svara spurningunni: Hvernig
getum við byggt sem flestar íbúð-
ir með þeim fjármunum sem ríkið
leggur til í stofnframlög? Þar vorum
við með erindið „Hagkvæm íbúðar-
hús úr steinullareiningum og límtré.
Þar segir m.a. frá því að arkitektarnir
Hjördís Sigurgísladóttir og Dennis
Davíð Jóhannesson hafi ákveðið að
fara í þann leiðangur að hanna hag-
kvæm íbúðarhús fyrir landsbyggð-
ina, þar sem þörfin er mikil,“ sagði
Dennis.
„Við lögðum áherslu á að þau
yrðu framleidd í verksmiðju hér á
landi. Þaðan yrðu þau flutt í ein-
ingum á byggingarstað
og einingarnar reistar
á skömmum tíma. Við
höfðum samband við fyr-
irtækið Límtré Vírnet um
að framleiða þessi hús og
var tekið vel í það. Tvö
parhús eru þegar komin
í framleiðslu og munu
rísa í Vík í Mýrdal á
næstunni.“
Frá hugmynd að
veruleika
Í tilkynningu sem þau
Hjördís og Dennis sendu frá sér um
húsin segir m.a.:
„Við erum hér tveir arkitektar
sem ákváðum að fara í þann
leiðangur að hanna hagkvæm
íbúðarhús fyrir landsbyggðina, þar
sem þörfin er mikil. Við lögðum
áherslu á að þau yrðu framleidd í
verksmiðju hér á landi. Þaðan yrðu
þau flutt í einingum á byggingarstað
og einingarnar
reistar á skömmum tíma. Við vildum
nota vistvæn efni og að húsin væru
framleidd í sátt við umhverfið eins
og kostur er, með sjálfbærni að
leiðarljósi.“
Húsnæðisþörfin á landsbyggðinni
„Kannanir sýna að það er mikil
þörf fyrir íbúðarhúsnæði á
landsbyggðinni, sérstaklega
leiguhúsnæði. Þessi húsnæðis-
skortur er aðallega vegna
þess að mikill munur er víða
á stofnkostnaðarverði og
markaðsvirði íbúða. Kannanir
sýna einnig að mest er þörfin á
2–3 herbergja íbúðum.
Á landsbyggðinni er sterk hefð
fyrir sérbýli og ýmsar aðstæður
styðja við það íbúðarform.
Oft er aðeins þörf fyrir 4–6
íbúðir í hverju sveitarfélagi og þá
henta fjölbýlishús ekki.
Því ákváðum við að leggja
áherslu á 3ja herbergja sérbýlishús
sem geta verið einbýlis-, par- eða
raðhús. Einnig höfum við hannað
2ja og 4–5 herbergja íbúðir sem
geta einnig verið einbýlis-, par- eða
raðhús.“
Einföld og miðuð við íslenskar
aðstæður
Þau Hjördís og Dennis litu til
margvíslegra þátta við hönnun
sína sem þyrfti að vera einföld
og miðast við íslenskar aðstæður.
Íbúðir ættu að vera bjartar og opnar
með sveigjanlegu innra skipulagi.
Þá væru allir innveggir léttir.
Einnig var horft til þess að fólk
gæti lágmarkað kostnað með því að
setja veggi utan um baðherbergið
og fá sér litla eldhúsinnréttingu og
haft annað opið til að byrja með.
Þá eru húsin hönnuð með stórum
sólpöllum og skjólveggjum.
Stærðir miðast við reglur
Íbúðarlánasjóðs
Húsin eru framleidd í einingum
í verksmiðju Límtré Vírnets á
Flúðum og flutt á byggingarstað.
Þannig nýtist efnið best og lítið
verður um frákast. Eru efni og ein-
ingar léttar og meðfærilegar og auð-
veldar í flutningi. Einingarnar eru
síðan reistar á skömmum tíma sem
sparar tíma og kostnað. Allar stærð-
ir húsa miðast við hámarksstærðir
stofnframlaga Íbúðalánasjóðs.
Veðurþolin og sterkbyggð
Íbúðarhúsin eru gerð úr
endingargóðum og sterkum efnum
sem þola vel ágang veðurs. Þar er
um að ræða burðarvirki úr límtré
sem Límtré Vírnet framleiðir. Ytri
klæðning er úr bárustáli eða áli og
tréklæðningu. Gluggar húsanna
eru íslensk framleiðsla úr tré að
innan en áli að utan. Einangrunin
í húsin er líka íslensk steinull frá
Skagafirði.
Um 270 þúsund krónur
fermetrinn
Fullbúin hús, tilbúin að flytja inn
í, kosta um 270.000 kr. fermetrinn
samkvæmt nýlegu tilboði, miðað
við 80 fermetra íbúðir í parhús-
um. Efnið í ytri skelina er 25% af
heildarkostnaðinum. /HKr.
Íslenskir arkitektar í samstarf við Límtré Vírnet um innlenda framleiðslu einingahúsa:
Sérhönnuðu hagkvæm íbúðarhús fyrir landsbyggðina
Einbýlishús.
Raðhús samkvæmt hönnun Hjördísar Sigurgísladóttur og Dennis Davíðs Jóhannessonar.
Arkitektarnir Hjördís Sigurgísladóttir og Dennis Davíð Jóhannesson.
Parhús.