Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Rómaður pitsugerðarmaður og bruggmeistari lætur drauma sína rætast:
Hveragerði eignast sitt eigið brugghús
Í hjarta Hveragerðis opnaði
hópur framtakssamra vina
nýlega veitingahúsið Ölverk. Þar
er hægt að gæða sér á eldbökuð-
um pitsum og sérbrugguðum bjór
sem eru unnin á svipaðan hátt.
„Mig hefur lengi langað að opna
matsölustað. Svo fékk ég áhuga á
bjór. Þá bættist við draumurinn um
brugghús. Nýlega losnaði þetta
húsnæði og þá fór hugmyndin á
flug,“ segir Elvar, sem er fram-
kvæmdastjóri Ölverks en hann og
Laufey Sif búa saman í Hveragerði.
Deigið þrjá daga í vinnslu
„Staðurinn er hugsaður fyrir
heimamenn í bland við ferðamenn.
Heimamenn vantaði pitsustað
en jafnframt erum við staðsett
innan gullna hringsins ásamt
því að vaxandi ferðamennska
innan Hveragerðis kallaði á fleiri
veitingastaði í bænum,“ segir
Laufey Sif.
Á matseðli Ölverks má finna
smárétti, eldbakaðar pitsur með
nokkuð óvenjulegu áleggi ásamt
eftirréttapitsum og ís.
Elvar var áður rómaður fyrir
góða pitsugerð meðal vina og
vandamanna.
„Ég geri deig sem tekur þrjá
daga að verða til. Ég nota rosalega
lítið af geri og vinn deigið frekar
með tímanum,“ segir hann en að
baki liggur svipuð hugmynd og
þegar bjór er bruggaður.
„Þessi útfærsla á deigi skilar sér
í meiri bragðgæðum auk þess sem
það fer betur í magann,“ segir Elvar,
sem er jafnframt bruggmeistari.
Jarðgufa nýtt við bjórframleiðslu
Pitsunum verður því hægt að skola
niður með bjór sem bruggaður
verður á staðnum en fyrsti bjór
Ölverks er væntanlegur eftir um
mánuð.
„Hér verður að sjálfsögðu í
boði góður lager og pale ale. En
auk þess ætlum við í raun að gera
allt sem okkur dettur í hug. Hér
verða sex kranar beintengdir við
bruggtanka,“ segir Elvar.
Brugghúsið mun hafa fram-
leiðslugetu upp á 900–1200
lítra á viku og hefur þá sérstöðu
að jarðgufa verður notuð við
framleiðslu á bjórnum.
„Við erum á útjaðri háhitasvæðis
og getum því nýtt jarðgufuna við
upphitun. Við vitum af tveimur
brugghúsum í Bandaríkjunum sem
nota þessa tækni en eftir því sem
við best vitum þá er þetta það fyrsta
sinnar tegundar í Evrópu,“ segir
Laufey Sif.
Eingöngu fáanlegur í
Hveragerði
Bjórinn mun eingöngu vera fáan-
legur á Ölverki fyrst um sinn.
„Með haustinu sjáum við svo
fyrir okkur að selja bjór innan
Hveragerðis og jafnvel á völdum
stöðum í Reykjavík,“ segir Elvar.
/ghp
Laufey Sif Lárusdóttir, Elvar Þrastarson og Magnús Már Kristinsson eru eigendur Ölverks ásamt Ragnari Karli Gústafssyni.
Elvar var áður rómaður fyrir góða pitsugerð, sem almenningur fær nú að njóta.