Bændablaðið - 04.10.2018, Side 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 25
30 útibú og afgreiðslur utan
höfuðborgarsvæðisins. Í Árnessýslu
einni er Landsbankinn á þremur
stöðum; Selfossi, Þorlákshöfn og
í Reykholti.
Miklar breytingar á
bankastarfsemi
Breytingarnar sem orðið hafa
í þjóðfélaginu á þeim 100
árum sem eru liðin frá því að
Landsbankinn opnaði útibú á
Selfossi eru gríðarlegar. Myndin
af Tryggvaskála sem fylgir þessari
grein var tekin einhvern tímann
á árunum 1911–1918 og hún
segir meira en mörg orð um þær
byltingarkenndu framfarir sem
orðið hafa.
Ekki þarf að horfa svo langt aftur
í tímann til að fá rakið dæmi um
miklar framfarir, til dæmis frá því
ég hóf störf hjá Landsbankanum á
Selfossi árið 1986 hef ég upplifað
ótrúlegar breytingar. Þá störfuðu í
útibúinu rúmlega fjörutíu manns
en þeim hefur fækkað um sextíu
prósent á þessum liðlega þrjátíu
árum. Starfsemi útibúa á þessum
tíma krafðist mikils mannafla og
voru fjölmennar bakvinnsludeildir
sem önnuðust tölvuskráningar og
ýmis uppgjör. Tölvutæknin hafði
ekki nema að hluta rutt sér til
rúms og mikið magn af tékkum,
vísanótum og víxlum voru í umferð
sem þurfti að skrá og flokka.
Upp úr miðjum níunda
áratugnum átti sér stað mikil
bylting þegar íslenska bankakerfið
var beinlínuvætt með svokölluðu
Kienzlekerfi sem samtengdi
bankakerfið í gegnum Reiknistofu
bankanna. Þetta þýddi að færslur
skráðust á rauntíma og má geta
þess að íslenska bankakerfið var
það fyrsta í heiminum til að innleiða
slíka tækni.
Öll vinnubrögð sem tengjast
bankaþjónustu hafa gerbreyst á
þeim tíma sem liðinn er síðan ég hóf
fyrst störf hjá bankanum. Vinna sem
áður krafðist margra handa er nú
leyst með sjálfvirkum og stafrænum
hætti. Viðskiptavinir geta nú sjálfir
millifært, stofnað reikninga, hækkað
og lækkað yfirdráttarheimildir
og skipt kreditkortareikningum.
Greiðslumat fyrir íbúðalán er
nú aðgengilegt á vef bankans
sem einfaldar og styttir ferlið til
muna, bæði fyrir viðskiptavini og
starfsmenn. Bakvinnsla sem unnin
var í útibúum heyrir nú sögunni til.
Svona mætti lengi telja.
Meiri áhersla á fjármálaráðgjöf
Það er ljóst að viðskiptavinir vilja
hafa aðgang að bankaþjónustu
hvar og hvenær sem er, á netinu
og í símanum. Landsbankinn tekur
fullan þátt í þessari þróun og leggur
nú enn meiri áherslu á stafræna
tækni. Heimsóknum viðskiptavina
í útibú hefur fækkað umtalsvert og
hlutverk útibúa hefur breyst. Meiri
áhersla er nú lögð á að veita faglega
og persónulega fjármálaráðgjöf.
Þannig þróast útibúin áfram í takti
við nýja tíma.
Í dag, 4. október, ætlum við
að minnast þess að 100 ár eru
liðin frá því útibúið var opnað í
Tryggvaskála með skemmtidagskrá
í Landsbankanum á Selfossi milli
kl. 14–16. Allir eru velkomnir.
Nína Guðbjörg Pálsdóttir,
útibússtjóri Landsbankans
á Selfossi.
Starfsfólk Landsbankans á Selfossi árið 1986.
Hringhella 12, 221 Hafnarfjörður · Sími 565 1489 · isror@isror.is · www.isror.is
Hjá Ísrör færðu einangruð
hitaveiturör frá LOGSTOR
– Stálrör
– Stálfittings og samsetningar
– Pexrör
– Pexfittings og samsetningar
– PexElextra sveiganlegri plaströr
– Pexfittings og samsetningar
Og svo allt annað sem þarf til
hitaveitulagna
Nýtt hjá ÍSRÖR
Bjóðum nú kaldavatnslagnir
PE-100 og PE-80 ásamt
tilheyrandi fittings
Bjóðum einnig snjóbræðslurör
PP og PE
Líklega besta verðið
Sjáumst á Landbúnaðarsýningunni
12-14 október.
Verðum á Bás B7 (31-51)
Komdu og kynntu þér vörurnar í virkni frá Agrilight.
Fulltrúi frá Agrilight verður á staðnum.
Vörurnar frá Keraf verða á staðnum og sýnum við
meðal annars led ljóskastara í virkni ásamt fleiru.
Fulltrúi frá Keraf verður á staðnum.
Vörur frá NightSearcher verða á staðnum. Komdu og
kynntu þér hágæða led ljós drifin af Li-lon rafhlöðum.
Fulltrúi frá Nightsearcher verður á staðnum.
adænB