Bændablaðið - 04.10.2018, Side 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201834
systkinunum á bænum og þeirra
nábýli við óbyggðirnar.“
Systkinin 14 frá Egilsstöðum
Systkini Snorra voru Sigríður,
fædd 1908, Stefán, fæddur 1910,
Sigurður, fæddur 1911, Sigurbjörg,
fædd 1913 og var gift Jóni Finnssyni
og áttu þau fjögur börn. Þá kom
Pétur, fæddur 1915, Egill, fæddur
1916, Björg, fædd 1917 og Ingólfur,
sem var fæddur 1919 og giftist
Unni Einarsdóttur og átti með
henni 3 börn. Síðan kom Bergljót,
fædd 1920, Jófríður, fædd 1922 og
eignaðist hún einn son sem enn býr
á Egilsstöðum. Þá kom Guðfinna,
fædd 1924 og Ingibjörg, fædd 1926,
en hún giftist Þórarni Bjarnasyni og
eignuðust þau tvö börn. Yngst þeirra
systkina var svo Þórhalla, en maður
hennar var Kjartan Hallgrímsson og
eignuðust þau 12 börn.
Kvikmyndakunnáttan og
sagnfræðin hafa nýst vel
Steingrímur segir að við uppbyggingu
Óbyggðaseturs hafi honum nýst
vel reynslan af kvikmyndagerð
og þekking konunnar á sagnfræði,
rekstri og viðburðastjórnun.
„Það má segja að staðurinn
sé leikmyndin okkar og
starfsfólkið leikararnir sem
skapa sanna upplifun byggða
á menningu okkar og gefa
gestum kost á að upplifa
fortíðina.
Ferðirnar sem við bjóðum
upp á eru byggðar upp á
svipaðan hátt. Þar er miðlun
sögunnar og náttúrunnar alltaf
í forgrunni.
Það hefur verið vinsælt að
koma hingað með skólakrakka
til að kenna þeim og upplifa
hvernig fólk lifði hér áður
fyrr.“
Steingrímur segir að
nú í nóvember sé stefnt að
því að opna nýja aðstöðu
við bæinn. Þar verður laug
með steinhleðslu í kring og
baðhús með gufubaði og
hvíldaraðstöðu. Allt verður það
í þessum gamla stíl og klætt að
utan með rekaviði.
„Við ákváðum strax og
við fórum í þetta verkefni
um Óbyggðasetrið að byggja
þetta á faglegum grunni. Við
leituðum því eftir víðtæku
samstarfi við Þjóðminjasafnið,
Va t n a j ö k u l s þ j ó ð g a r ð ,
Náttúrustofu Austurlands,
Jarðfræðisetrið á Breiðdalsvík,
Héraðsskjalasafnið, Land-
mælingar Íslands, Vegagerðina
og Minjasafn Austurlands.
Setrið er að öllu leyti
einkarekstur og ekki kostað af
ríkinu þótt við höfum auðvitað
sótt um alls konar styrki til
að koma þessu áfram. Má
nefna að sveitarfélagið hér,
Fljótsdalshreppur, sem er eitt
hið fámennasta á landinu, hefur
styrkt okkur vel til að hjálpa
okkur í gang.
Markmið Óbyggðasetursins
er að skapa heildstæða upplifun
og miðla sögu óbyggða Íslands
með lifandi hætti gegnum
fjölbreytta þjónustu og
afþreyingu. Gisting er í boði allt
árið og staðurinn einnig tilvalinn
fyrir vina- eða starfsmannahópa.
Auðvelt er að finna hér nóg
að gera og njóta náttúru og
friðsældar,“ segir Steingrímur
Karlsson.
Baðstofan hefur vakið athygli, ekki síst meðal útlendinga. Þar er hægt að fá gistingu við aðstæður líkar þeim sem
þekktust í íslensku torfbæjunum. Mjög er þar vandað til verka til að hafa útlitið á baðstofunni sem líkast gömlu
eru rúmin sjálf stærri en tíðkaðist áður fyrr og búnar nútíma rúmdýnum. Mynd / Óbyggðasetur
Margar skemmtilegar sögur eru sagðar í Óbyggðasetri með mjög skemmtilegri framsetningu, eins og af manninum sem fyrir slysni varð að gera sér að
góðu að þeysast um á hreindýri. Mynd / HKr.
Burðarklár og ferðakistill.
Mynd /
HKr.
Gamli vélsleði Egilsstaðabræðra var
var of snjólaust niðri í dalnum til að
hægt væri að aka honum þar.
Överaasen DLS-270
A. Wendel ehf.
Tangarhöfða 1
110 Reykjavík
Sími 551 5464
www.wendel.is
Systkinin á Egilsstöðum voru mikið hagleiksfólk og hefur greinilega sjaldan
fallið verk úr hendi. Mynd / HKr.
Hvergi er slegið af fagmennskunni í Óbyggðasetri.
þegar gengið er um sýninguna eru handsmíðuð
af Steingrími Karlssyni. Mynd / HKr.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur