Bændablaðið - 04.10.2018, Qupperneq 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201850
Undanfarinn áratug hefur
hérlend notkun kúabænda á
fóðurblöndurum aukist jafnt
og þétt samhliða stækkun
búanna og almennt aukinni
tæknivæðingu þeirra. Fóðrið
sem í slíka blandara fer getur
verið af ýmsum toga og gæðum
og á meðan sumir nota slíka
blandara einungis til blöndunar
á grasi og heimaræktuðu
gróffóðri af ólíkum gæðum,
þá framleiða aðrir svokallað
heilfóður með fóðurblöndurum
sínum.
Fóðurblandarar eru nánast
undantekningarlaust notaðir á
stærri kúabúum erlendis enda
má með réttri notkun slíkrar
tækni lækka fóðrunarkostnað kúa
og þar með framleiðslukostnað
mjólkur. Það fer þó eftir bústærð
hve hagkvæmt það er að nota
fóðurblandara, enda dýrir í
innkaupum og rekstri. Undanfarna
mánuði hefur kjarnfóðurverð hér
á landi farið hækkandi og því
er afar líklegt að fleiri og fleiri
bændur muni horfa til notkunar
á fóðurblöndurum, enda byggir
notkun þeirra á blöndun ódýrari
hráefna í stað hefðbundinnar
kjarnfóðurnotkunar en til þess að
vel takist til við heilfóðurgerðina
þarf að vanda til verka.
Allt í einni munnfylli
Heilfóður er, eins og nafnið
bendir til, fóður sem inniheldur
alla fóðrunarþörf kúnna og er þá
bæði gróffóðri og öðru kraftmeira
fóðri, steinefnum og vítamínum
blandað saman. Þetta er algengasta
fóðrunaraðferðin sem notuð er á
tæknivæddari búum heimsins
og algengast er að kýrnar fái
ekkert annað fóður, þ.e. ekkert
kjarnfóður, enda er hugmyndin
að baki heilfóðri „Allt í einni
munnfylli“ þ.e. að kýrnar fái alltaf
fóður af sömu gæðum og lendi
ekki í því ójafnvægi vambarinnar
sem fylgir kjarnfóðuráti.
Þessi aðferð er enn sem
komið er ekki mikið notuð hér
á landi og algengast er að þau bú
sem eru með fóðurblandara fari
einskonar blandaða leið, þ.e. gefi
kúnum gróffóðurblöndu en auk
þess fóðurbæti í þar til gerðum
fóðurbásum eða samhliða mjöltum
í mjaltabás eða mjaltaþjóni.
Þessi aðferð er ekki mikið notuð
erlendis en afbrigði af þessari
aðferð nota þó bændur erlendis
með mjaltaþjóna þar sem kýrnar
fá tælifóður í mjaltaþjónunum, oft
2-3 kíló af fóðurbæti á dag, svo
þær komi til mjalta.
Einsleitni mikilvæg
Einn aðalkostur heilfóðurs
er að með því má draga úr
hráefniskostnaði fóðursins þannig
að í stað þess að kaupa dýran
fóðurbæti þá eru keypt inn ódýrari
hráefni og til þess að koma þeim
í kýrnar er þeim blandað saman
við gróffóðrið.
Það er afar mikilvægt að blanda
heilfóðrið rétt og vel og miða við
það að þegar moðið er tekið frá
kúnum sé það nánast eins og
upphaflega fóðrið og magn þess
ætti ekki að vera nema 2% af því
magni sem upphaflega var gefið.
Samanþjappað heilfóður
Í Danmörku hefur heilfóður verið
notað í áratugi og hafa danskir
kúabændur náð miklum og góðum
árangri með notkun á því og eru
í dag í fremstu röð í heiminum
þegar horft er til meðalafurða kúa.
Danskir vísindamenn eru
einnig leiðandi í þekkingaröflun
á heilfóðurgerð og fyrir nokkrum
árum kom þar fram ný aðferð
við heilfóðurgerð sem á dönsku
heitir „Kompakt fuldfoder“ sem
þýðir einfaldlega samanþjappað
heilfóður.
Þessi aðferð snýst um
að hámarka nýtinguna á
meltingarvegi kúnna og lágmarka
frávik á gæðum þess heilfóðurs
sem kýrnar setja upp í sig hverju
sinni. Fyrir vikið er gott jafn-
vægi á sýrustigi og bakteríuflóru
vambarinnar hverju sinni og þar
með geta kýrnar skilað miklum
afurðum.
Nákvæm uppskrift
Að baki þessari dönsku aðferð við
heilfóðurgerð er dr. Niels Bastian
Kristensen, fyrrverandi prófessor
við Háskólann í Kaupmannahöfn
og núverandi landsráðunautur í
fóðrun nautgripa hjá SEGES.
Ástæðan fyrir því að þessi aðferð
varð til var sá óstöðugleiki á
heilfóðurgæðunum sem Niels sá
hjá bændum landsins. Þá vildi
hann einnig meina að eldri tilgátur
um mikilvægi strálengdar í fóðri
kúa væri ekki rétt miðað við kýr
dagsins í dag en hér áður fyrr var
sérstaklega varað við mikilli söxun
á fóðri mjólkurkúa.
Í raun byggir aðferðin á því að
bændur fá nákvæma uppskrift að
Sniglar í görðum:
Best að fjarlægja þá með höndum
Síðastliðið sumar gerðu
garðyrkju fræðingar á vegum
Konunglega breska garð yrkju-
félagsins athugun á gagnsemi
ýmissa húsráða sem ætlað er að
fæla snigla frá matjurta görðum
og plöntum sem sniglar eru
sólgnir í.
Niðurstaða bresku garðyrkju-
mannanna er að ráð eins og að setja
koparþynnu í ytra borð matjurtakassa
eða að strá eggjaskurn umhverfis
plönturnar eru að mestu gagnslaus.
Garðyrkjumennirnir reyndu
nokkur þekkt húsráð sem eiga að
virka sem sniglafælur. Ráðin voru
að mylja eggjaskurn, dreifa barri,
viðarkurli eða smásteinum umhverfis
plönturnar og setja koparþynnur á
ytra borð matjurtakassa.
Ólík ráð voru reynd við 108
salatplöntur, auk þess sem til
samanburðar voru salatplöntur sem
ekkert var gert fyrir. Eftir sex vikna
vöxt var útkoman skoðuð.
Helsta niðurstaða könnunarinnar
var að salatplöntur sem ræktaðar
voru í beðum voru viðkvæmari fyrir
sniglum en plöntur sem ræktaðar
voru í pottum. Munurinn var 5,7%
át á beðplöntum en 0,2% á plöntum
í pottum.
Annað sem vakti athygli var
að plöntur sem smásteinum og
barri hafði verið stráð umhverfis
voru talsvart stærri og hraustari en
samanburðarplönturnar.
Það kann að koma þeim sem til
þekkja á óvart að ekki var athugað
með gagn bjórgildra til að losna við
snigla úr görðum. Að sögn bresku
garðyrkjumannanna eru bjórgildrur
góðar til að losna við snigla en á
sama tíma laða þær fleiri snigla að.
Að sögn eins garðyrkjumannsins
sem tók þátt í athuguninni er líklega
besta leiðin til að losna við snigla að
tína þá upp og losa sig við þá í að
minnsta kosti tuttugu metra fjarlægð
frá garðinum. /VH
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
UTAN ÚR HEIMI
Samanþjappað heilfóður
Heilfóður.
er algengast að fóðurráðgjafar sjái um þennan þátt. Heilfóðrið er þá vegið
þess að meta blöndunargæði þess.
Afleiðingar fellibylsins í Norður-Karólínu:
Milljónir húsdýra drukknuðu
í eigin úrgangi
Talið er að 3,4 milljónir hænsna
og 5.500 alisvín hafi drepist í
flóðum vegna fellibylsins Flórens
sem gekk yfir Norður-Karólínu
í Bandaríkjum Norður-Ameríku
fyrir skömmu.
Flest dýrin munu hafa drukknað
í eigin úrgangi þegar opnar rotþrær
eða hauggryfjur flæddu yfir og
milljónir tonna af búfjárúrgangi
flæddu inn í gripahús.
Landbúnaðarráðuneyti Banda-
ríkja Norður-Ameríku hefur staðfest
að fjöldi hænsna sem hafi drepist
vegna saurflóða sé 3,4 milljónir og
svína 5.500 en að búast megi við
að sú tala eigi eftir að hækka þegar
endanlega sjatnar í flóðunum.
Kjúklinga- og svínakjöts-
framleiðsla í Norður-Karólínu er ein
sú mesta í Bandaríkjunum og talið
að í ríkinu sé að finna 830 milljónir
hænsnfugla og níu milljón alisvín.
Samkvæmt því sem yfirvöld
umhverfismála í ríkinu segja
skemmdust að minnsta kosti þrjátíu
hauggryfjur illa í fellibylnum og í
sumum tilfellum sprungu veggir
þeirra þannig að innihaldið flæddi
út í grunnvatnið. /VH
áaa
gýg s nm u l i aaáS r 0030365 --
H f rh f i