Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017 Úrgangur frá mönnum, eða saur og hland, kallar á úrlausnir við að losa sig við það sem menn almennt líta á sem viðbjóð. Í þessum úrgangi geta þó líka falist mikil verðmæti, m.a. fyrir ræktun nytjaplantna. Hann má einnig nota sem orkulind, m.a. við matseld. Eigi að síður er þessi úrgang- ur víðast hvar til vandræða og veldur m.a. mikilli mengun á dýr- mætu drykkjarvatni. Þá eru opnar skólplagnir uppspretta alvarlegra sjúkdóma víða um lönd. Í síðasta Bændablaði var frétt sem vakti mikla athygli um aðferð sem norska fyrirtækið Hias hefur þróað með svokallaðri Cambi-aðferð við að dauðhreinsa og endurnýta mannasaur sem áburð. Hans Emil Glestad, efnafræðingur hjá Hias, segir að unninn mannasaur sé fyr- irtaks áburður og innihaldi mikið af fosfór. Það er einmitt efni sem bændur eru að kaupa í stórum stíl í formi tilbúins áburðar. Hafa norskir bændur tekið þessum tilraunum Hias fagnandi. Um allan heim hafa menn mikl- ar áhyggjur af sívaxandi mengun umhverfisins. Úrgangur frá mönnum er þar á meðal og sendi heilbrigðis- stofnun Sameinuðu þjóðanna m.a. frá sér leiðsögn árið 2006 um hvern- ig hægt væri að nýta mannasaur með öruggum hætti. Nýting mannasaurs til áburðar er svo sem engin nýlunda, því hann hefur hefur víða verið nýttur á ýmsa vegu um langan aldur. Sólorkudrifið salerni og framleiðsla arinkubba Ekki ómerkari maður en Bill Gates, stofnandi tölvu- og hugbúnaðar- veldisins Microsoft hefur látið sig saurmálin varða í gegnum Gates- stofnunina, eða Bill & Melinda Gates Foundation. Einkunnarorð stofnunarinnar eru „Allt líf hefur jafnmikið gildi“. Segjast þau, á heimasíðu stofnunarinnar, trúa því að með því að láta fólk fá réttu verk- færin í hendur til að auka heilbrigði og tryggja uppbyggilegt líf, þá geti þau hjálpað fólki til að hjálpa sér sjálft út úr fátækt. Árið 2012 verðlaunaði Bill & Melinda Gates Foundation stofn- unina RTI international með 1,3 milljóna dollara framlagi til að búa til frumgerð af vatnslausu salerni, sem meðhöndlar og endurvinn- ur saur og hland. Var það hluti af samkeppni sem hafði það að mark- miði að draga fram nýjar hugmyndir varðandi úrlausnir við að meðhöndla úrgang frá mannfólkinu. Auk RTI hlutu þrjár aðrar stofnanir styrki fyrir sínar lausnir. Var heildar verð- launaféð til stofnananna fjögurra samtals upp á 3,4 milljónir dollara. Hafa flestar þessar stofnanir síðan gengið til liðs við RTI. RTI hóf þetta verkefni þó í raun í september 2012 með það að mark- miði að ljúka hönnunarvinnunni í nóvember 2013. Fyrsta hugmyndin gekk út á að skilja þvag og saur og þurrka síðan saurinn sem eytt var með bruna. Úr hitanum sem þar fékkst var framleitt rafmagn til að knýja snigla og annan búnað kló- settsins. Þvagið var síðan hreinsað þannig að það væri nothæft fyrir áveitu við ræktun matjurta. Hver klósetteining átti að kosta 2.500 dollara og átti að geta þjónað um 50 manns á dag. Þessi hugmynd þróaðist síðan út í salerni sem skil- ar hráefni úr saurnum til framleiðslu á eldsneytiskubbum eða eins konar arinkubbum. Þá kubba má síðan nýta til eldunar á mat þar sem eldiviður er af skornum skammti. Er þetta afrakstur af vinnu vís- indamanna við RTI, Duke háskól- ann, Colorado háskóla í Boulder, NASA Ames rannsóknarmiðstöð- inni og rannsóknarstöð sjóhers Bandaríkjanna. Höfðu þeir fengið það verkefni að búa til frumeintak af öruggu salerni sem um leið væri ódýr leið til að meðhöndla úrgang. Úr þessu varð sólardrifið klósett til að umbreyta mannasaur í hráefni fyrir lífeldsneytiskubba. Þannig er hugsunin að geyma orku um lengri eða skemmri tíma. Um leið er þvagið sem til fellur hreinsað og vatnið má síðan nýta til vökvunar nytjaplantna. Sjálfstæðar og sjálfbærar klósetteiningar Salernið er kallað „RTI International‘s Itegrated Waste Treatment Systems“. Hvert klósett getur staðið sem sjálfstæð eining og þarf ekki að tengjast neinum pípulögnum, hvorki hvað varð- ar aðrennsli né frárennsli og ekki heldur rafmagn. Takmarkið var að það kostaði ekki meira en sem næmi 5 sentum, eða sem nemur um 5 íslenskum krónum fyrir hvern notanda að setja upp og viðhalda búnaðinum. Þvagið hreinsað og saurinn þurrkaður Í salerninu skilar saurinn sér úr klósettinu um rafdrifna snigla í sérstakan tank. Sniglakerfið er síðan knúið með rafmótorum sem fá orku sína úr sólarsellum á þaki salernisins. Í leiðinni skilst þvag og vatn frá og er saurinn þurrkað- ur í brunahólfi líkt og Íslendingar þekkja vel að gerist við framleiðslu á fiskimjöli. Í þessu tilfelli er líka notuð tækni sem hönnuð er af RTI og kölluð; „Thermoelectric Enhanced Cookstove Add-on device“. Það er sjálfknýjandi búnaður sem umbreyt- ir um leið hluta hitans sem fæst við brunann og umbreytir honum í raf- orku. Raforkan sem þarna vinnst verður geymd á rafgeymum og fer síðan til að knýja vatnshreinsunar- búnaðinn í salerninu. Þurrkaður saur fellur síðan niður í geymslutank en hluti af honum er nýttur til að mynda bruna til þurrk- unar. Síðan er þurrkaður saurinn nýttur til að móta úr honum blokkir í eins konar arinkubba sem síðan eru nýttir sem eldsneyti. Þvagið og annar vökvi fer í sérstakan hrávökvatank og síast þaðan í gegnum rafefnasellu (Electrichemical Cell) og fæst þannig hreinsað vatn sem m.a. má nota til vökvunar. Það er sótthreinsað með sérstakri rafeindaefnafræðilegri aðferð sem þróuð hefur verið í samvinnu við Advanced Diamond Technologies, Inc. og Duke University. Verður vatnið þá nothæft bæði sem hreinsi- vatn fyrir klósettið og til vökvunar. Með þessu salerni er búið að hanna sjálfbært klósett sem getur hentað mjög vel á stöðum þar sem bæði er skortur á vatni og brenni m.a til eldunar. Þá er ekki síðri kostur að með slíku salerni munu opnar skólplagnir verða úr sögunni sem annars yrðu gróðrarstía fyrir smit- sjúkdóma af ýmsu tagi. Klósettið er líka þannig úr garði gert að það krefst lágmarks mannafla og búnað- ar vegna umhirðu. Þannig má segja að verið sé að slá margar flugur í einu höggi. Dr. Jeff Class hjá Duke háskól- anum og meðstjórnandi í verkefn- inu og tæknilegur leiðtogi í hönnun sótthreinsibúnaðarins, segir að þarna verði um að ræða búnað sem taki mið af ströngustu kröfum um með- ferð úrgangs. Á sama tíma verði hann ódýr og öruggur. Fyrirtaks lausn í vaxandi ferðamennsku á Íslandi Vel mætti hugsa sér að slík salerni gætu leyst hluta þess vanda er lýtur að salernisaðstöðu fyrir ferðamenn á Íslandi og umhverfisvænni gerast salernin varla. Öll umhirða um slík klósett mun líka verða mun þrifa- legri og auðveldari en nú þekkist við notkun rotþróa. Þá gæti þetta Hörður Kristjánsson hk@bondi.is FRÉTTASKÝRING Gamli góði útikamarinn var svo sem engin hátæknihönnun en hann gerði sitt gagn. Þá er slíkt apparat allavega betra en opnar skolplagnir. Hönnun RTI á „Alþjóðaklósettinu“, klósetti sem hreinsar úrgang manna án þess að þurfa að tengjast skolplögnum, vatni eða rafmagni. Einfaldari útgáfa af hönnun RTI. Ekki geðfelldasta lausn á salernis- málunum, en einfaldara gerist það varla. Opnar skolplagnir og skurðir af þessum toga eru víða uppspretta alvarlegra sjúkdóma sem klósett RT geta komið í veg fyrir. Tækni sem getur leyst ótal vandamál sem skapast af saurlosun frá mönnum: Einstakt „sjálfbært“ og vistvænt salerni sem endurnýtir úrganginn – Indverjar staðráðnir í að ljúka uppsetningu á 75 milljón klósettum fyrir 150 ára árstíð Mahatma Gandhi 2. október 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.