Bændablaðið - 04.10.2018, Síða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201852
HROSS&HESTAMENNSKA
N ú e r
sýningarárinu
2018 lokið
í í s l enskr i
hrossarækt, viðburða ríku og
skemmtilegu ári með Landsmóti
hestamanna í Reykjavík.
Alls voru haldnar 15 sýningar
víðs vegar um landið og alls voru
felldir 1575 dómar sem er góður
fjöldi en þó heldur færri dómar en á
síðasta landsmótsári 2016 en þá voru
dómarnir alls 1614. Stærsta sýningin
var á Gaddstaðaflötum í vikunni 11.
til 15. júní með 249 hrossum en sú
minnsta á Stekkhólma á Austurlandi
með 17 hrossum. Landsmót var
haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal
í ár og tókst afar vel. Miðað var við
170 kynbótahross á mótinu, 173
máttu koma en í nokkrum tilfellum
voru hross jöfn að stigum. Alls voru
160 hross dæmd á mótinu en aðeins
var um forföll. Þá hlutu tíu stóðhestar
fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og
fjórir hlutu heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi á mótinu.
Meðaltöl og dreifingu einkunna
má sjá í meðfylgjandi töflum
fyrir alla eiginleika sköpulags og
hæfileika auk aðaleinkunnar fyrir
árið 2018:
Meðaltölin hafa verið að hækka
á síðustu árum
Meðaltöl og breytileiki einkunna
er á mjög svipuðu róli fyrir flesta
eiginleika samanborið við síðastliðið
ár en meðaltölin hafa verið að hækka
á síðustu árum. Þó er meðaltal
sköpulags heldur lægra en í fyrra,
8,00 samanborið við 8,12 í fyrra. Rétt
rúmlega 25% sýndra hrossa voru
klárhross í ár en það er afar svipað
hlutfall og undanfarin ár.
Hlutfall klárhrossa á Landsmóti
hefur á aftur á móti líklega aldrei
verið hærra en 27% hrossa sem
unnu sér þátttökurétt á mótinu voru
klárhross; hæsta hlutfallið var í
yngstu flokkunum, fjögurra vetra
hryssum og stóðhestum. Meðalaldur
sýndra hrossa í ár var 6.15 ár sem er
heldur hærri meðalaldur en á fyrri
landsmótárum. Þetta skýrist helst af
fækkun í sýningum á fjögurra vetra
hrossum en þau voru í ár 12% af
sýndum hrossum.
Hæstu hross ársins
Alls voru sýndar 70 fjögurra vetra
hryssur á árinu og voru þær tæplega
7% sýndra hrossa. Margar afar
efnilegar hryssur voru í þessum
hópi. Með þriðju hæstu einkunn
ársins var Sýn frá Hólum með 8.30
í aðaleinkunn. Hún hlaut 8.54 fyrir
sköpulag og 8.14 fyrir hæfileika,
Sýn er mikil myndarhryssa, afar
skrefmikil og á eflaust eftir að láta
enn meira að sér kveða með meiri
styrk og eftirfylgni. Ræktandi og
eigandi er Hólaskóli. Faðir hennar
er Knár frá Ytra-Vallholti og
móðirin er Ösp frá Hólum. Knár
frá Ytra-Vallholti skilaði nokkrum
eftirtektarverðum og efnilegum
afkvæmum til dóms í vor, enda af
mýktar- og gæðinglínu út af henni
Kolfinnu frá Ytra-vallholti.
Með aðra hæstu einkunn ársins,
8.31, var Sigurrós frá Stuðlum,
undan Dyn frá Dísarstöðum og
Stöku frá Stuðlum sem er undan
gæðingamóðurinni Þernu frá
Arnarhóli. Sigurrós er gæðingur
með 8.37 fyrir hæfileika, með
einstaklega virkjamikið skref og
mikla framgöngu af svo ungu tryppi.
Þá var með hæstu einkunn
ársins Askja frá Efstu-Grund og var
hún einnig hæst í sínum flokki á
Landsmóti. Hún sprakk út á mótinu
og hækkaði hæfileikaeinkunn sína
verulega og endaði með 8.55 fyrir
hæfileika og 8.38 í aðaleinkunn.
Askja er reiðhestslega gerð með
góða yfirlínu í hálsi og baki, þá er
hún hágeng og skrefagóð á tölti
og brokki og afar jafnvægisgóð og
sniðfalleg á skeiði.
Af öðrum fjögurra vetra
hryssum ársins er gaman að geta
tveggja klárhryssna, þeirra Kröflu
frá Austurási undan Framherja
frá Flagbjarnarholti; stórglæsileg
klárhryssa með 9.0 fyrir nánast alla
þætti hæfileikanna og Þórhildar
frá Hamarsey, undan Vita frá
Kagaðarhóli en hún hlaut 9.5 fyrir
tölt á landsmótinu enda einstaklega
mýktar- og feguðardjásn, fjaðrandi
og jafnvægisgóð á tölti.
54 stóðhestar í fjögurra
vetra flokki
Í fjögurra vetra flokki stóðhesta
voru sýndir 54 hestar og voru þeir
rúmlega 5% sýndra hrossa. Með
þriðju hæstu einkunn ársins var
Kastor frá Garðshorni á Þelamörk
eða 8.33. Kastor er úr ræktun þeirra
Agnars Þórs Magnússonar og Birnu
Tryggvadóttur, hann er undan Kiljan
frá Steinnesi og Vissu frá Lambanesi.
Kastor er öflugur alhliða hestur með
8,21 fyrir sköpulag og 8.41 fyrir
hæfileika, þar sem hæst ber 9.0
fyrir bak og lend, skeið og vilja og
geðslag. Með aðra hæstu einkunn
ársins var Fenrir frá Feti, hann er
úr ræktun Fetsbúsins en eigandi
er Ármann Sverrisson. Fenrir er
undan Loka frá Selfossi og Fljóð frá
Feti. Þetta er óvanalega glæsilegur
klárhestur með tölti og hefur sérstaka
framgöngu og útgeislun í brautinni,
hárreistur og tignarlegur með 9,0
fyrir tölt og brokk, 9,5 fyrir vilja og
geðslag og fegurð í reið og 10 fyrir
hægt stökk.
Efsti fjögurra vetra foli ársins
og einnig á landsmóti varð svo
Eldjárn frá Skipaskaga, undan Jarli
frá Árbæjarhjáleigu II og Glímu frá
Kaldbak, úr ræktun Jóns Árnasonar.
Eldjárn er afar fallegur hestur með
8.5 fyrir háls, herðar og bóga, 9.0
fyrir samræmi og 9.5 fyrir bæði
fótagerð og prúðleika. Þá er hann
gangöruggur á tölti og skeiði með
þjálan vilja.
Það er eftirtektarvert með þessa
efstu fola, Eldjárn og Fenri, hversu
mikið þeir eru farnir að gera á unga
aldri en þeir eru báðir 150 cm. á
herðar. Alla jafna eru svo stór hross
lengur að koma til en með stækkun
kynsins förum við væntanlega að fá
fleiri og fleiri hávaxinn sem hross
sem geta meira á unga aldri. En það
setur í raun meiri kröfur á þjálfarann
að gefa sér tíma með hrossin en öll
hross þurfa sinn tíma til að þroskast
andlega og líkamlega.
Í fimm vetra flokki hryssna
voru sýndar 172 hryssur og voru
þær tæplega 16% sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu aðaleinkunn
ársins var landsmótssigurvegarinn
Sigyn frá Feti, undan Ómi frá
Kvistum og Vigdísi frá Feti. Sigyn
er stórglæsilegur og stórbrotinn
gæðingur með 8.48 fyrir sköpulag og
8.62 fyrir hæfileika, afar hreingeng
á tölti og skeiði, með næman og
mikinn vilja.
Með aðra hæstu einkunn
ársins var svo Hugmynd frá
Ketilsstöðum, undan Aðli frá Nýja-
Bæ og Djörfungu frá Ketilsstöðum,
Álfasteinsdóttur en báðir foreldrarnir
hlutu heiðursverðlaun á árinu.
Hugmynd er reiðhestslega gerð
og léttstígur gæðingur og sýndi afar
skemmtilega takta á skeiði, frábært
upplag á skeiði og jafnvægi. Með
hæstu einkunn ársins í þessum flokki
varð svo Paradís frá Steinsholti,
undan Ský frá Skálakoti og Plómu
Markúsardóttur frá Skrúð.
Paradís er afar fallega og vel gerð
hryssa með 9.0 fyrir höfuð, háls,
herðar og bóga og bak og lend. Þá
er hún afar fallega geng, með þennan
þjála vilja sem Skýr er að gefa í
ríkum mæli.
87 stóðhestar í fimm vetra flokki
Í fimm vetra flokki stóðhesta voru
sýndir 87 hestar eða 8.5% sýndra
hrossa. Þriðji hæst dæmdi hestur
ársins í þessum flokki var Jökull
frá Breiðholti í Flóa, undan Huginn
frá Haga og gæðingamóðurinni
Gunnvöru frá Miðsitju.
Jökull er vel gerður og léttbyggður
hestur með 9.0 fyrir háls, herðar og
bóga og samræmi.
Þá er hann efni í
frábæran alhliða
hest með fótaburð
á hægu tölti og
hreinar, fallegar
gangtegundir.
Annar hæsti fimm
vetra hesturinn í
ár var Adrían frá
Garðshorni en
hann var efstur á
Landsmóti, Adrían
er úr ræktun þeirra
Agnars Þórs
Magnús sonar og
Birnu Tryggva-
dóttur, hann er
undan Hágangi
frá Narfastöðum
og Eldingu frá
Lambanesi sem
hlýtur heiðurs-
verðlaun nú í haust.
Adrían er afar vel
gerður hestur með
hvelfdan og reistan
háls, hátt frambak og
lofthæð. Þá er hann
afar jafnvægisgóður
og flinkur á tölti og
hlaut 9,5 fyrir það, býr hann almennt
yfir léttum og háum hreyfingum
en mætti enn sem komið er vera
svifmeiri á brokki og skeiði. Þá
geislar af honum í reið og hann hefur
afar léttan og góðan vilja en hann
hlaut 9.0 fyrir vilja og geðslag og
fegurð í reið.
Með hæstu einkunn ársins í
þessum flokki var Þór frá Torfunesi
en hann er úr ræktun Baldvins Kr.
Baldvinssonar í Torfunesi, hann er
undan Kolskegg frá Kjarnholtum
og Baldursdótturinni Bylgju frá
Torfunesi.
Þór er glæsilegur hestur í
byggingu og ber það vel í brautinni,
reistur og það loftar undir hann en
hann hlaut 9.0 fyrir tölt og brokk,
fegurð í reið og vilja og geðslag.
Í sex vetra flokki hryssna voru
sýndar 206 hryssur eða um 20%
sýndra hrossa. Margar afbragðs
hryssur voru í þessum flokki og hrein
hestagull meðal þeirra efstu.
Með þriðju hæstu einkunn ársins
var Lukkudís frá Bergi úr ræktun
Önnu Dóru Markúsardóttur með 8.55
í aðaleinkunn. Lukkudís er undan
Lukku-Láka frá Stóra-Vatnsskarði
og Forsetadótturinni Hildu frá
Bjarnarhöfn.
Lukkudís er afar fríð og fínleg
hryssa með góðan styrk í yfirlínunni.
Hún hlaut 9.0 fyrir tölt og brokk og
einnig vilja og geðslag og fegurð í
reið enda afar þjál og yfirbragsfalleg
hryssa.
Með aðra hæstu einkunn var
Krafla frá Breiðholti í Flóa með
8.61 í aðaleinkunn úr ræktun Kára
Stefánssonar. Krafla er undan
Ómi frá Kvistum og Gunnvöru frá
Miðsitju. Hún er öflug í byggingu
með 9.0 fyrir bak og lend, þá er hún
aðsópsmikill gæðingur með 9.0 fyrir
hægt tölt og tölt, og 9.5 fyrir skeið,
9.0 fyrir fegurð í reið og vilja enda
geislar af henni orku.
Með hæstu einkunn ársins í
þessum flokki var svo hestagullið
Katla frá Hemlu II með 8.72 í
aðaleinkunn. Katla býr yfir mikilli
fegurð og útgeislun, nýtir hálsinn
vel í reið og heldur á sér þannig að
fegurð sköpulagsins sést vel undir
manni, þá er hún gæðingur á gangi
með 9.0 fyrir tölt og brokk, vilja og
geðslag og fegurð í reið og að auki
skrefmikið og takthreint skeið.
Katla er undan Ský frá Skálakoti
og Spyrnu Roðadóttur frá Síðu og
Sýningarárið í íslenskri hrossarækt 2018
Tölt Brokk Skeið Stökk Vilji og geðsl. Fegurð í reið Fet Hægt tölt Hægt stökk Hæfileikar Aðaleinkunn
Kveikur frá Stangarlæk 1 – ímynd fegurðar og fjaðurmagns.
Mynd / Svanhildur Jónsdóttir
Þráinn frá Flagbjarnarholti hlaut hæstu aðaleinkunn
ársins í kynbótadómi. Mynd / Guðrún Hulda Pálsdóttir
Hrossaræktin 2018
Ráðstefna
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarm ður í
hrossarækt
thk@rml.i