Bændablaðið - 04.10.2018, Qupperneq 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201818
•
•
•
•
Aukin meðvitund almennings
um umhverfismál hefur aukið þá
kröfu að fiskveiðum sé stjórnað
með ábyrgum hætti til að koma
í veg fyrir ofveiði. Kaupendur
sjávarafurða og neytendur um
allan heim leggja síaukna áherslu
á að sjálfbær nýting sé höfð að
leiðarljósi.
Í kjölfarið hafa komið
fram nokkrir rekjanleika- og
sjálfbærnistaðlar fyrir veiðar á
villtum fiski úr sjó, bæði alþjóðlegir
og svæðisbundnir. Af þeim eru þrír
viðurkenndir af Global Seafood
Sustainability Initiative (GSSI),
en þeir eru staðall í Alaska (ASMI
RFM Certification), landsstaðall
Íslands í eigu Ábyrgra fiskveiða ses
(Icelandic Responsible Fisheries)
og Marine Stewardship Council
(alþjóðlegur staðall).
Global Seafood Sustainability
Initiative
GSSI er alþjóðlegur samvinnu-
vettvangur verslanakeðja,
félagasamtaka, sérfræðinga,
opinberra og alþjóðlegra stofnana.
Markmiðið með starfsemi GSSI er að
auka gagnsæi vottunar og auðvelda
samanburð og efla þannig traust og
stuðla að upplýstu vali í viðskiptum
með vottaðar sjávarafurðir. Kröfur
GSSI byggjast fyrst og fremst á
samþykktum FAO.
Fyrirtæki sem eru félagar í
GSSI hafa skuldbundið sig til að
viðurkenna öll þau vottunarverkefni
(staðla) sem standast GSSI úttekt
þegar kemur að innkaupum á
sjávarafurðum og eldisfiski. Meðal
þeirra eru verslanakeðjur og
fyrirtæki eins og Ahold Delhaize,
Morrisons og Metro Group.
Iceland Responsible Fisheries
(IRF)
Upphaf vottunar undir merkjum IRF
má rekja til yfirlýsingar um ábyrgar
fiskveiðar sem hagaðilar í íslenskum
sjávarútvegi undirrituðu árið 2007.
Í kjölfarið var ákveðið að þróa
vottunarverkefni til að votta veiðar
sem lúta stjórn íslenskra yfirvalda.
Um er að ræða markaðstæki sem
gefur framleiðendum og seljendum
íslenskra sjávarafurða tækifæri til að
staðfesta frumkvæði sitt í að mæta
kröfum markaðarins um sjálfbæra
nýtingu fiskistofna á Íslandsmiðum.
Ábyrgar fiskveiðar ses (ÁF)
rekur vottunarverkefni undir
merkjum IRF. Tilgangurinn
með vottun undir
merkjum IRF er að
sýna fram á með
gagnsæjum
hætti að
staðið sé
að fisk-
veiðum og
fiskveiði-
s t j ó r n u n
á Íslandi á
ábyrg an og
viður kennd an
hátt, í samræmi
við kröfur FAO.
Markmiðið er að
staðfesta ábyrga stjórnun
á veiðum íslenskra skipa innan
íslenskrar efnahagslögsögu og
úr deilistofnum,
standa vörð um
alþjóðlega viðurkennd
grundvallaratriði í
stjórnun fiskveiða,
stuðla að samfélagslegri
vitund og samkomulagi
um mikilvægi ábyrgrar
fiskveiðistjórnunar og
bjóða upp á val þegar
kemur að vottun á
sjálfbærum veiðum.
ÁF eiga tvo faggilta
staðla; staðal fyrir ábyrgar
fiskveiðveiðar og staðal fyrir vottun á
rekjanleika. Faggilti vottunaraðilinn
er SAI Global á Írlandi (óháður
þriðji aðili), en það eru Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og
Landssamband smábátaeigenda sem
sækja um vottun á fiskveiðum skv.
staðli ÁF.
Öll fyrirtæki í virðiskeðju
íslenskra sjávarafurða býðst að
taka þátt í verkefninu, sækja um
rekjanleikavottun og fá þá heimild
til að nota vottunina og merki
hennar við sölu og markaðssetn ingu
afurða úr vottuðum stofni.
Veiðar úr fjórum fiski stofn um
hafa verið vottaðar, á þorski árið
2010, gullkarfa árið 2014 og
ýsu og ufsa árið 2013.
Þrír stofnar eru nú í
vottunarferli: keila,
langa og íslenska
sumargotssíldin.
Í dag eru
11 íslensk
fyrirtæki og 24
vinnslustaðir
m e ð
rekjanleika vott-
un skv. rekjan-
leika staðli IRF.
IRF á einnig
upprunamerki sem
hagaðilar geta nýtt í
markaðsstarfi. Alls hafa 108
fyrirtæki á Íslandi, í Bretlandi,
Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu,
Sviss, Kína, Svíþjóð, Portúgal og
Bandaríkjunum gert samning um
notkun þess.
Marine Stewardship Council
(MSC)
Marine Stewardship Council var
stofnað árið 1997 og fyrsta vottun
undir merkjum þess var veitt árið 2000.
Tilgangur MSC var að þróa staðal
og vottunarkröfur fyrir sjálfbærar
fiskveiðar sem nyti alþjóðlegrar
viðurkenningar. Vottun MSC yrði
hagnýtt til að auðkenna sjálfbærar
fiskveiðar og auka eftirspurn eftir
vörum úr slíkum veiðum.
Markmiðið er að vinna með
hagsmunaaðilum að því að auðkenna
sjávarafurðir úr sjálfbærum veiðum
og skapa með því efnahagslegan hvata
fyrir aðra að fá sínar veiðar vottaðar
sjálfbærar.
MSC hefur þróað staðla og
vottunarreglur fyrir tvö megin
svið; sjálfbærar fiskveiðar og
rekjanleika afurða. Lista yfir faggilta
vottunaraðila má finna á heimasíðu
faggildingarstofunnar ASI.
Vottunarstofan Tún annast vottun
sjálfbærrar nýtingar fiskistofna og
rekjanleika sjávarafurða samkvæmt
vottunarreglum MSC. Tún er faggilt af
þýsku stofunni ASI GmbH til vottunar
fiskveiða og rekjanleika sjávarafurða
samkvæmt stöðlum MSC.
Iceland Sustainable Fisheries
ehf. (ISF) var stofnað árið 2012 af
fyrirtækjum í veiðum, framleiðslu og
sölu íslenskra sjávarafurða. Markmið
ISF er að auðvelda sölu sjávarafurða
inn á markaði sem sérstaklega krefjast
MSC vottunar.
Samkvæmt samþykktum ISF er
félagið opið öllum þeim sem óska eftir
aðild sem eru í dag alls 53. Hluthafar
félagsins hafa einir rétt á því að selja
fiskafurðir með tilvísun til þeirrar
MSC vottunar sem ISF hefur keypt.
Skilyrði þess að vara úr MSC vottuðum
veiðum hér við land (á vegum ISF)
sé seld á markaði með tilvísun til
MSC er að varan hafi á einhverju stigi
sölukeðjunnar verið eign einhvers
hluthafa í ISF.
Fyrstu stofnarnir sem vottaðir voru
samkvæmt MSC staðli hér á landi voru
þorskur og ýsa árið 2011. Nú hafa 16
fiskistofnar fengið vottun, tveir eru í
vottunarferli og einn í vottunarstöðvun.
Í dag eru 168 starfsstöðvar með
MSC rekjanleikavottun. Ísland er
meðal fremstu ríkja í MSC vottun
fiskveiða hvað varðar magn og umfang.
Greiningin
Eftir því sem höfundur kemst
næst eru IRF og MSC einu sjálf-
bærni staðlarnir sem íslensk sjávar-
útvegsfyrirtæki vinna eftir og eru
vottuð samkvæmt. Algengt er að þau
vinni eftir báðum.
Megin ástæðan fyrir MSC
vottun hefur verið krafa kaupenda,
en helsti drifkraftur IRF vottunar er
sérstaða hennar sem íslensk vottun
sem vísar jafnframt í upprunann.
VOTTANIR & UPPRUNAMERKINGAR MATVÆLA
Oddný Anna Björnsdóttir
objornsdottir@gmail.com
Rekjanleika- og sjálfbærnistaðlar
fyrir veiðar á villtum fiski
Ólöglegar veiðar á sæbjúgum
hala inn milljónum
Ólöglegar veiðar á sæbjúgum
út af Seattle á norðausturströnd
Bandaríkjanna eru farnar að
hafa áhrif á stofnstærð. Þetta er
eftirsótt fæða og notuð í lyf í Kína.
Nýlega var fyrirtæki í Seattle
dæmt til hárrar sektar fyrir
langvarandi ólöglegar veiðar og
sölu á sæbjúgum út af strönd
Washington-ríkisins. Upp komst um
athæfið þegar fyrirtækið ætlaði að
selja rúm hundrað tonn af ólöglega
veiddum sæbjúgum til Kína. Talið
er að ólöglegar veiða á sæbjúgum í
hafinu út af Washington-ríki velti um
tugum milljóna bandaríkjadala á ári.
Fyrirtækið sem um ræðir er
leiðandi í veiðum, vinnslu og sölu
á sæbjúgum í Bandaríkjunum og er
talið að það hafi um margra ára skeið
selt ólöglega veidd sæbjúgu til Kína.
Ginseng hafsins
Sæbjúga, eða hraunpussa eins og
dýrið var í eina tíð kallað hér á landi,
er vinsælt sem matur og í lyf í Kína
og eftirsókn eftir þeim hefur verið
að aukast og kvikindið stundum
kallað ginseng hafsins. Hér á landi
eru meðal annars framleidd hylki úr
sæbjúgum sem eiga að verka gegn
stirðleika í
liðum. Auk
þess sem
sæbjúgu eru
seld til Kína, bæði þurrkuð og frosin.
Ráðgjöf Hafró á Íslandi
Líkt og hér á landi eru veiðar á
sæbjúgum við Bandaríkin bundnar
í kvóta. Hafrannsóknastofnun
ráðleggur veiðar hér í samræmi við
varúðarnálgun að afli á sæbjúga
fiskveiðiárið 2018/2019 fari ekki
yfir 1.731 tonn á skilgreindum
veiðisvæðum; 644 tonn í Faxaflóa,
985 tonn við Austurland (norður; 245
t, suður; 740 t) og 102 tonn í Aðalvík.
Jafnframt er lagt til að skilgreint
veiðisvæði í Faxaflóa verði stækkað
í samræmi við útbreiðslu veiðanna
og að lokað svæði frá árinu 2010
verði opnað fyrir veiðum. Einnig er
lagt til að veiðisvæði í Aðalvík verði
stækkað í samræmi við útbreiðslu
veiða, svo og veiðisvæði við
Austurland sem verði jafnframt skipt
upp í norður- og suðursvæði. Lagt
er til að allar sæbjúgnaveiðar verði
bannaðar á skelmiðum í Breiðafirði
og veiðar utan skilgreindra veiðisvæða
háðar leyfum til tilraunaveiða. /VH
UTAN ÚR HEIMI