Bændablaðið - 04.10.2018, Síða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201820
Sala eiturefna í landbúnaði í
löndum Evrópusambandsins
jókst umtalsvert á árunum frá
2011 til 2016 samkvæmt
tölum Eurostat, hagstofu
ESB. Þar vekur notkun á
sveppa- og bakteríueitri
sérstaka athygli sem og á
illgresis- og mosaeyði sem
og skordýraeitri.
Frá þessum þjóðum
kemur einmitt mikið af þeirri
kjötvöru, grænmeti og ávöxtum
sem flutt eru til Íslands.
Þó ekki séu öll hjálparefni
skaðleg náttúrunni, er samt vitað
að ýmis innihaldsefni sumra
hjálparefna eru þrávirk og safnast
því upp í jarðvegi. Geta þau því
hæglega endað í grunnvatni
og neysluvatni manna
og dýra. Vaxandi
áhyggjur hafa
einmitt verið meðal
vísindamanna um
að mögulega sé
verið að eyðileggja
jarðveg í stórum stíl,
bæði með óhóflegri
notkun eiturefna og
ofnýtingu. Það geti leitt
til niðurbrots jarðvegs
þannig að hann verði
ónothæfur til ræktunar.
Massaframleiðslan
kallar á eiturefni, stera og
sýklalyf
Vandinn er að til að ná hámarks
framleiðni og afköstum sem verið er
að kreista á methraða út úr lífríkinu í
tæknivæddum landbúnaði, verður að
beita margvíslegum efnafræðilegum
töfrabrögðum. Allt er þetta sagt gert
neytendum til hagsbóta, þeir kalli á
sífellt ódýrari vörur. Það þekkjum við
vel af áróðri og rökum hagsmunaaðila
fyrir óheftum innflutningi á
matvörum til Íslands. Þar hafa ýmis
eiturefni reynst afar skilvirk, eins
og glyfosat, skordýraeitur, sýklalyf
og sterar. Ef þessi „hjálparefni“ eru
notuð, þá verða menn um leið að
líta framhjá mögulegum slæmum
afleiðingum fyrir náttúru og menn.
Vitundarvakning fyrir
lífrænum landbúnaði
Fjölmargir bændur og vaxandi fjöldi
neytenda er af þessum sökum farinn
að horfa til lífræns landbúnaðar,
eða til hugmyndafræði Slow
Food sem leyfir ekki notkun allra
þessar aðskotaefna og allra síst
eiturefna. Er þó oft reynt í staðinn
að styrkja lífrænar varnir með
aðstoð ýmissa skordýra eins og t.d.
er gert í íslenskum gróðurhúsum.
Framleiðsla á lífrænum afurðum
getur samt aldrei náð sömu
afköstum og massaframleiðsla
með aðstoð kemískra efna. Hún er
alltaf á náttúrulegum forsendum og
með raunverulegri afkastagetu við
náttúrulegar aðstæður á hverjum
stað. Það þýðir að kostnaður
verður í takt við það og ekki hægt
að undirbjóða þær staðreyndir með
töfrabrögðum efnaiðnaðarins.
171 þúsund tonn af
sveppa- og bakteríueitri
Sveppa- og bakteríueitur voru
mest notuðu hjálparefnin í
evrópskum landbúnaði árið
2016 sam-
kvæmt tölum
Euro stat. Af
þeim voru
seld 167.643
tonn, en inn
í þær tölur
vantaði söluna í
Lúxemborg sem notaði 92
tonn af þeim árið 2011 og Holland
sem notaði 4.238 tonn af slíkum
efnum árið 2011. Má því ætla að
heildarsalan á sveppa- og bakteríueitri
í ESB-löndunum árið 2016 hafi verið
ríflega 171 þúsund tonn. Slík efni í
duftformi geta innihaldið um 90%
brennistein sem er mjög eitraður,
en önnur innihaldsefni geta verið
óskaðlegar jurtaolíur en einnig
sérhæfðar bakteríur.
127 þúsund tonn af
gróðureyðingarefnum
Efnin sem hér um ræðir eru oft nefnd
hjálparefni og er ýmist ætlað að
verjast plöntusjúkdómum eða ágangi
óæskilegra jurta og skordýra. Mest
er þar notað af gróður eyðingar efnum
og mosaeitri. Af slíkum efnum voru
samkvæmt tölum Eurostat, notuð
árið 2016 í ríkjum ESB samtals
124.295 tonn. Þar
vantaði þó inn
tölur frá Hollandi
sem notaði 3.025
tonn af slíkum
efnum árið 2011.
Einnig vantaði
tölur frá
Lúxem-
borg sem
n o t a ð i
102 tonn
af gróður-
e y ð i n g a r -
efnum og
m o s a e i t r i
árið 2011. Má
því ætla að
heildarnotkunin
í ESB-ríkjunum
hafi vart verið
minni en 127
þúsund tonn árið 2016.
Sum þessara efna, eins og
gróðureyðingarefnið Roundup,
innihalda virka efnið glyfosat
sem valdið hefur miklum deilum
á liðnum árum og misserum. Fjöldi
lögfræðinga og vísindamanna
á vegum efnaframleiðslurisa á
borð við Monsanto, sem nú er
komið í eigu þýska fyrir tækisins
Byern, hafa haldið fram skaðleysi
glyfosats. Nokkrir íslenskir
vísinda menn hafa líka lagst á
þá sveif. Sífellt eru þó að koma
fram rann sóknir sem sýna fram
á skaðlegar verk anir glyfosats á
umhverfið og ekki síst býflugur.
Glyfosat skaðar
meltingarveg
býflugna
Þann 24. sept ember
sl. var m.a. birt hjá
vísindarita útgáfu
PNAS ítarleg
vís inda rannsókn
í Bandarík j unum
sem fjallar um áhrif
glyfosats á býflugur.
Um 3.200 vísindagreinar e r u
birtar hjá PNAS á ári hverju.
Þar kemur fram að bakteríur í
meltingarvegi býflugna, sem eru
þeim lífsnauðsynlegar til vaxtar,
skaðast af glyfosati sem býflugurnar
komast í snertingu við. Þetta leiðir til
dauða býflugnanna, en þol einstakra
bakteríutegunda í meltingarvegi
býflugna gagnvart glyfosati geti þó
verið mismunandi mikið.
Í niðurlagi greinarinnar segir að
hunangsflugur eins og fleiri lífverur
reiði sig á virkni þarmaflórunnar
m.a. við að melta fæðu og halda
ónæmiskerfinu gangandi. Einnig
sem sýklavörn. Truflun á þessari
virkni hafi afger andi afleið ingar á
hraust leika flug unnar og þar hafi
glyfosat áhrif. Ný legar endur teknar
tilraunir
og rannsóknir
hafi komið fram
með sannanir
fyrir þessum
á h r i f u m .
Þá kemur
einnig fram í
greininni að glyfosat sé vatnsleysan-
legt efni og áhrif þess geti haldist í
náttúrunni í langan tíma. Það þýðir
væntanlega líka að glyfosat getur
borist í grunnvatn og mögulega í
drykkjarvatn manna.
37 þúsund tonn af skordýraeitri
Skordýraeitur er þriðji mest notaði
hjálparefnaflokkurinn í landbúnaði
í ESB-ríkjunum. Af slíkum efnum
voru notuð, samkvæmt tölum
Eurostat, 36.888 tonn árið 2016. Þar
vantaði þó inn tölur frá Lúxemborg
og Hollandi, en í síðarnefnda ríkinu
voru seld 270 tonn af skordýraeitri
árið 2011. Heildarsala á skordýraeitri
í ESB-löndunum árið 2016 hefur því
vart verið undir 37 þúsund tonnum.
Skordýraeitur hefur m.a. áhrif á
taugakerfi skordýra. Taugagas sem
notað hefur verið í hernaði er í
grunninn af líkum toga.
Þarna er um að ræða efni sem
enginn deilir líklega um að séu eitruð
og geta verið mjög skaðleg mönnum.
Enda er þeim beinlínis ætlað að
drepa skordýr og önnur sníkjudýr
sem kunna að sækja á nytjajurtir.
1.400 tonn af lindýraeitri
Af lindýraeitri voru seld 1.377 tonn
samkvæmt tölum Eurostat sem eru
þó ekki tæmandi. Þar vantar tölur frá
fimm ríkjum. Mögulega gæti vantað
inn í þessar tölur í það minnsta tugi
eða jafnvel nokkur hundruð tonn.
Um 13.600 tonn af
plöntuhormónum
Vaxtastýriefni (Plant grow
regulators), eða plöntuhormónar,
eru meðal þeirra hjálparefna sem
notuð eru í evrópskum landbúnaði.
Af þeim voru seld samkvæmt tölum
Eurostat 13.465 tonn árið 2016. Þar
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Hjálparefnanotkun hefur stöðugt verið að aukast í stærstu ríkjum Evrópusambandsins samkvæmt tölum Eurostat:
– Það er lykillinn að massaframleiðslu „ódýrra“ matvæla og fimm stærstu ríkin nota yfir 270 þúsund tonn af þessum efnum árlega