Bændablaðið - 04.10.2018, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201832
Steingrímur Karlsson og Arna Björg Bjarnadóttir nýta sér bakgrunn í kvikmyndagerð og sagnfræði í ferðaþjónustubúskap:
Hafa byggt upp Óbyggðasetur í skjóli
fjallanna á innsta bænum í Fljótsdal
Hjónin Steingrímur Karlsson,
kvikmyndagerðarmaður og
ferðaþjónustubóndi, og Arna
Björg Bjarnadóttir, sagnfræðingur
og menningarmiðlari, hafa í
nokkur ár unnið að uppbyggingu
Óbyggðaseturs á bænum
Egilsstöðum í Fljótsdal. Þar er nú
komin glæsileg gistiaðstaða í anda
fortíðar og boðið upp á veglega
tæknivædda sýningu um söguna,
sem er mikil upplifun að skoða.
Þegar ekið er inn að
Fljótsdalsvirkjun fyrir botni
Lagarfljóts getur að líta skilti við
veginn sem vísar á Óbyggðasetur
inn í Norðurdal Fljótsdals. Ekið er
út af veglegum vegi með bundnu
slitlagi og inn á hefðbundinn
malarveg. Ekið er eins og leið
liggur til endimarka akvegarins og
þá blasir við bærinn Egilsstaðir þar
sem Óbyggðasetrið er til húsa. Það
er innsta byggða ból í Fljótsdal og í
bakgarðinum eru stærstu óbyggðir
í Norður-Evrópu. Upplifunin af því
að skoða gamla bæinn og sýninguna
sem þar er boðið upp á er hreint
ótrúleg og kemur sannarlega á
óvart. Er sýningin mjög byggð upp
á sjónrænni upplifun og auðséð
að þar gætir töluverðra áhrifa og
reynslu kvikmyndagerðarmannsins
Steingríms.
Á jörðinni er gamla íbúðarhúsið
sem búið er að gera upp sem
gististað með veitingum og búið að
setja upp veglega og tæknivædda
sýningu í skemmu þar við hliðina.
Hjónin Gunnar Jónsson og
Bergljót Þórarinsdóttir, bændur á
Egilsstöðum, voru þátttakendur í
verkefninu með Steingrími og Örnu,
en Bergljót er nú látin. Fjölskylda
Gunnars hafði búið á Egilsstöðum
í um 150 ár.
Með stærstu óbyggðir Norður-
Evrópu í bakgarðinum
Steingrímur segir að hugmyndin
að Óbyggðasetrinu hafi fæðst
þegar hann og kona hans, Arna
Björg Bjarnadóttir, sem ættuð er úr
Skagafirði, ráku þaðan 6–10 daga
hestaferðir um óbyggðir Austurlands
á sumrin.
„Það voru nokkrir samliggjandi
þættir sem ollu því að við fórum í að
byggja upp þessa aðstöðu á bænum.
Hér erum við á innsta byggða bóli
í dalnum og í bakgarði okkar eru
stærstu óbyggðir í Norður-Evrópu.
Það var líka sérstök saga systkinanna
sem hér bjuggu og nábýli þeirra við
óbyggðirnar sem okkur langaði að
fanga.
Ég á hér tengingar og frá því ég
var lítill hefur mér alltaf fundist að
hér væru mínar rætur og hér vildi
ég vera. Ég var á sumrin í sveit hjá
móðursystur minni á næsta bæ hér
fyrir utan. Þá hafa óbyggðirnar líka
alltaf verið mitt áhugamál. Arna
Björg, konan mín, var forstöðumaður
og byggði upp Sögusetur íslenska
hestsins í Skagafirði og bjó því yfir
dýrmætri reynslu sem nýttist við
uppbygginguna og reksturinn hér.“
Að uppbyggingu Óbyggðaseturs
fengu þau Steingrímur og Arna Björg
fjölda heimamanna og fagfólk sér til
aðstoðar við smíðar, tæknilausnir og
uppsetningu sýninga.
Sveitungarnir gerðu grín að
löngum aðdraganda
„Það liðu fimm ár frá því við
fengum þessa hugmynd og þar til
við opnuðum. Fyrstu tvö árin fóru
meira og minna í heimildar- og
rannsóknarvinnu, hönnun og vinnslu
viðskiptaáætlunar. Sveitungunum
fannst þetta ganga ansi hægt og
gerðu grín að okkur á þorrablóti. Þá
voru liðin þrjú ár og rétt farnar að
sjást breytingar. Sögðu sveitungarnir
því að þeir hafi sennilega misskilið
þetta. Þetta væri ekki Óbyggðasetrið,
heldur óbyggða setrið.“
Steingrímur segir að veitinga-
staðinn hafi þau ákveðið að útbúa
í stíl við gamla eldhúsið.
„Það var gert upp í stíl
við upprunalega eldhúsið.
Höldurnar á skápunum eru úr
hreindýrshornum og hurðirnar á
efri glerskáp eru gamlir fjósgluggar.
Eldhúsborðið var gert upp úr gamla
baðstofuborðinu. Svo er eldað fyrir
framan gestina eins og gert var í
gamla daga. Við matborðið spinnast
svo endalausar umræður þar sem
gestir vilja fræðast um sögu og
náttúru svæðisins.
Þá notum við hér kjöt frá bænum
og silung úr vötnunum. Við erum
líka með reykkofa þar sem við
reykjum kjöt. Allt brauð og kökur
er líka heimabakað og þar byggjum
við mikið á gömlum uppskriftum.“
Margt jákvætt við ferðaþjónustu
lengst inni í afdal
„Það er bæði hægt að líta á það
jákvæðum og neikvæðum augum
að vera hér lengst inni á afdal þar
sem vegurinn endar. Í því eru þó
heilmargir kostir og gæði fyrir
gestina okkar að komast hér í
fámennið og rólegheitin. Upplifa hér
gamla Ísland fremur en að þeysast
á milli fjölfarinna ferðamannastaða.
Þarna á Austurland mikið inni með
allri sinni náttúrufegurð og dýralífi.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fjölskyldan uppábúin að hætti liðins tíma. Hjónin Arna Björg Bjarnadóttir, sagnfræðingur og menningarmiðlari og Steingrímur Karlsson,
kvikmyndagerðarmaður og ferðaþjónustubóndi, ásamt dætrum sínum, þeim Snædísi (í fangi móður sinnar) og Friðnýju. Mynd / Gunnar Gunnarsson
Hvert sem litið er má sjá hluti sem minna á liðna tíma.
Óbyggðasetrið að Egilsstöðum í Fljótsdal. Búið er að gera upp gamla íbúðarhúsið í upprunalegum stíl frá 1940. Þar
við hliðina er skemma með stórmerkilegri sýningu um sögu svæðisins á jarðhæð og gistiaðstöðu með baðstofu
í gömlum stíl með lokrekkjum á efri hæð. Í fjarska á neðri myndinni sést nýrra hús sem Gunnar Jónsson bóndi
byggði, en hann er sonur Jófríðar sem var ein af 14 Egilsstaðasystkinum. Myndir / HKr.
„Þá notum við hér kjöt frá bænum
og silung úr vötnunum,“ segir
Steingrímur.